17.11.1982
Efri deild: 10. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 627 í B-deild Alþingistíðinda. (412)

80. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Á þskj. 82 flyt ég mál um breyting á lögum um útflutningsgjald af sjávarafurðum.

Aðalefni þessa frv. kemur fram í 1. gr., þar sem farið er fram á að sjútvrh. megi fella niður útflutningsgjald af kolmunnaafurðum til manneldis.

Tilraunir hafa verið gerðar undanfarin ár til að auka kolmunnaveiðar okkar Íslendinga og hefur verið varið til þess því fjármagni sem Alþingi hefur veitt til tilrauna á slíku sviði, bæði með nýja markaði og um veiðar. Á árunum 1980 og 1981 var mjög miklu af því fjármagni varið til að styrkja loðnuskip til kolmunnaveiða í bræðslu. Í fáum orðum sagt varð niðurstaðan af því ekki jákvæð. Það sýndi sig að styrkur þessi þurfti að nema um það bil helmingi af aflaverðmæti skipanna til þess að veiðarnar væru arðbærar fyrir þau.

Um svipað leyti og á sama tíma hófst samstarf á vegum Rannsóknaráðs Norðurlanda fyrir milligöngu Rannsóknaráðs ríkisins og með þátttöku Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. Samstarf það beindist að tilraunum með veiðar og vinnslu á kolmunnaafurðum. Í því samstarfi kom fljótlega í ljós að grundvöllur til þess að veiða kolmunna og nýta í bræðstu er mjög bágborinn. Sama reynsla er fengin hjá bæði Færeyingum og Norðmönnum, sem einkum hafa stundað þessar veiðar af þeim þjóðum sem tóku þátt í þessari athugun. Athugunin beindist því fyrst og fremst að veiðum á kolmunna til manneldis. Það kom í ljós að einna arðbærust virðist veiði á kolmunna til manneldis og til þurrkunar, þannig að á síðasta ári var veitt nokkur aðstoð til að koma á fót þurrkstöðvum hér, þar sem jarðvarmi er nýttur í þessu skyni. Því miður er jarðvarmi ekki tiltækur nálægt kolmunnamiðum, þannig að um töluverðan flutningskostnað er að ræða. Engu að síður virðist sú vinnsla álitleg.

Færeyingar héldu á nýjar brautir á s.l. ári þegar þeir keyptu stórt verksmiðjuskip og breyttu því til vinnslu á kolmunna. Skip þetta er með vinnslurásum til flökunar og vinnslu á marningi og öðrum afurðum úr kolmunna. Í tengslum við hinar sameiginlegu rannsóknir höfum við fengið mjög gott tækifæri til að fylgjast með þessari tilraun. Menn frá okkur hafa verið um borð og ítarleg skýrsla og niðurstöður birtar af sérfræðingum Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. Einnig hefur Magni Kristjánsson skipstjóri verið með í ráðum og fylgst með þessum veiðum og liggja fyrir álitsgerðir frá honum á þessum tilraunum.

Að þessu fengnu varð niðurstaðan að verja öllu því fjármagni sem sjútvrn. hefur tiltækt nú til að hjálpa íslenskum skipum þannig að þeim megi breyta til að fara á kolmunnaveiðar til flökunar og frystingar fyrst og fremst.

Þrjú skip hafa sótt um aðstoð í þessu skyni. Þau eru: Eldborgin frá Hafnarfirði, Víkingur frá Akranesi og skip þeirra Strandamanna Hólmadrangur, sem svo hefur verið nefndur, sem er ennþá í smíðum. Sjútvrn. og Fiskimálasjóður hafa veitt lán til þessara breytinga, en að sjálfsögðu hafa einnig eigendur þessara skipa varið í því skyni verulegu fjármagni.

Eitt af þessum skipum hefur nú hafið kolmunnaveiðar, Eldborgin, og þær fréttir sem hafa borist lofa góðu. Hér er hins vegar um tilraun að ræða og verður að leggja á það áherslu. Sumir hafa dregið í efa að skip þessi væru nægilega stór. Hið færeyska skip, sem veiðarnar hefur stundað, er töluvert stærra. Þó hefur það sýnt sig að afli t.d. Eldborgarinnar er ekki langt frá því sem er hjá Færeyingum, en vera má að vinnsluaðstaða um borð sé þrengri og takmarkaðri fyrir bragðið.

Við þessar tilraunir eru bundnar töluverðar vonir. Þessi tilraun er engu að síður áhættusöm, því þó að þessir aðilar hafi hlotið hagkvæm lán frá bæði Fiskimálasjóði og sjútvrn. og sömuleiðis erlend lán, sem eru þá að sjálfsögðu með fullri greiðslubyrði og gengistryggingu, hafa þeir einnig lagt fram verulegt eigið fjármagn og alls ekki er séð fyrir endann á þessari tilraun þannig að unnt sé að fullyrða að veiðarnar verði reknar af hagkvæmni þótt við þær séu eftir fyrstu fréttum bundnar töluverðar vonir.

Með tilliti til þess, að hér er um að ræða einna viðamestu tilraun sem við höfum gert til að hasla okkur völl í kolmunnaveiðum fel ég mjög eðlilegt að þessar afurðir verði undanþegnar útflutningsgjaldi og er því, eins og ég sagði áðan, í 1. gr. farið fram á að ráðh. verði heimilt að ákveða að útflutningsgjald af kolmunnaafurðum verði fellt niður.

Í 2. gr. þessa frv. er lagt til að lög um útflutningsgjald af sjávarafurðum verði gefin út að nýju með þeim breytingum sem á þeim hafa verið gerðar. Þessar breytingar eru mjög margar frá 1976 og nauðsynlegt að sameinað verði í einn lagabálk.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta lengri framsögu, en legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.