16.11.1982
Sameinað þing: 18. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 625 í B-deild Alþingistíðinda. (410)

32. mál, hafsbotnsréttindi Íslands í suðri

Flm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir undirtektir hans og ekki síður fyrir þær upplýsingar sem hann hefur gefið okkur um það hvað að undanförnu hefur verið að gerast í þessum málum. Fagna ég því að sjálfsögðu að hreyfing er komin á þetta mikla mál. Ég þakka ekki síður þeim tveim hv. þm. sem hér hafa talað og get raunar sagt að þeir fjórir sem hér hafa talað, hver frá sínum stjórnmálaflokki, séu nokkuð sammála um svo til öll efnisatriði, þó að kannske séu eitthvað mismunandi áhersluatriði.

Varðandi það að þessi till. er eingöngu flutt af þm. Sjálfstfl. þá held ég að það sé vegna þess að upphaflega till. 1978 var flutt af einum þm. Sjálfstfl. úr hverju kjördæmi. Ég hugsaði ekki út í það, satt að segja, hvort ég ætti að reyna að hafa menn úr fleiri flokkum. Og auðvitað skiptir það ekki meginmáli. Aðalatriðið er að alþingismenn geti sameinast um málið.

Ég get að sjálfsögðu tekið undir það sem hv. síðasti ræðumaður sagði, hættan af eiturefnum og kjarnorku og öðru slíku er auðvitað geigvænleg og það þarf að gæta þess ekki síður en þeirra réttinda sem hér er sérstaklega um fjallað. Ég skal þó ekki fara lengra út í það. Það er mál út af fyrir sig.

Ég fagna mjög þeim upplýsingum, sem eru nýjar fyrir mér, að David Anderson þjóðréttarfræðingur skuli fjalla um þessi mál af Breta hálfu. Ég kynntist honum lítillega fyrst þegar ég fór á hafréttarráðstefnu. Þá áttum við í baráttu við Breta út af 200 mílunum. Við ræddum það mál töluvert ítarlega einslega og reyndar í hópi manna líka. Sá maður er áreiðanlega í hópi allra hæfustu lögfræðinga á sviði þjóðréttar. Hann gætti auðvitað hagsmuna síns ríkis og gerði að svo fimlega að erfitt var að finna á honum höggstað. Ég held að það sé saklaust að segja nú frá því til gamans að ég sagði honum þá að ef ég væri í hans sporum mundi ég herma eftir Íslendingum og raka 200 mílurnar áður en Bretar gengju í Efnahagsbandalagið. Hann andmælti því auðvitað og sagði að enginn þjóðarréttur leyfði slíkt o.s.frv. En einum til tveimur árum seinna, þegar ég minnti hann á þessi ummæli, sýndist mér hann brosa við og ekki mótmæla því eins harðneskjulega að það hefði getað verið klókt hjá Bretum að herma eftir okkur. En þetta er nú til gamans sagt.

Ég held að það sé mjög æskilegt líka, þó að það sé óformlega gert, að Írar hafi valið frk. Skinner sem sinn aðalmálsvara eða samningamann, eða hvað á að kalla það, til þessara umræðna. Hún er geysilega harður og fær lögfræðingur. Var erfitt við hana að kljást stundum á umræðufundunum sem við áttum saman. Hún hélt fast við það að þar sem Írar og Bretar hefðu ákveðið gerðardóm sín á milli þá væri ekkert við okkur að ræða á meðan. Ég man eftir að ég varpaði því fram eða einhver okkar hvað hún mundi þá gera ef Íslendingar og Færeyingar ákvæðu það sama, gerðardóm um sama svæðið. Það hafði nú ekki flögrað að þeim Írunum að við kynnum að grípa til þeirra úrræða.

Það er áreiðanlegt að þarna eru einhverjir hæfustu þjóðréttarfræðingar þessara tveggja ríkja komnir í spilið, svo ég noti lélegt málfar, og það bendir til þess að þeir ætli að fara að tala við okkur í alvöru. Og það gerist auðvitað vegna þess að þeir sjá að við erum að tala í alvöru. Meðan þeir héldu að svo væri ekki settu þeir ekki sína færustu sérfræðinga í þetta, nema þá í hálfkæringi. Nákvæmlega þetta sama gerðist í Jan Mayen-málinu.

