18.11.1982
Sameinað þing: 19. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 664 í B-deild Alþingistíðinda. (443)

Um þingsköp

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Þingflokkur Alþfl. hefur og rætt þessi tilmæli forseta. Það segir í fundarsköpum, að menn utan þingflokka eigi kost á að tala í 15 mínútur. Þykir þingflokki Alþfl. sem við það mætti notast í þessu tilviki, þ.e. varðandi sjálfstæðismenn í ríkisstj. Til er samkomulag um að þeir fái 20 mín. og viljum við standa að slíku samkomulagi, en munum ekki greiða því atkv. að þeir fái 30 mínútur. Að vísu hefðum við aðeins gaman af því að heyra þá sjálfstæðismenn tala lengur til að sýna hversu ósamstæður og sundurleitur hópur þingflokkur sjálfstæðismanna er, en af því hér er um prinsipástæður að ræða teljum við rétt að halda við fyrra samkomulag.