17.11.1982
Neðri deild: 10. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 640 í B-deild Alþingistíðinda. (426)

71. mál, vernd barna og ungmenna

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég vil með örfáum orðum lýsa stuðningi við þetta mál. Það lætur lítið yfir sér, en það getur valdið því að þeir menn sem þurfa að gæta samkomuhúsa verði ekki fyrir því ónæði og þeim erfiðleikum sem þeir hafa orðið fyrir á undanförnum árum vegna þess fyrirkomulags sem nú ríkir með aðgang barna og unglinga að opinberum stöðum, m.a. félagsheimilum, kvikmyndahúsum og öðrum slíkum stöðum. Þessi brtt., sem hér liggur fyrir í lagafrv., er mjög mikils virði og getur komið þessu máli í mun skárra horf en það var. Ég styð þessa till.