11.11.1982
Sameinað þing: 16. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 549 í B-deild Alþingistíðinda. (333)

Um þingsköp

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Ég tel að tillögumanni um rannsókn á starfsháttum Íslenskra aðalverktaka sé gert rangt til ef hans till. er ekki borin fram á undan. Það getur verið matsatriði þingsins til hvorrar nefndarinnar það vill vísa till., en þar sem ekki hefur borist formleg brtt. frá utanrrh. sé ég ekki að hans till. hafi neinn forgang fyrir öðrum. Ég vildi aðeins láta þetta álit mitt í ljós.