22.11.1982
Efri deild: 11. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í B-deild Alþingistíðinda. (472)
85. mál, efnahagsaðgerðir
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Enn á ný stöndum við frammi fyrir einum af hinum svokölluðu efnahagsaðgerðum hæstv. ríkisstj. Aðgerðir þær, sem frv. það sem við nú ræðum fjallar um, eru með sama marki brenndar og fyrri aðgerðir hæstv. ríkisstj. Hér er um að ræða stefnulausar kákaðgerðir eins og áður. Sum efnisatriði þessa frv. stefna í öfuga átt, en önnur gætu verið til bóta ef þau væru liður í heildarstefnu í efnahagsmálunum.
Efnahagsaðgerðirnar samkv. þessu frv. eru því í heild vitagagnslausar og til frambúðar raunar til tjóns, eins og allar kákaðgerðir reynast í þessum efnum. Þetta sjá allir sem sjá vilja. En öllu má nafn gefa. Hæstv. utanrrh. gefur þessum efnahagsaðgerðum einkunnina: Of seint, of lítið.
Það er nú borin von að núv. ríkisstj. ráði nokkra bót á verðbólguvandanum. Meðan ríkisstj. var kokhraust juku allar aðgerðir hennar til lengdar á glundroða og óvissu í efnahagsmálunum. Á þessu verður engin breyting nú, þegar ríkisstj. er að falli komin, en meðan ríkisstj. situr ber hún ábyrgðina. Öllu máli skiptir því, hvað við tekur.
Það er engin skyndilausn til eða töfrabrögð sem beitt verði til lausnar verðbólguvandanum. Það væri óraunhæft og ábyrgðarlaust að halda slíku fram. Hins vegar þýðir það ekki að stjórnvöld eigi að draga fæturna í efnahagsmálunum til lausnar vandanum. Þvert á móti þarf að láta hendur standa fram úr ermum og skjótra viðbragða er þörf.
Fyrst af öllu þurfa stjórnvöld að fóta sig á verðbólgufluginu sjálfu. Það verður að vera umþóttunartími til aðgerða. Skammtímaráðstafanir þurfa því að koma til svo að verðlag hækki ekki né kaupgjald svo og lánskjaravísitala og vextir og ennfremur fiskverð, svo að nokkrir veigamiklir þættir í slíkri verðstöðvun séu nefndir. Með slíkum skammtímaráðstöfunum væri kostnaði atvinnurekstrarins haldið í skefjum. Hins vegar yrði að viðhalda kaupmætti launa með lækkun eða afnámi vörugjalds og lækkun sölu- og innflutningsgjalda eftir því sem með þyrfti. Á móti slíkum tekjumissi ríkissjóðs kæmi lækkun á útgjöldum ríkissjóðs. Þá er nauðsynlegt að útlán banka og sparisjóða verði takmörkuð eftir því sem þarf til stuðnings aðgerðum til þess að halda verðlagi stöðugu.
En hversu vel sem slíkar skammtímaráðstafanir væru hugsaðar og hversu vel sem þær væru framkvæmdar væru þær vitagagnslausar ef þær væru ekki liður í síðari ráðstöfunum eða langtímaaðgerðum, sem lúta að þeim þáttum þjóðarbúskaparins þar sem er að finna frumorsakir verðbólguvandans, verðbólguþróunarinnar, sem stjórnvöld hafa á valdi sínu að ráða bót á.
Það er ekki hægt að stöðva verðbólguna með lagaboðum eða reglugerðarákvæðum nema um skamman tíma eða í nokkra mánuði. Slíkur varnargarður getur ekki verið nema til bráðabirgða. Ef honum er ætlað að standa lengri tíma fer svo, að þrýstingurinn af hinni uppsöfnuðu verðbólgu á stöðvunartímabilinu verður svo mikill að flóðalda verðbólgunnar sópar burt varnargarðinum og æðir áfram óstöðvandi svo að vandinn verður meiri en nokkru sinni fyrr. Það er þetta sem skeður við framkvæmd á hinni svokölluðu niðurtalningaraðferð, sem ríkisstj. beitir sem viðnámi gegn verðbólgu og framsóknarmenn telja sig vera höfunda að. Við höfum séð árangurinn af niðurtalningu verðbólgunnar svo að ekki verður um villst.
Það er ekki hægt að setja lög sem fyrirskipa að verðbólgan skuli lækka frekar en að fyrirskipa að þjóðarframleiðslan skuli aukast, þjóðartekjurnar vaxa og hagsæld aukast.