Fulltrúar Norðmanna á Hafréttarráðstefnunni hlógu að okkur fyrst og sögðu að við ættum lítil réttindi, og engin á Jan Mayen-svæðinu. En smám saman breyttist það, þegar þeir sáu að við vorum ákveðnir í að þrýsta á um málið.

Ég get út af fyrir sig fallist á að það sé kannske ekki jafn skaðvænlegt að okkar réttindabarátta að því er varðar Rockall-svæðið hefur dregist þetta, eins og það kynni að hafa verið ef við hefðum ekki fylgt mjög fast og hratt fram kröfum okkar á Jan Mayen-svæðinu, því að þar var um að ræða að sumu leyti réttlætiskröfur og sanngirniskröfur, sem ekki var beinlínis fjallað um í texta hafréttarsáttmálans og mátti um deila. Orðalagið þar var að sumu leyti okkur ekki sem hagstæðast að því er Jan Mayen-svæðið varðaði, heldur ýmis söguleg rök og þjóðernisleg sem við gátum þar beitt. Aftur á móti tel ég, eins og ég sagði raunar í minni frumræðu, að lagalegur réttur okkar sé ennþá sterkari á Rockall-svæðinu en hann var á Jan Mayen-svæðinu, og þess vegna hafi það kannske ekki sakað fram að þessu þó að ekki hafi verið þrýst meir á. En nú er tímabært að gera það svo um muni.

Að því er varðar Danina þá er ánægjulegt að það skuli vera komið á samkomulag um að halda áfram viðræðum. Og hvort sem það er kölluð viðræðunefnd eða viðræðuaðilar, eða hvað sem það nú heitir, þá er það ekki meginatriði, heldur hitt, að viðræðunum verði fram haldið. Það er auðvitað rétt, sem hæstv. ráðh. segir, að þetta hljóti í fyrsta umgangi að vera könnunarviðræður. Þannig var það líka með Jan Mayen-málið. En samhliða könnunarviðræðum jukum við jafnt og þétt þrýstinginn á Jan Mayen-viðræðunum. Og það er einmitt það sem við þurfum að gera núna í sambandi við Rockall-svæðið.

Ég held að besta leiðin til að auka þennan þrýsting sé kannske að Atþingi samþykki einróma sem allra fyrst till., ekki endilega nákvæmlega orðrétta eins og hún er lögð hér fram, en samþykki till. um að stjórnmálamenn verði þátttakendur í þessum undirbúningi og knýi á um sem skjótastar og viðamestar viðræður, hvert sem nafn þeirra verður.

Einnig er nauðsynlegt að reyna að koma fram áróðri erlendis. Við sátum okkur aldrei úr færi, fulltrúar Íslands á Hafréttarráðstefnunni, að svara norskum blaðamönnum. Það birtist mjög mikið í norskum blöðum bæði frá utanrrn. og líka frá því sem var að gerast á Hafréttarráðstefnu. Ég hygg að þegar almenningur í Noregi sá að Íslendingar ætluðu að halda réttindum sínum til streitu, þá hafi fólk snúist á sveif með samningunum og gert sér grein fyrir að Íslendingum var þetta mikið í mun og það gæti skaðað vináttu þjóðanna ef þvergirðingsháttur yrði mikill af Norðmanna hálfu.

Allt þetta þurfum við að gera. Og eins og hv. þm. Árni Gunnarsson nefndi eigum við, þegar við hittum Færeyinga af öðru tilefni, Dani og jafnvel Grænlendinga, og svo auðvitað Breta og Íra, að nota hvert tækifæri til að ræða málið, helst niður í kjölinn.

Það er ekki miklu meira efnislega sem ég þarf um þetta að segja. Ég lýsi þakklæti mínu aftur og ánægju yfir því sem utanrrn. hefur gert, einnig yfir því að hæstv. utanrrh. skuli taka því með þökkum að fá liðsauka úr þinginu. Ég held að það hljóti að verða til góðs, því að einhvern veginn er það nú svo að það eru stjórnmálamennirnir sem ábyrgðina bera, og þegar þeir fara að ræða málin þá skýrast þau fyrir almenningi bæði hér innanlands og erlendis. Embættismennirnir vinna hins vegar meira í kyrrþey, og er ég þá ekki að segja að þeirra starf þurfi endilega að vera minna virði, en málið verður að fara að komast í umræður, bæði hérlendis og erlendis, og því þarf að þrýsta fram. Ég endurtek mínar þakkir.