10.11.1982
Neðri deild: 9. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 540 í B-deild Alþingistíðinda. (313)
33. mál, neyðarbirgðir olíu
Guðmundur J. Guðmundsson:
Herra forseti. Það hefur kannske orsakað það að ég missti út úr mér framíkall við ræðu hæstv. viðskrh. að ég vildi segja hér örfá orð.
Það er almennum neytendum á Íslandi með öllu óskiljanlegt að þegar verð á olíuvörum sveiflast upp og niður á þessum svokallaða Rotterdammarkaði, sem er heimsmarkaðurinn, frjálsi markaðurinn, þá vill svo einkennilega til að þegar Rotterdamverðið fellur nær það aldrei til Íslands. Aftur á móti þegar það hækkar, þá er það ótrúlega fljótt að koma. Þegar ýmsir embættismenn eru spurðir hvað því valdi að þessi lækkun á Rotterdamverði komi ekki til framkvæmda, er svarið: Já, það eru bara svo miklar birgðir. Svo gleyma menn þessu og lækkunin kemur yfirleitt aldrei. Það er náttúrlega kapítuli út af fyrir sig hvernig getur það verið tilviljun. Það er þá samfelld tilviljun og samfelld ógæfa að mér virðist við alltaf vera á öldufaldinum á markaðsverði í veröldinni.
Þó að rökstyðja megi það að ýmsu leyti að æskilegra sé að hafa hér meiri birgðir, þá held ég að aðilar þurfi að gera sér grein fyrir því að vaxtakostnaður verður töluvert mikill. Og hvort sem olíufélögin græða eða tapa, þá dettur mér ekki annað til hugar en að þau komi þeim aukna vaxtakostnaði, sem leiðir af meiri birgðum, yfir á neytendur. Ég skal ekki vera að ræða þetta mál ítarlega að þessu sinni, en ég er ekki alveg viss um að þörfin sé svona brýn. Það er ýmislegt sem hefur breyst í þessum efnum. Engar spár hafa staðist, eins og hæstv. viðskrh. tók fram og var þó að vitna í ýmsar spár máli sínu til stuðnings. En sleppum því.
Það eru miklu fleiri olíuskip í veröldinni heldur en var fyrir svona 15 árum. Við opnun Súezskurðarins, við það að fleiri ríki hafa tekið upp framleiðslu á olíu og aukið hana, ég tilgreini t.d. Noreg, Bretland, Mexíkó, Nígeríu, hefur þetta breyst og er ekki jafnbundið Arabalöndunum og var og framleiðsluaukning á olíu hefur orðið mjög mikil. Spáð var samdrætti í framleiðslu á olíu. Það hefur ekki gengið eftir. Hins vegar hefur neysla á olíu dregist mjög saman vegna orkusparandi aðgerða sem ríki hafa gripið til. Þar hefur aukinn sparnaður og nýir orkugjafar komið til sögunnar. Því er líka spáð að þegar þjóðir rísi upp úr þeirri kreppu sem nú gengur yfir, vonandi sem fyrst, muni olíuþörfin ekki verða sambærileg við það sem hún áður var. Þessar gífurlegu verðhækkanir á olíu hafa orsakað það að ríki hafa gripið til ákaflega magnaðra ráðstafana og náð þar ótrúlega miklum árangri. Við höfum kannske náð einna lengst í þeim efnum með því að nota jarðhita til húshitunar, en breytingar hafa einnig orðið í bílum, skipum o.s.frv. Nóg um það. Ég skal flytja ítarlega ræðu um þetta þegar málið kemur úr nefnd. En voðalega finnst mér þetta einkennilegt viðskiptalögmál með Rotterdam, að það skuli aldrei nema hækkanirnar berast til Íslands.