16.11.1982
Sameinað þing: 17. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í B-deild Alþingistíðinda. (362)

31. mál, afurðalán landbúnaðarins

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Hæstv. viðskrh., bankamálaráðh., situr fyrir svörum um þetta efni nú orðið tvisvar á ári og alltaf rekur hann í sömu vörðurnar.

Ég tók eftir því, að hann gat þess að sá siður væri tekinn upp á stöku heimili að greiða reksturslánin beint inn á reikninga bænda og taldi að kaupfélögin ættu að fá að þróa þessa „aðferð“ í friði. Það er einmitt það sem er. Það er meiningin að lofa kaupfélögunum að þróa þá aðferð í friði að bændur þessa lands hafi ekki til að bera fjárhagslegt sjálfstæði.

Ég komst yfir bréf norður í Vopnafirði í ágúst í sumar, í kjördæminu okkar hæstv. ráðh. Hann hefur kannske séð það bréf. Vafalaust er það stílað eftir 200 ára gömlu bréfi frá Örum & Wulff, en það var undirskrifað af kaupfélagsstjóranum sem þar ríkir nú. Það var tilkynning um það, að því miður gætu þeir sem ættu fjármuni sína inni hjá kaupfélaginu ekkert fengið nema vörur og enga peninga. Ef þeir skyldu ætla að bregða sér bæjarleið, þá yrði það útilokað. Það stæði þannig á fyrir kaupfélaginu að þeir gætu ekki fengið 100 kr. seðil, þó ekki væri beðið um meira. Ég á þetta bréf og ég ætla ekkert að efast um að þm. sem heimsækja bændur til Vopnafjarðar hafi fengið að kynna sér þetta rit þar í anda Örum & Wulff.

En þess var getið af hæstv. ráðh. að þetta væru ekki lög, og rétt er það. Æ ofan í æ rekum við okkar á það, að umboðsmenn okkar og vinnufólk, hæstv. ráðh. sem starfa í umboði hins háa Alþingis, hafa að engu ákvarðanir sem teknar eru löglega af Alþingi. Þetta hefur meiri hl. hins háa Alþingis satt sig við, kalla ég, en það getur ekki gengið svo lengur. Og nú á ég erindi við hæstv. viðskrh. og ég bið hann að setja framsóknarmanninn út fyrir á meðan, því ég þarf að fá ærlegt svar, og framsóknarmaðurinn verður að taka SÍS-manninn með sér líka, þannig að eftir verði lögfræðingurinn Tómas Árnason, og Seyðfirðingurinn Tómas Árnason má líka verða eftir og feiti strákurinn á Þórarinsstaðaeyrum. Ég veit að þeir munu segja eins og þeim sýnist rétt og satt. Álítur hann að hæstv. ráðh. beri að fara að svo skýlausum viljayfirlýsingum Alþingis sem hér um teflir?