14.03.1983
Sameinað þing: 66. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3179 í B-deild Alþingistíðinda. (3202)

Almennar stjórnmálaumræður

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Góðir hlustendur. Eru þjóðleg viðhorf á undanhaldi? Er að hverfa sú reisn sem einkenndi þessa þjóð í sjö aldir og dugði henni vel í baráttu gegn nýlenduáþján og kúgun? Spurt er að gefnu tilefni.

Fyrir Alþingi liggur till. til þál. um samninga við Alusuisse. Till. gerir ráð fyrir að auðhringurinn fái stækkun á álverinu í forgjöf áður en samningar hefjast. Hún fjallar m.ö.o. um að Alþingi Íslendinga, elsta löggjafarsamkoma í heimi, hneigi sig fyrir auðhringnum Alusuisse. Flm. eru sex, úr þremur stjórnmálaflokkum, undir forustu Eggerts Haukdals, stjórnarformanns Framkvæmdastofnunar ríkisins. Með honum í för eru Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstfl., og Halldór Ásgrímsson, varaformaður Framsfl., svo að nokkrir séu nefndir úr þessari sveit liðsmanna Alusuisse, sem hefur gengið fram fyrir skjöldu hér á Alþingi Íslendinga á undanförnum sólarhringum.

Þessir menn eiga vafalaust einhvern stuðning á Alþingi Íslendinga, en till. þeirra náði ekki fram að ganga. Hún var stöðvuð. Hins vegar hefur hún þegar haft nokkur áhrif. Forstjóri ÍSALs er farinn með till. í farangri sínum suður til Sviss. Þangað fór hann á laugardagsmorguninn um það leyti sem við gengum hér út úr Alþingishúsinu, að umræðum var að ljúka um álmálið hér í þessu húsi. Með Ragnari Halldórssyni fór Guðmundur H. Garðarsson, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.

Kannske hafa þeir fært Müller og Meyer tillöguna í gylltum ramma, kannske skrautritaða, kannske með myndum af flm. sex úr álflokkunum þremur. Ekki veit ég það, en hitt veit ég, að þessi tillöguflutningur er til marks um niðurlægingu og þau áhrif sem hinn erlendi auðhringur hefur nú þegar á Íslandi. Till. er einnig hápunkturinn á rógsherferð álflokkanna þriggja gegn Hjörleifi Guttormssyni. Hún er flutt sama daginn og samkomulag hafði náðst við formann Framsfl. í ríkisstj. um meðferð þessa máls. Þeirri till. hafnaði Framsfl. Halldór Ásgrímsson og Ólafur Þ. Þórðarson tóku völdin af formanni sínum og fluttu till. dæmalausu.

Á leiðinni til Sviss hafa þeir Ragnar Halldórsson og Guðmundur H. Garðarsson vafalaust einnig fjallað um stefnumál sjálfstfl. og Verslunarráðs Íslands, en Ragnar Halldórsson er formaður þess sem kunnugt er. Í þeirri stefnu er nú gert ráð fyrir því að fella niður öll framlög til Lánasjóðs ísl. námsmanna. Það er gert ráð fyrir að fella niður öll framlög til Byggingarsjóðs ríkisins og það er gert ráð fyrir að fella niður öll framlög til Byggingarsjóðs verkamanna. Húsnæðislánin eiga því samkv. þessari stefnu Sjálfstfl. ekki að hækka, eins og við gerum kröfu til, heldur að lækka.

Í till. Alþb. innan núv. ríkisstj. hefur legið fyrir till. um að hækka hin almennu húsnæðislán verulega, einkum til þeirra sem byggja og kaupa í fyrsta sinn, með því að taka bankakerfið og lífeyrissjóðina með inn í myndina. Alþb. hefur einnig lýst sig reiðubúið til sérstakrar fjáröflunar, t.d. með söluskattsstigi, til að standa undir hærri húsnæðislánum. Þessar tillögur hafa legið fyrir ríkisstj. lengi. Þeim hefur enn verið hafnað.

Við leggjum á það áherslu, Alþb.-menn, í þeirri kosningabaráttu, sem nú er að hefjast, að verulegt skref verði stigið í átt til lausnar á þessum vandamálum húsbyggjenda í landinu — og við höfum aldrei séð þær tillögur um húsnæðismál sem hv. þm. Guðmundur Bjarnason talaði um áðan í ræðu sinni.

Gegn stefnu Verslunarráðs Íslands, Varðarfélagsins og borgarstjórnaríhaldsins í Reykjavík teflir Alþb. fram stefnu sinni og leggur til að farin verði íslensk leið að markinu út úr þeim vandamálum, sem þjóðin nú býr við, gegn kreppu og gegn atvinnuleysi. Sú íslenska leið felur m.a. í sér eftirfarandi meginatriði:

1. Fulla atvinnu, aukna framleiðslu, sparnað og minni innflutning til að draga úr erlendum lánum og viðskiptahalla.

2. Íslenska auðlindastefnu og umhverfisvernd gegn arðráni og mengun erlendra stórfyrirtækja.

3. Baráttu gegn verðbólgu og sjálfvirkni í efnahagskerfinu, sem nú setur allt á annan endann.

4. Baráttu fyrir friði, gegn herstöðvum í stað vígbúnaðar herveldanna.

Við höfum orðið vör við það, að ákall okkar um einingu hefur vakið mikla athygli. Ungt fólk hefur lýst áhuga á því að starfa með Alþb. í vaxandi mæli. Þeir sem hingað til hafa stutt Alþfl. vilja nú margir verða samferða Alþb. Alþb. er eini stjórnmálaflokkurinn sem gengur nú heill til kosninga. Allir hinir flokkarnir eru klofnir niður í rót.

Við leggjum á það áherslu, að strax að kosningum loknum verði mynduð ríkisstjórn sem fyrir 1. maí geti gert nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja gang atvinnuveganna — ríkisstjórn sem getur dregið úr hraða verðbólgunnar án þess að það komi niður á kaupmætti almennra launa. Við viljum verja Ísland fyrir atvinnuleysinu. Það er eðlilegt verkefni nýrrar ríkisstjórnar að ákveða þetta eftir kosningar, þar sem núv. ríkisstj. segir af sér þá samkv. yfirlýsingum sem þeir hafa gefið Pálmi Jónsson og Steingrímur Hermannsson. Þannig er ljóst að ný ríkisstjórn og nýtt þing verða að taka á vandanum og það strax. Það var þess vegna sem við fluttum tillögu að viljayfirlýsingu um að Alþingi skuti koma saman hið fyrsta eftir kosningar og eigi síðar en 18 dögum eftir þær. Það væri ábyrgðarleysi að kalla þingið ekki saman. Alþingi hefur fallist á þessa afstöðu okkar og tveggja annarra stjórnmálaflokka.

Í upphafi var spurt hvort þjóðleg viðhorf, íslensk sjónarmið, væru á undanhaldi. Tilefnið var tillaga sexmenninganna úr álflokkunum þremur. Svarið við spurningunni liggur ekki fyrir enn, en það liggur fyrir eftir kosningarnar. Þá verður kosið um það, hvort þjóðin vill skapa víðtæka einingu um íslenska leið eða hvort menn kjósa að slást í för með formanni Verslunarráðsins og formanni fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna til Sviss. Það er spurningin.

Góðir hlustendur. Veitið Alþb. athygli í kosningabaráttunni sem nú er að hefjast. — Ég þakka þeim sem hlýddu.