18.11.1982
Sameinað þing: 19. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 663 í B-deild Alþingistíðinda. (442)
Um þingsköp
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ég hafði farið fram á að það færi fram, eins og hæstv. forseti sagði, atkvgr. um hvort efni fyrir sig, annars vegar um tilmæli sjónvarpsins til að sjónvarpa umr. um vantraustið og hins vegar um ákvörðun um ræðutíma sjálfstæðismanna í ríkisstj. Ég vil láta það koma hér fram, að Sjálfstfl. lagði til við hæstv. forseta að ræðutími sjálfstæðismanna í ríkisstj. yrði sá sami og verið hefur í almennum útvarpsumr., eða 20 mínútur, en samkomulag var um það gert á sínum tíma milli þingflokkanna og sjálfstæðismanna í ríkisstj. Hins vegar skilur flokkurinn að sjálfstæðismönnum í ríkisstj. muni ekki veita af lengri tíma til að verja sig gegn vantrausti og mun því ekki greiða atkv. gegn afbrigðunum, heldur sitja hjá við atkvgr. til að leggja áherslu á þessi mótmæli sín.