14.03.1983
Sameinað þing: 66. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 3194 í B-deild Alþingistíðinda. (3208)
Almennar stjórnmálaumræður
Landbrh. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Alþingi það sem nú er að ljúka störfum hefur borið nokkurn svip af því að kosningar eru fram undan. Störf þess hafa einnig mótast af því að ríkisstj. hefur ekki haft nægan meiri hluta í Nd. Alþingis. Því hafa deilur um málsmeðferð verið tíðari en oftast áður, karp um vinnubrögð tekið tíma frá efnislegri vinnu og afgreiðslu mála. slíkt háttalag verður sjaldan til álitsauka. Þrátt fyrir það hefur ríkisstj. tekist að fá afgreidd flest þau mál sem nauðsynleg geta talist og samstaða hefur verið um innan hennar.
Á hinn bóginn hefur ríkisstj. mistekist að ná samstöðu um aðgerðir í efnahagsmálum svo sem nauðsynlegt hefði verið til þess að hefta þá miklu verðbólgu sem nú geisar. Það olli mér miklum vonbrigðum að ríkisstj. sem heild skyldi ekki treysta sér til að standa að löggjöf um nýtt viðmiðunarkerfi og lengingu verðbótatímabila svo sem ég hef hvatt til frá því skömmu eftir að ríkisstj. var mynduð. Ef þetta hefði tekist hefði dregið úr hraða verðbólgunnar, margfeldisáhrif vísitölukerfisins hefðu minnkað og svigrúm aukist til frekari aðgerða í efnahagsmálum. Önnur úrræði, sem till. voru gerðar um til að draga úr hækkun verðlags og launa 1. mars, áttu ekki heldur nægan hljómgrunn innan ríkisstj.
Verðbólga og efnahagsmál verða því enn sem fyrr alvarleg og þýðingarmikil viðfangsefni á næstu mánuðum. Þrjú af fjórum síðustu árum hafa verið meðal hinna köldustu á þessari öld, tvö þeirra síðan 1882. Þessi staðreynd ásamt samdrætti í hefðbundinni búvöruframleiðslu hefur óhjákvæmilega komið fram í misjafnri afkomu bændastéttarinnar. Með tilliti til þessa er nú unnið að sérstakri athugun á fjárhagsstöðu bænda. Vænti ég niðurstöðu úr þeirri vinnu og tillagna á næstunni.
Í tíð núverandi ríkisstj. hefur verið mótuð heilsteypt stefna í öllum meginþáttum landbúnaðarmála. Sú stefna liggur fyrir á Alþingi og í samræmi við hana hefur markvisst verið unnið með stjórnvaldsaðgerðum, hvatningu og málefnalegri umræðu yfirleitt í ágætri samvinnu við forustumenn bænda. Hér skulu örfá atriði tilgreind:
Tekist hefur að ná jafnvægi í framleiðslumálum. Mjólkurframleiðslan hefur verið sem mest við hæfi innanlandsneyslu í þrjú ár. Útflutningsuppbætur dugðu á síðasta ári til að fá fullt verð fyrir útflutt kindakjöt og osta og munu væntanlega gera það á þessu ári. Fjölbreytni fer vaxandi í vinnslu landbúnaðarvara. Ostar og aðrar mjólkurvörur eru til fyrirmyndar. Kjötvinnsla er og í örri framþróun, sem byggist á rannsóknum, aukinni þekkingu og tækni. Sölustarfsemi og kynningarstarf hefur verið eflt og leitast er við að koma til móts við þarfir og óskir markaðarins, neytenda. Stuðlað er að aukinni hagræðingu í landbúnaði og nýjum búgreinum. Refabú eru þrefalt fleiri nú en fyrir ári eða 87. Fyrir liggja tillögur um skipulega uppbyggingu fóðurstöðva fyrir loðdýrafóður og fé ætlað samkvæmt lánsfjárlögum til að fylgja þeim till. eftir. Starfsskilyrði loðdýraræktar hafa verið bætt til samræmis við það sem útflutningsiðnaðurinn býr við. Fiskeldi og fiskrækt hafa verið efld og kennsla í þeim greinum færð inn í landið. Lögð er aukin áhersla á rannsóknir og merkingar á seiðum víða um land m.a. til að fá marktækari niðurstöður úr leit okkar að íslenskum laxi í afla Færeyinga. Garðyrkja og ylrækt hefur eflst, ekki síst fyrir áhrif frá. Garðyrkjuskóla ríkisins. Stuðningur hefur verið aukinn við fóðurverkun og fóðuriðnað í þeim tilgangi að nýta innlend hráefni, en spara aðkeypt fóður. Hólaskóli hefur risið úr niðurlægingu og aðsókn að landbúnaðarskólunum er meiri en þeir geta rúmað. Stofnlánadeild landbúnaðarins hefur styrkt stöðu sína og er nú með jákvæðan höfuðstól gagnstætt því að hún var í raun gjaldþrota þegar þessi ríkisstjórn tók við. Deildin mun áfram byggja upp stöðu sína að óbreyttu. Unnið er að því að leysa vandamál Áburðarverksmiðju ríkisins í þeim tilgangi að áburðarverð þurfi ekki að hækka umfram verðlagshækkanir. Ríkisstj. hefur staðfest greiðlega allar ákvarðanir Sexmannanefndar um búvöruverð. Rekstrarlán landbúnaðarins voru á síðasta ári hækkuð um 96.2%. Kvótakerfið er í endurskoðun.
Þótt hér sé ýmislegt talið er fleira órætt. Vandamál eru víða, einkum vegna misjafnrar fjárhagsstöðu svo sem fyrr var að vikið. Landbúnaðurinn á mikið undir því að skilningur ríki á málum hans hjá þjóðinni í heild. Fyrir nokkrum árum voru háværar deilur um landbúnaðarmál daglegt brauð. Þessar deilur um landbúnaðinn og árásir í hans garð hafa hljóðnað með örfáum undantekningum. Skýrt mörkuð stefna, nauðsynleg túlkun hennar og sýnilegur árangur í því að mæta óskum neytenda með fjölbreytni í framleiðslu og vinnslu búvara hafa án efa aukið skilning á stöðu og málefnum bændastéttarinnar. Það er nauðsyn að þessi skilningur haldist og dafni: Hann getur skorið úr um hvort hagsmunamál landbúnaðarins eigi hljómgrunn eða ekki hjá stjórnvöldum á hverjum tíma. — Góða nótt.