Mér kemur í þessu sambandi í hug atvik sem skeði fyrir allmörgum árum. Það var komið langt fram á vetur og fram undir vor og steinbíturinn var tregur fyrir vestan. Það var alvara á ferðum þegar þessi bjargvættur Vestfirðinga gekk ekki á miðin sem skyldi. Gárungi á Þingeyri sendi mér svohljóðandi hraðskeyti:
„Viltu flytja þegar í stað þáltill. sem fyrirskipar steinbítnum að ganga strax á miðin.“
Hér var á ferðinni maður með gott skopskyn. En framsóknarmönnum er fyrirmunaður sá eiginleiki. Í því er fólginn mismunurinn á niðurtalningaraðferðinni og steinbítsaðferðinni.
Skammtímaráðstafanir verða að vera sniðnar að langtímaráðstöfunum sem á eftir fara. Meginatriðið er því fólgið í langtímaráðstöfunum. Þær miða að kerfisbreytingu til að fjarlægja það sem vandanum veldur. Þetta þarf að gerast með víðtækum aðgerðum, svo sem með nýrri skipan ríkisfjármála, nýrri skipan launamála og eflingu frjáls markaðskerfis.
Ekki er það fátítt að eyðslunni sé kennt um þann vanda sem steðjar að í efnahagsmálunum. Það er talað um að einstaklingarnir eyði of miklu, stéttirnar og hagsmunahóparnir eyði of miklu, og þjóðin eyði of miklu. En það er sjaldnar talað um þann aðila í þessu sambandi sem mestu eyðir, eða ríkið sjálft. Að vísu er talað um skattalækkanir eða þörfina á því að lækka skatta, en við það situr. Skattarnir hafa svo sannarlega ekki lækkað þrátt fyrir allt talið um þörfina á því.
Meðan ekki er skapaður grundvöllur fyrir skattalækkun verður ekki af því að hún verði framkvæmd. Að vísu tala menn um sparnað í ríkisrekstrinum og það er að sjálfsögðu góðra gjalda vert, en frómar óskir í þeim efnum stoða lítt nema gagngerð endurskipulagning og kerfisbreyting eigi sér stað. Það verður að draga úr útgjöldum ríkisins með því að færa verkefni frá ríkinu til sveitarfélaga og einstaklinga og með auknu aðhaldi í ríkisfjármálum almennt. Þar munar mest um fjárfrekustu málaflokkana, svo sem annars vegar heilbrigðis- og tryggingamál og hins vegar menntamál. Það er svo, að heilsufar þjóðarinnar er fyrir öllu og að allir hafi öryggi við að búa og ekkert er mikilvægara einni þjóð en menntun þegnanna. Ekki á þetta síst við um okkur Íslendinga, sem eigum allt undir atgervi hvers og eins einstaklings til þess að geta haldið uppi okkar sjálfstæðu tilveru sem þjóðar. Allir vilja gera allt sem mögulegt er fyrir þessi málefni. En einmitt vegna eðlis þessara mála erum við í sérstakri hættu á að ofgera þar í einstökum efnum og sjást ekki fyrir án þess að viljinn til góðs skili árangri sem skyldi. Viðfangsefnið er að koma á þeirri skipan sem minnkar útgjöldin án þess að gengið sé á þá þjónustu sem raunverulega er veitt.
Það stoðar ekki lengur að verðbætur á laun séu þeim eiginleikum gæddar að þær hækki því meir sem kostnaður aðfanga í þjóðarbúið eykst og minna verður til skiptanna að öðru jöfnu. Í stað þess verður að virða þá staðreynd, að afrakstur þjóðarbúsins segir til um hvað til skiptanna er á hverjum tíma og verðbætur á laun verði því að taka mið af þjóðartekjum.
Ekki má lengur láta reka á reiðanum alla viðleitni til mótvægis við verðlagssveiflur sjávarafurða á erlendum mörkuðum. Undanbragðalaust verður að ráðstafa hluta verðlagshækkana til að mætaverðlagslækkunum eftir því sem með þarf til þess að jafna sveiflur á verði sjávarafurða. Vegna mikilvægis sjávarútvegsins sem undirstöðuatvinnuvegar þjóðarinnar er hér ekki einungis um að ræða nauðsyn þessarar atvinnugreinar sjálfrar, heldur líka skilyrði þess að viðunandi stöðugleiki fáist í hagkerfi landsins í heild. Þess vegna verður að tryggja að Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins geti leyst það hlutverk sem honum var upphaflega ætlað eða aðrar ráðstafanir verði gerðar að jafngildi þess.
