14.03.1983
Neðri deild: 67. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3151 í B-deild Alþingistíðinda. (3179)
158. mál, bann við ofbeldiskvikmyndum
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Þessi umr., sem hér er hafin um valdið sem birtist í ýmsum myndum, er mjög merkileg fyrir margra hluta sakir. Ég vil minna á að hv. þm. Matthías Bjarnason er ekki fyrsti maður á þingi í vetur til að vekja athygli á því hvernig komið er fyrir þingstörfum.
En eitt vil ég þó minnast á að gefnu tilefni og það er eftirfarandi: Hér hefur verið rætt um að hæstv. forsrh. sé að rjúfa þing í andstöðu við meiri hl. þingheims, sem gerir sér grein fyrir því að hér eru óafgreidd fjölmörg mál, m.a. lánsfjáráætlun, vegáætlun o.fl. En nú skulum við velta því fyrir okkur hvernig hæstv. forsrh. fer að því að rjúfa þing. Hann gerir það vegna þess að hann hefur vald til þess. Nú hefur mikið verið talað um kenningar um aðskilnað framkvæmdavalds og löggjafarvalds og þar hefur komið fram sú hugmynd að auka vald forsrh. Hvernig telja menn að ástandið væri hér ef slíkt yrði? Halda menn að það yrði verra eða betra?
Hæstv. forsrh. hefur þingrofsréttinn í hendi sér. En ég vil varpa fram einni spurningu til hv. þm. Framsfl. og Alþb.: Mér skilst að í stjórnarsáttmála sé ráð fyrir því gert, eins og ævinlega, að þing sé ekki rofið nema með samþykki allra aðildarflokka í ríkisstj. Hefur þessi ákvörðun verið rædd í þingflokkum Framsóknar og Alþb., að rjúfa þing hér eftir útvarpsumr. í kvöld, án þess að taka hið minnsta tillit til þjóðarinnar, sem er fyrir utan þinghúsveggina og á kröfu til þess að þetta þing afgreiði mikilvæga málaflokka sem hér liggja fyrir? Á ég að trúa því að þeir menn sem standa að ríkisstj. með hæstv. forsrh. ætti að láta bjóða sér það að hann taki þá ákvörðun upp á eigin spýtur? Ég vildi gjarnan heyra í þessum hv. þm. og álit þeirra á þessu máli. Ég hef spurst fyrir um það, hvort þetta hafi verið rætt í viðkomandi þingflokkum og mér er sagt að það hafi ekki verið rætt. Ég er alveg sannfærður um það og sannfærist æ betur um það, að orðið er nauðsynlegt að rýra vald forsrh. frekar en hitt. Ég er sannfærður um að það verður að takmarka þingrofsrétt forsrh. Ég er sannfærður um að það verður að takmarka rétt hans til útgáfu brbl. ríkisstjórna á hverjum tíma. Þetta gengur þvert á þær skoðanir sem komið hafa fram um að það beri að auka vald forsrh., að fá hinn sterka mann til að stjórna þessu landi. Menn hafa beðið um sterka menn á öllum tímum, þegar upplausn hefur ríkt í þjóðfélögum víða um heim, og menn þekkja afleiðingar þess.
Ég vil líka minnast á að það nær auðvitað ekki nokkurri átt að ríkisstj. skuli geta lafað í marga mánuði, eins og hér hefur orðið raunin á, án þess að hafa meiri hl. á hinu háa Alþingi. Sá meiri hl. glataðist í ágústmánuði á s.l. ári. Samt hefur þessi ríkisstj. þráast við að deyja.
Herra forseti. Þessi umr. er að öllum líkindum síðasta umr. í þessari virðulegu deild á þessu þingi. Menn geta litið yfir störf þessa þings, metið þau og vegið. Og ég er sammála hv. 1. þm. Vestf. um að niðurstaðan af því mati og þeirri mælingu verður ekki mjög jákvæð.
Eitt vil ég segja að lokum, herra forseti. Ég er sannfærður um, ég er ekki í minnsta vafa um það, að ástandið sem hér hefur skapast er að umtalsverðum hluta hæstv. forsrh. að kenna. Ég hef gagnrýnt verkstjórn hans hér á þinginu. Menn segja að forsrh. eigi ekki að hafa verkstjórn á höndum. En hæstv. forsrh. hlýtur að hluta til að stjórna störfum þingsins. Það er hann sem óskar eftir því hvaða mál fari hér í gegn og það er hann sem á að hafa samstarf og samráð við stjórnarandstöðu. Ekkert af þessu hefur gerst, ekki neitt. Hér hafa menn síðustu vikur og mánuði randað um í hreinu ráðleysi. Ekki eru nema örfáir dagar síðan ég vakti athygli á þessu. Ég benti á að það hefði verið hæg leið fyrir hæstv. forsrh. að tilkynna þingrof á ákveðnum degi, en heimila þingi að starfa áfram til þess að þinginu gæfist kostur á að afgreiða þau mál sem eru mjög mikilvæg fyrir þessa þjóð — eða hvernig ætla menn á næstu dögum og vikum að halda atvinnurekstrinum í þessu landi gangandi þegar ekki hefur verið afgreidd lánsfjáráætlun og allir sjóðir eru tómir? Ég skil ekki og ég lýsi megnustu vanþóknun á þeirri ráðstöfun að senda þingið heim áður en þessi mál hafa verið afgreidd.
Það hefur ekki verið afgreidd vegáætlun. Hvað á að gera í þeim efnum? Ætlar ríkisstj. að gefa út brbl. á færibandi næstu daga? Ætla Alþb. og Framsfl. að standa að brbl.-útgáfu af því tagi rétt fyrir kosningar? Herra forseti. Þetta, sem nú er að gerast, á líklega eftir að færast á spjöld sögunnar sem einhver einstæðasti atburður í allri þingsögunni. Þetta er þvílík óvirðing, ekki bara við þingið heldur alla þjóðina, að það nær ekki nokkurri átt. Má með sanni segja að hæstv. forsrh. hafi rekið út úr sér tunguna framan í þjóðina, það skipti hann engu máli hvernig mál þróast hér á landi á næstu vikum og næstu mánuðum. Það er líka augljóst að þingið muni ekki koma saman fyrr en 10. okt. n.k. Hvað gerist á þeim mánuðum sem fram undan eru? Við vitum að allir atvinnuvegir, grundvallaratvinnuvegir þjóðarinnar, riða til falls. Þeir eru komnir fram á ystu brún fjárhagslegrar getu sinnar og það er enginn möguleiki í dag að bjarga þessum atvinnugreinum nema með mjög áhrifamiklum aðgerðum. Ég tel, herra forseti, og það skulu vera mín lokaorð, að með þessari ákvörðun og þessari framkomu, sem þinginu og þjóðinni hefur verið sýnd í dag, sé verið að stofna atvinnulífi, rekstri fyrirtækja í landinu, í stórfellda og háskalega hættu. Og við skyldum gera okkur grein fyrir því, sem höfum verið kosnir hingað af fólkinu í landinu, að okkar er ábyrgðin þegar upp er staðið. En við þessa ábyrgð fáum við ekki ráðið vegna þess að ég tel að hæstv. forsrh. hafi of mikil völd og þess vegna er ég þeirrar skoðunar, herra forseti, að það sé út í hött og það sé hættuleg kenning að auka eigi völd forsrh.