10.11.1982
Neðri deild: 9. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 543 í B-deild Alþingistíðinda. (317)
33. mál, neyðarbirgðir olíu
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Aðeins örstutt innskot í þessa umr., sem ég vil ekki að þm. gleymi. Hæstv. ráðh. og aðrir þeir ræðumenn sem hér hafa talað hafa eðlilega miklar áhyggjur af síhækkandi olíuverði. Ég leyfði mér fyrir hönd Alþfl. að flytja hér fyrir nokkrum þingum till. um fækkun olíufélaga. Hér í landi er þrefalt dreifingarkerfi olíu. Ég færði að því gild rök að lækka mætti olíuverð með því að sameina olíufélögin, fækka þeim þó ekki væri nema um eitt. Þetta mál hefur ekki fengið neinar undirtektir hér á þingi. Hanna ég það mjög því að ég er ennþá jafn sannfærður, jafnvel sannfærðari en ég var áður, um að fækkun olíufélaganna hlýtur að jafngilda lækkuðu olíuverði. Það hlýtur hver heilvita maður að sjá að það er ódýrara að reka eina eða tvær skrifstofur fyrir olíufélög heldur en þrjár, það er ódýrara að reka einfalt eða tvöfalt dreifingarkerfi í staðinn fyrir þrefalt.
Ég vildi bara að þetta kæmi fram í sambandi við þessa umr. um olíuna. Ég vil enn á ný minna menn á það að þessi möguleiki er fyrir hendi.