Tími er að linni aðferðinni sem við höfum búið okkur til við ákvörðun fiskverðs. Það gengur ekki lengur og hefur raunar aldrei verið vit í að ákveða fiskverð án tillits til markaðsverðs afurðanna, en kalla jafnframt á gengislækkun til þess að gera verðlagsákvörðunina að forminu til raunhæfa. Gengislækkun hefur síðan leitt af sér verðlagshækkanir, sem lagðar hafa verið til grundvallar kauphækkunum launafólks, sem gert hafa fiskverðshækkun óhjákvæmilega til jöfnunar kjara sjómanna og landverkafólks. Og þannig hefur mátt taka hvern hringdansinn af öðrum. Kerfið hefur verið býsna haglega gert til slíkra nota, en nú er komið að leiðarenda. Verðákvörðunar- og sölukerfi sjávarafla og fiskafurða verður að endurskipuleggja.
Ég hef hér vikið að nokkrum þýðingarmiklum og dæmigerðum langtímaráðstöfunum án neinnar tæmandi upptalningar. En þannig verður að ráðast að orsökum verðbólgunnar einni af annarri. Það ætti að vera hægt að ná víðtækari samstöðu um ýmsar slíkar grundvallaraðgerðir, sem höfða til rökréttrar hugsunar en ekki endilega pólitískrar gerviafstöðu, ef mönnum er alvara að veita verðbólgunni viðnám.
En það blæs ekki byrlega í þeim efnum um þessar mundir. Blikur eru á nú víða á lofti og áhyggjuefnin mörg. Afleiðingar verðbólgunnar koma æ berlegar fram. Mesta áhyggjuefni okkar Íslendinga í dag, er varðar efnahagsmálin, er annars vegar að þjóðarframleiðslan á mann fer stöðugt minnkandi. Það sem á að skapa grundvöll fyrir okkar efnahagslegu framförum verður stöðugt veikara. Hins vegar er mikið áhyggjuefni að stjórnvöld skuli mæta þessu með stöðugt aukinni erlendri skuldasöfnun. Gjaldeyrisbyrði þjóðarinnar er þegar of þung miðað við útflutningstekjur. Við megum vel hugleiða, Íslendingar, að staðan hjá okkur er nú þegar orðin miklu lakari í þessum efnum en hún var á Nýfundnalandi, þegar það land glataði efnahagslegu og stjórnarfarslegu sjálfstæði af þessum sökum.
Meðan þessu fer fram leggur hæstv. ríkisstj. meiri áherslu á að firra sjálfa sig ábyrgð á því hvernig málum er komið en leita að ráðum til úrbóta. Er þá margt tínt til, sem ætlað er að til varnar megi verða. Aflabrest ber þá einna hæst í syndakvittunarregistri hæstv. ríkisstj. Þá er þess að sjálfsögðu látið ógetið, að á síðasta ári, árinu 1981, barst svo mikill sjávarafli á land að það var fjórða mesta aflaár sem sögur fara af. Álíka haldbært er sumt annað sem fært er fram til afsökunar. Einskis er látið ófreistað til að villa mönnum sýn. En þrátt fyrir það verður sannleikanum ekki leynt, svo augljósar eru staðreyndir þessa máls.
Enginn neitar því að við ýmsa erfiðleika er nú að etja.
En meginvandinn í viðureigninni við verðbólguna er sá, að ríkisstj. hefur enga heildarstefnu. Allar svokallaðar efnahagsráðstafanir ríkisstj. á þessu kjörtímabili hafa verið með sama markinu brenndar. Þar hefur ekki verið að finna neinar varanlegar ráðstafanir þar sem vegið hefur verið að rótum verðbólguvandans. Einungis hefur verið um að ræða sundurlausar bráðabirgðaráðstafanir, samhengislaust fálm án stefnu og markmiðs. Og sjaldan bregður mær vana sínum. Frv. það, sem við nú ræðum, ber þess glögglega vott.
