11.11.1982
Sameinað þing: 16. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í B-deild Alþingistíðinda. (344)
Um þingsköp
Steinþór Gestsson:
Herra forseti. Með því að þessi till. fjallar einvörðungu um að Alþingi álykti að fela sérstakri rannsóknarnefnd, sem það kýs, að láta fara fram ítarlega rannsókn, þá sé ég ekki betur en utanrmn. sé fyllilega fær um að gefa þingheimi þá umsögn sem þarf til að taka ákvörðun um hvort eigi að kjósa rannsóknarnefnd eða ekki. Með því segi ég nei.