14.03.1983
Sameinað þing: 66. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3191 í B-deild Alþingistíðinda. (3206)

Almennar stjórnmálaumræður

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Hæstv. forsrh. sendi sjálfstæðismönnum og Sjálfstfl. kveðju í ræðu sinni áðan. sú kveðja var högg undir belti og ég vil segja: Sjálfstfl. hefur aldrei brugðist stefnu sinni og skyldum þótt einn og einn flokksmaður hafi tekið víxlspor. Ræða forsrh. var tímaskekkja á þessu herrans ári 1983.

Herra forseti. Góðir áheyrendur nær og fjær. Við höfum nú heyrt fulltrúa vinstri flokkanna flytja sinn boðskap til þjóðarinnar. Við höfum einnig heyrt fulltrúa Sjálfstfl. ræða hina ýmsu málaflokka sem snerta lífsafkomu íslensku þjóðarinnar og framtíð hennar. Hlustendum er því ljóst á hvaða villigötum stjórnarliðar hafa ráfað og hvers vegna bæði hæstv. ríkisstj. og hv. Alþingi hafa verið og eru í sjálfheldu. Misklíð og sundurlyndi hefur einkennt störf ríkisstj. og stjórnarliða. Spor þessarar ríkisstj. hræða. Frekari umr. eru því óþarfar svo að ég sný mér að framtíðinni, því að búist er við þingrofi hér í kvöld, og ég mun því tala til stuðningsmanna Sjálfstfl. sem mál mitt heyra.

Erfiðar kosningar eru fram undan. Miðstjórn og frambjóðendur Sjálfstfl. komu saman um helgina í Borgarnesi. Kom þar fram sterkur vilji frambjóðenda flokksins að hefja nú sókn að því háleita marki, sem þjóðinni er tvímælalaust fyrir bestu, að Sjálfstfl. fái hreinan meiri hl. eftir næstu kosningar. En til þess að það megi takast þarf hver sjálfstæðismaður að skilja að flokkurinn krefst þess að hann hefji þegar í stað kosningabaráttu svo að árangur náist. Talið við vini og kunningja. Kynnið og verjið stefnu Sjálfstfl. af fullum krafti um land allt. Takið málstað frambjóðenda Sjálfstfl. hvenær og hvar sem tækifæri gefst. Við verðum að eiga málsvara á öllum vinnustöðum, í öllum vinahópum. Hugsjón Sjálfstfl. verður að ná til allra fjölskyldna á landinu. Við erum flokkur allra stétta og nú búum við okkur til varnar landi og þjóð gegn vinstri öflum, sem stjórnað hafa þessu ástkæra landi okkar of lengi með þeim árangri sem kom fram og var svo vel skýrður af fulltrúum Sjálfstfl. fyrr í þessum umr.

Á fundi fjh.- og viðskn. nýlega kom fram hjá seðlabankastjóra, sem lýsti ástandinu í þjóðfélaginu þannig, að við værum að sökkva í fen. Upp úr feninu stefnir nú Sjálfstfl. til bjartari framtíðar með stefnuskrá flokksins að leiðarljósi. Við göngum til starfa ákveðnir og traustvekjandi. Stefnuskrá okkar verður kynnt seinna í þessari viku — stefnuskrá sem er fyrirheit um betri tíma nái Sjálfstfl. meiri hluta í næstu kosningum. Lífshamingja þín, góður hlustandi, er undir velgengni Sjálfstfl. komin. Þess vegna óska ég að þú takir þátt í þeirri baráttu sem fram undan er. Eldmóður æskunnar fær þar útrás. Komið til starfa með okkur. Starfið fyrir Sjálfstfl. og fyrir bjartari framtíð, fyrir alíslenska stefnu með atíslenska og djarfa stefnuskrá í vegarnestið. Hver trúir þeim kjörorðum, sem hrutu af vörum Alþb.formannsins í þessum ræðustól áðan, að Alþb. hafi einingu um íslenska stefnu? Það hljómar einkennilega þegar það kemur úr röðum þeirra manna sem rekja rætur sínar til Sovétríkjanna.

Framsfl. sækir líka sínar hugsjónir erlendis. Ekki er samvinnustefnan íslensk stefna, það er svo langt frá því. Alþfl. er alþjóðasósíalistaflokkur, sem ber sömu rós í barmi á Íslandi sem í öllum öðrum löndum, og stefna hans er þýðing úr samþykktum alþjóðasamtaka jafnaðarmanna. En Bandalag jafnaðarmanna sækir sína stefnu ekki til útlanda þó að hún sé ekki íslensk. Það sækir sína stefnu í framlagðar till. Alþfl. hér á Alþingi. Sjálfstfl. einn er alíslenskur stjórnmálaflokkur, sem byggir á traustri fortíð og er að sigla út úr ólgu nútíðar og kallar nú á fleiri sér til stuðnings til að tryggja íslenskri þjóð bjartari og betri framtíð. Upp úr feninu, gegn upplausn og til ábyrgðar.

Þessi þjóð á ærinn auð ef menn kunna að nota hann. Ég leyfi mér að segja: Íslendingar til lands og sjávar. Héðan, úr helgustu véum þjóðarinnar, skora ég á ykkur alla að fylkja ykkur um stefnu Sjálfstfl. Minn hugur og bjargfasta trú er sú, að þú, hlustandi góður, eigir framtíð í Sjálfstfl. Talsmenn Sjálfstfl. hafa í kvöld sýnt það með föstum rökum hvernig núverandi ríkisstj. hefur siglt öllum málum þjóðarinnar í sjálfheldu. Sjálfstfl. í stjórnarandstöðu á þar enga sök. Ríkisstj. á að biðjast lausnar. Henni hefur mistekist í hlutverki sínu.

Íslendingar. Við vitum að kosningabaráttan er hafin, ekki bara hér á Alþingi heldur um land allt. Sjálfstfl. er flokkur allra stétta. Það er þjóðarnauðsyn að Sjálfstfl. nái hreinum meiri hl. á Alþingi í næstu kosningum. — Góða nótt.