19.10.1982
Sameinað þing: 4. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (47)
Um þingsköp
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Því miður fannst mér svar hæstv. forseta ekki vera fullnægjandi áðan. Það sem ég er að spyrja um er, að nú hefur komið í ljós að fsp. hv. þm. Vilmundar Gylfasonar varð formlegt mál hér á Alþingi, 23. mál þingsins, varð það í skjölum þingsins og gögnum og nú gagnvart þm. öllum í skjalasafni þeirra. Ég spyr um það: Er hægt að taka formlegt númerað mál til afgreiðslu og atkvgr. í Sþ. án þess að það formlega og númeraða mál sé á dagskrá viðkomandi fundar? Ég hef að vísu ekki framkvæmt ítarlega rannsókn á þingsköpum hvað þetta snertir, en ég tel það brjóta í bága við allar venjur, starfshætti og meginreglur, sem hér eru á þinginu, og skapa einnig hættulegt fordæmi að formleg númeruð þingmál séu tekin til atkvgr. í þingsölum án þess að birtast á prentaðri dagskrá viðkomandi fundar. Ef talin væri nauðsyn á slíku væri a.m.k. nauðsynlegt, að mínum dómi, að leita samþykkis Alþingis, hvort vikið sé frá þeirri prentuðu dagskrá og þetta mál tekið fyrir, eða þá, eins og oft er gert hér í þingsölum, að settur væri nýr fundur og nýrri dagskrá dreift. En að það sé hægt að taka formlegt númerað mál til atkvgr. í þingsölum án þess að það birtist á prentaðri dagskrá né um það fari fram atkvgr. í þingsölum tel ég algerlega óviðunandi og nánast brot á öllum almennum reglum, sem hér eiga að gilda. Ég er ekki að tala um persónulega ákvörðun forseta í þessu tilviki, heldur eingöngu vegna fordæmisins að gera þetta atriði hér að umræðuefni. Það væri mjög hættulegt fordæmi ef hægt vari að taka númeruð og formleg þingmál til atkvgr. í þinginu án þess að þau hafi birst á prentaðri dagskrá viðkomandi fundar eða formleg atkvgr. farið fram um það á fundi hvort málið eigi að koma til atkv. ef forsetum, hverjir svo sem þeir eru, hvort sem þeir sitja hér, nú eða síðar, á að vera falið vald í krafti þessa fordæmis til þess að taka mál til atkvgr. án þess að geta þeirra í dagskrá eða láta þingið sjálft ákveða hvort það eigi að greiða þeim atkv., þá er ég algerlega andvígur slíkum starfsháttum og tel þá ekki síður hættulega en það sem hv. síðasti ræðumaður var að gera hér að umræðuefni. Það er þess vegna sem ég hef gert þetta formsatriði, sem sumum kann að finnast minni háttar, að svo miklu umræðuefni. Ég tel það vera lykilatriði, þegar okkur þm. varð það ljóst með framlagningu þskj. á borð okkar rétt fyrir helgina, að þessi fsp. hafði hlotið formlegt málanúmer í skjölum þingsins, var 23. mál.
Þess vegna vil ég ítreka fsp. mína til hæstv. forseta. Ég geri ekki kröfu til þess að hann svari henni hér og nú úr sinu sæti, heldur sætti mig fyllilega við það að henni verði svarað formlega á síðari fundi. Ef hæstv. forseti vill taka sér umhugsunarfrest geri ég enga aths. við það, en ég bið hann að íhuga vel svar sitt og hagnýta sér að taka sér frest í málinu, sem ég geri enga aths. við, áður en kveðinn er upp úrskurður um það, sem yrði fordæmi síðar meir, hvort hægt sé að taka formleg og númeruð mál þingsins til endanlegrar afgreiðslu með þessum hætti.