11.11.1982
Sameinað þing: 16. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 556 í B-deild Alþingistíðinda. (348)

Um þingsköp

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Hér hefur verið dregið í efa að till. sú sem nýlega hefur verið vísað til utanrmn. fengi fullnægjandi meðferð í n. Ég tel það algerlega ástæðulaust. Ég tel að utanrmn. sé vel fær um að taka till. til athugunar með þeim hætti að fullnægjandi sé. Sérstaklega vil ég taka það fram, að ég tel alveg sjálfsagt að þeir aðilar verði kallaðir fyrir nefndina sem einstakir nefndarmenn óska að kvaddir séu og n. í heild sinni.

Varðandi þá leynd sem á að hvíla yfir störfum utanrmn., þá hygg ég einnig að hún sé ekki því til fyrirstóðu að mál þetta upplýsist með þeim hætti að alþm. geti gert sér grein fyrir því þegar þessi till. eða breytt þáltill. verður borin upp fyrir Alþingi hvernig þeir vilja þá greiða atkv. Með leyfi forseta vil ég í tilefni af því að hér hefur verið nefnt að málefni rædd í utanrmn. eigi að sæta meiri leynd, skulum við segja, en málefni sem eru til meðferðar í öðrum nefndum vitna í þingsköp Alþingis, 15. gr., sem fjallar um fastanefndir í Sþ., en þar er sagt:

„Til utanrmn. skal vísa utanríkismálum. Utanrmn. starfar einnig milli þinga og er ríkisstj. til ráðuneytis um meiri háttar utanríkismál, enda skal ríkisstj. ávallt bera undir hana slík mál jafnt milli þinga sem á þingtíma. Nm. eru bundnir þagnarskyldu um þá vitneskju, sem þeir fá í nefndinni, ef formaður eða ráðh. kveður svo á.“

Hér lýkur tilvitnuninni varðandi þá leynd sem á að hvíla á. störfum utanrmn. Þar er sagt að það sé eingöngu þagnarskylda ef formaður eða ráðh. kveða svo á. Ég hygg að það þurfi að vera mjög veigamiklar ástæður til þess að annaðhvort ráðh. eða formaður kveði upp úr um að eigi megi greina frá, þegar mái kemur til umr. hér á Alþingi, hvað fram hafi farið í nefndinni. Ég er þá alveg reiðubúinn að standa reikningsskil þeirrar ákvörðunar minnar þegar þar að kemur. Og ég ítreka og endurtek: Það hljóta að verða að vera mjög veigamikil rök fyrir því að annaðhvort ráðh. eða formaður nefndarinnar kveði svo á um.

Varðandi störf í öðrum nefndum þingsins held ég að það heyri frekar til undantekninga en að það sé almenn regla að frá nefndastörfum og orðaskiptum manna á nefndafundum sé greint meðan mál er til meðferðar í nefnd. Það er fyrst þegar mál kemur frá nefnd og nál. liggja fyrir að slíkt ber á góma. Ég sé að óreyndu enga ástæðu til að ætla að í þessu efni verði farið öðruvísi að varðandi afgreiðslu utanrmn. á þessari till. en hvað snertir meðferð mála í öðrum nefndum.

Sem formaður utanrmn. vil ég taka það fram, að að óreyndu er algerlega ástæðulaust að gera meðferð n. á þessari till. tortryggilega með því að vitna í ákvæði, sem ég hef greint frá í þingsköpum, um leynd á störfum utanrmn. ef svo býður við að horfa.

Ég vænti þess að innan utanrmn. takist góð samvinna við afgreiðslu þessarar till. Og ég verð að draga í efa að hæstv. forseti þingsins hafi erindi til þess í raun og veru að kveða upp úrskurð um þessi efni, sem hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson 11. þm. Reykv., hefur farið fram á. Ég held að n. sé fullfær sjálf um að starfa svo að meðferð málsins að þingsómi sé að.