11.11.1982
Sameinað þing: 16. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í B-deild Alþingistíðinda. (329)
Um þingsköp
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Í gær flutti hæstv. viðskrh. frv. um aðild að Alþjóðaorkustofnun og neyðarbirgðir olíu. Þrátt fyrir að ýmsir þm. hefðu við það að athuga að hæstv. ráðh. legði til að því frv. yrði vísað til iðnn. varð forseti Nd. við ósk flm. um að vísa málinu til þeirrar nefndar, sem flm. vildi að því yrði vísað til, en ekki til fjh.- og viðskn. Þar með virðist hafa verið skapað fordæmi um að óskir flm. um hvert eigi að vísa málum séu afgerandi þegar ákveðið er hvert eigi að vísa málum.
Flm. þessarar till. hefur óskað eftir að henni yrði vísað til allshn. Ég styð þá ósk; ekki bara vegna þess sem hér gerðist í gær, heldur líka vegna efnis málsins. Samkv. þeirri till. á að taka til meðferðar fyrirtæki sem starfar ekki bara á Keflavíkurflugvelli heldur starfar hér uppi á Ártúnshöfða, starfar vestur á Patreksfirði, hefur veitt fjármagni til Suðureyrar, rekur fyrirtæki víða um Reykjavíkursvæðið og hefur verið umfangsmikill aðili í atvinnurekstri um allt land, bæði á því svæði sem markað hefur verið umráðasvæði Bandaríkjanna, en líka í stórum stíl fyrir utan það svæði. Mér er t.d. umhugsunarefni hvort umsvif Regins hf. séu meiri utan Keflavíkurflugvallar eða innan. Ég leyfi mér að fullyrða hér, að umsvif Regins hf. hvað snertir fjölbreytta starfsemi og fjármagnsráðstafanir á undanförnum árum hafi verið meiri í ýmsum byggðarlögum þessa lands en á Keflavíkurflugvelli. Ef hæstv. utanrrh. og aðrir leggja það til hér að málefni hlutafélagsins Regins hf. séu eingöngu utanríkismál eru þeir þar með að kveða upp úr með fyrirtæki sem reka fjölþætta starfsemi hér í sjávarútvegi, í flugsamgöngum, í fiskvinnslu og ýmsum atvinnugreinum hér um land heyri undir utanrrn. eða heyri undir hv. utanrmn. á Alþingi Íslendinga. Það eru tíðindi fyrir Samband ísl. samvinnufélaga og þá sem sitja á aðalfundi SÍS að Reginn hf. heyri undir utanrmn. á Alþingi.
Það á að kanna ýmis fleiri fyrirtæki og starfsemi þeirra samkv. þessari till., en ég læt þetta aðeins nægja til að sýna hve fáránlegt er að halda því fram, að sú starfsemi, sem hér á að fjalla um, heyri undir utanrmn. Er ég þá ekkert að kveða upp úr með hvort till. verður samþykkt eða felld, þó að ég hafi lýst yfir stuðningi við hana í breyttri mynd, en að kveða upp úr með það, að sá víðtæki atvinnurekstur og fjármálastarfsemi, sem hér er verið að fjalla um, heyri undir utanrmn. á Alþingi Íslendinga og þar með heyri t.d. frystihúsið á Patreksfirði undir utanrmn. Íslendinga tel ég sérkennilegan málflutning. — Ég held að það sé alveg óhjákvæmilegt að hér komi fram miklu ítarlegri rökstuðningur en frammíkall fyrir þeirri stjórnskipulegu niðurstöðu, að allt þetta víðtæka mál, sem þessi till. fjallar um, þar með talin ein stærsta bygging sem byggð hefur verið í Reykjavík um áraraðir, byggingin uppi á Ártúnshöfða, sé utanríkismál. Er steinsteypan, sem þorri Reykvíkinga keyrir fram hjá á degi hverjum hér uppi á Ártúnshöfða, utanríkismál? Menn skulu gera sér grein fyrir því hvaða afleiðingar það hefur fyrir ýmsa þætti í stjórnskipun þessa lands, fyrir ýmsa þætti í atvinnurekstri þessa lands, fyrir ýmsa þætti í þeirri fjármagnsráðstöfun sem þessi fyrirtæki hafa beitt um allt land, ef Alþingi ætlar að fara að úrskurða að það sé allt saman utanríkismál.