Gráu ofan á svart bætti svo ríkisstj. á sínum tíma með því að skvetta olíu á verðbólgubálið. Það var gert með gjaldmiðilsbreytingunni. Tilgangur gjaldmiðilsbreytingarnar átti að vera að búa í haginn fyrir viðureignina við verðbólguna og viðleitni til þess að koma á stöðugleika í efnahagslífinu. Þetta átti að vera fólgið í því, að gjaldmiðilsbreytingin hefði hagstæð sálræn áhrif með því að draga úr þeim verðbólguhugsunarhætti sem sílækkandi verðgildi íslensku krónunnar hafði valdið með því að grafa undan virðingu fyrir peningum og áhuga manna á að hamla gegn verðbólgunni. En forsenda þess að aukning verðgildis íslensku krónunnar hefði hin hagstæðu sálrænu áhrif sem ætlast var til hlaut að vera sú, að aðgerðin væri liður í víðtækri heildarstefnu og framkvæmd til þess að ráða bót á verðbólgunni og koma á stöðugleika og jafnvægi í efnahagslífi þjóðarinnar. Aukning verðgildis krónunnar gat þá orðið vottur þess að slík stefna hefði verið tekin upp í efnahagsmálunum og brýning til þess að takast á við vandann af meiri einurð en áður og hefði getað þannig orðið tákn nýs tímabils í stjórn efnahagsmálanna.
Það voru allir sammála um þennan yfirlýsta tilgang með gjaldmiðilsbreytingunni. En ekki nóg með það, heldur höfðu allir verið sammála um að gjaldmiðilsbreytingin væri betur ógerð en gerð ef þessar forsendur væru ekki fyrir hendi. Ef ekki væri víðtæk stefnumótun fyrir hendi væri ókleift að sjá fyrir sálræn áhrif gjaldmiðilsbreytingarinnar. Seðlabankinn hafði m.a. lýst því yfir, að svo gæti eins vel farið að gjaldmiðilsbreytingin yrði til þess að auka vantrú manna og tortryggni, ef hún væri ekki hluti af róttækri stefnubreytingu, því að almenningur væri þá vantrúaður á framtíðarverðgildi peninganna og getu stjórnvalda til að halda verðbólgunni í skefjum.
Ríkisstj. var margoft vöruð við gjaldmiðilsbreytingunni, ef ekki kæmi jafnframt til mótun heildarstefnu í efnahagsmálunum. En ríkisstj. skellti skollaeyrum við öllum aðvörunum. Anað var út í gjaldmiðilsbreytinguna í ársbyrjun 1981 án þess að skapaðar væru forsendur fyrir þeirri ráðstöfun með mótun heildarstefnu í efnahagsmálunum. Gjaldmiðilsbreytingin var því ekki liður í víðtækri stefnumótun og framkvæmd til þess að ráða bót á verðbólgunni og koma á stöðugleika og jafnvægi í efnahagslífi þjóðarinnar. Gjaldmiðilsbreytingin varð til þess að auka á upplausnina og vantrú á gjaldmiðlinum í stað þess að treysta hann og stuðla að hjöðnun verðbólgunnar.
Það er vissulega ófagur ferill hæstv. ríkisstj. frá hvaða sjónarmiði sem á er litið. Þó væri ósanngjarnt gagnvart núv. ríkisstj. að halda því fram að ekki hafi stundum áður verið pottur brotinn í viðureigninni við verðbólguna. En áhyggjuefni er að nú skuli menn vera hættir að fyrirverða sig fyrir ávirðingar sínar, heldur þykjast menn að meiri, eins og hæstv. ríkisstj.
Það er þeim mun ömurlegra að horfa upp á ástandið í dag þar sem það er augljóst að almenningur í landinu, þjóðin sjálf, skilur og finnur að þykjustunni og sýndarmennskunni verður að linna. Fólkið veit að ekki verður ráðið fram úr vandanum nema með átaki og áreynslu. Almenningur er reiðubúinn að taka á sig byrðar, ef þær byrðar eru réttlátlega á lagðar og ef það er einhver möguleiki á að þær byrðar sem almenningur tekur á sig skili einhverjum árangri þegar fram í sækir, þ.e. að aðgerðirnar séu liður í einhverri heildarstefnu.
Með frv. því sem við nú ræðum er enn á ný höggvið í sama knérunn. Það eru lagðar byrðar á almenning óréttlátlega og án þess að von sé til að þær fórnir geti borið árangur. Það er í ljósi þessarar staðreyndar sem verður að taka á því frv. sem við ræðum hér. Það er borin von að það geti orðið fugl eða fiskur.
Það er nú fokið í flest skjól fyrir hæstv. ríkisstj. Á berangri svika og blekkinga er nú hana að finna afvelta og ráðvillta. Það eina sem ríkisstj. er í raun og veru fær um er að veita þjóðinni þá þjónustu sem nú er mest um vert, en það er að segja þegar í stað af sér.