11.11.1982
Sameinað þing: 16. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 557 í B-deild Alþingistíðinda. (349)
Um þingsköp
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Það er rétt, sem komið hefur fram hjá hv. þm. Geir Hallgrímssyni, að þann tíma sem við höfum setið saman í utanrmn. hefur ekkert á það skort að um þau mál sem til n. hafa komið hafi tekist allgóð samvinna hvað snertir málsmeðferð. Þetta mál er hins vegar annars eðlis. Það er annars eðlis vegna þess að sá maður sem samkv. þingsköpum hefur úrskurðarrétt um frá hverju megi skýra og hverju ekki í meðferð þessa máls, ef það er í utanrmn., hæstv. utanrrh., er hér tillögumaður að því að málið fari í utanrmn. og þar með tillögumaður að því að hann hafi ásamt formanni utanrmn. einn vald yfir því hvað út úr nefndinni fer. Ég hélt að hv. alþm. væri ljóst, að þegar utanrrh. flytur sína till. hér er hann jafnframt að flytja till. um að hann ásamt hv. þm. Geir Hallgrímssyni, þeir tveir einir, ráði því hvað fer til þingsins og þjóðarinnar af þeim gögnum og skjölum sem verða lögð fram í nefndinni. Það eru ekki vinnubrögð sem tíðkast í öðrum nefndum þingsins. Í öðrum nefndum þingsins er það á sjálfsvaldi hvers og eins þm. að meta hvort hann leggur fram í nál. sínu þau skjöl gögn og upplýsingar sem í n. koma fram. Sumir þm. Sjálfstfl. t.d. hafa í fjh.- og viðskn. verið mjög iðnir við að leggja fram sem þskj. fjöldann allan af upplýsingum. Það er meginástæðan fyrir því að ég óskaði hér eftir viljayfirlýsingu hæstv. forseta að ég vildi hafa vissa tryggingu af hálfu þingsins sjálfs fyrir rétti þm. í þessu sérstaka máli.
Ég fagna því hins vegar, að hv. þm. Geir Hallgrímsson, formaður utanrmn. skuli hafa lýst því yfir hér að hann muni ekki hindra að þau skjöl og gögn, sem fram verða lögð og beðið verði um í utanrmn. um þetta mál, fái nákvæmlega sömu meðferð og önnur skjöl sem lögð eru fram um önnur mál í öðrum nefndum þingsins. Og ef hæstv. utanrrh. vill svo koma hér á eftir og lýsa því einnig yfir hér og nú áður en málsmeðferð hefst í nefndinni, að hann sé reiðubúinn að lýsa því yfir líka hér og nú að hann muni ekki hindra að þau gögn sem beðið er um og upplýsingar sem lagðar eru fram í n. fái að fylgja nál. og verði þannig kynnt þjóðinni og þinginu eins og önnur mál, þá er það vissulega verulegur árangur í upphafi hvað málsmeðferð snertir. Ég skil orð hv. formanns utanrmn. á þann veg sem ég hef hér lýst, og ef því er ekki mótmælt vil ég að sá skilningur standi og er ánægður með hann og vænti þess að hæstv. utanrrh. taki þá hér og nú jafntvímælalaust af skarið og hv. þm. Geir Hallgrímsson. Það væri vont að eiga eftirmál um það innan n., þegar hún hefur starfað að málinu í einhvern tíma, hvað megi birta og hvað megi ekki birta af þeim skjölum sem þar eru lögð fram. Það verður að gilda um þetta mál sama regla og um önnur mál í nefndum þingsins, að öll þau skjöl sem þar koma fram megi birta.