22.11.1982
Efri deild: 11. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 727 í B-deild Alþingistíðinda. (473)
85. mál, efnahagsaðgerðir
Salome Þorkelsdóttir:
Herra forseti. Í dag er 22. dagur nóvembermánaðar. Fyrir þremur mánuðum, eða 21. ágúst s.l. gaf hæstv. ríkisstj. út brbl. um efnahagsaðgerðir. Þessi brbl. hafa orðið tilefni til mikillar umræðu, þó ekki hér á hinu háa Alþingi því að hæstv. ríkisstj. hefur komið í veg fyrir það með því að draga í lengstu lög að leggja frv. fram til þinglegrar umfjöllunar. Þetta leiðir hugann að því með hvaða hætti brbl. eru yfirleitt sett. Það virðist nefnilega vera að þróast í það, að ríkisstjórnir, sem hafa ekki nægilegan þingstyrk til að koma málum sínum í gegnum þingið, sbr. núv. hæstv. ríkisstj., geti setið og stjórnað landinu með brbl. og sent þm. heim ef þeir eru til óþæginda eða með eitthvert múður. Þannig hefur þetta verið í raun í tíð hæstv. ríkisstj.
Þegar brbl. voru sett í ágúst s.l. gerði stjórnarandstaðan kröfu um að fá að koma til þings strax og ræða málin. Því var ekki sinnt. Í þess stað lýstu hæstv. ráðherrar furðu sinni á andstöðu stjórnarandstöðunnar við brbl. og töldu það óábyrga afstöðu. Ekki nóg með það. Hér í dag talaði hæstv. viðskrh. Tómas Árnason og í tilraunum sínum við að réttlæta aðgerðarleysi hæstv. ríkisstj. í efnahagsmálum reyndi hann einnig að beina athyglinni að Sjálfstfl. og sagði það Sjálfstfl. til skammar að taka afstöðu á móti brbl. Betra hefði verið að taka Framsfl. til fyrirmyndar. Þetta var stórmerkilegt að hlýða á.
Hv. 3. þm. Norðurl. e. upplýsti hæstv. ráðh. um muninn á efnahagsaðgerðunum 1978 og þeim sem hér eru til umr. Ég ætla því ekki að endurtaka þær efnislega til að tefja ekki þessar umr. frekar. En ég get fullvissað hæstv. viðskrh. um að jafnvel þó að honum gangi gott eitt til með ráðleggingum sínum þarf Sjálfstfl. ekki á ráðgjöf Framsfl. að halda um það hvernig hann skuli haga sér í afstöðu til einstakra mála, enda hafa yfirlýsingar einstakra ráðh. Framsfl. að undanförnu gefið til kynna að þeir teldu málum betur komið nú ef þeir hefðu farið að okkar ráðum í ágúst s.l.
Ef ég man rétt var ein ástæðan fyrir því að ekki mætti kalla þing saman strax sú, að það væri allt of kostnaðarsamt. Ég hef aldrei heyrt nánari skýringu á því hver þessi mikli kostnaðarauki hefði orðið. Mér sýnist að það sé ekki alltaf verið að hugsa um kostnaðinn hjá ríkisstj., að ég ekki tali um einstök rn.
Það voru vissulega aðrar aðstæður í þjóðfélaginu þegar heimild til útgáfu brbl. var sett í stjórnarskrána árið 1874. Þá kom Alþingi saman annað hvert ár og sat í tvo mánuði, og þá var það konungur sem stjórnaði með útgáfu brbl., ef nauðsyn bauð svo, á milli þinga. Nú er öldin önnur, sú tuttugasta. Þingið situr árlega 7–8 mánuði. Samgöngur eru með ólíkum hætti, menn geta komið til þings með stuttum fyrirvara þeirra vegna. Menn skjótast á fundi milli landshluta og jafnvel milli landa í eina dagstund eða svo. Þm. eru á launum allt árið og eru því ekkert of góðir til að koma til þings á afbrigðilegum tíma eða með stuttum fyrirvara, þegar svo mikið liggur við eins og útgáfa þessara brbl. gaf tilefni til. Ég er hrædd um að það þurfi betri rökstuðning en þann, að kostnaðarauki hafi ráðið þarna ferðinni.
Brbl. hafa vissulega orðið tilefni til mikillar umr. manna á meðal, ekki síst vegna þeirrar yfirlýsingar hæstv. ráðh. ríkisstj. að stjórnarandstaðan sé óábyrg í afstöðu sinni. Það lá meira að segja við borð að um tíma hafi tekist að fá fólk til að trúa þessum áróðri. En það hefur nú breyst sem betur fer. Menn hafa áttað sig á að hér er um áróður að ræða, sem átti að beina athyglinni frá innbyrðis sundurlyndi á stjórnarheimilinu, þar sem hver höndin er upp á móti annarri, ekki á milli flokka eingöngu um fyrirhugaðar aðgerðir, heldur einnig innbyrðis hjá bæði Framsfl. og Alþb.
Það væri e.t.v. ekki úr vegi að rifja upp aðdragandann, þegar hæstv. ríkisstj. sat á fundum nótt og dag á s.l. sumri til að reyna að bræða saman einhver úrræði sem allir gætu sætt sig við. Niðurstöðuna höfum við hér á borðum, hálfkák. Á meðan urðu bankar að loka á öll gjaldeyrisviðskipti og bíða í fleiri daga eftir því að Alþb. ráðherrunum tækist að koma vitinu fyrir sína menn, sem ekki voru alveg tilbúnir að éta allt ofan í sig sem sagt og gert var 1978 undir svipuðum kringumstæðum. Þá var það kallað af þessum sömu mönnum „kauprán“. Nú eru það „nauðsynlegar efnahagsaðgerðir“, eins og hæstv. ráðh. og formaður Alþb. sagði í gærkvöldi í sjónvarpsviðtali, og bætti við að enginn gerði að gamni sínu að skerða kjör launþega, en þetta væru nauðsynlegar ráðstafanir.
Já, þau eru vissulega byggð víða glerhúsin þessa síðustu daga og oft hefur maður heyrt brothljóð við steinkast hér undanfarið á hinu háa Alþingi. Skemmst er að minnast s.l. fimmtudags í atkvgr. um ræðutíma í væntanlegum útvarpsumræðum í Sþ., þegar hv. þm. Karl Steinar Guðnason talaði um að þm. Alþfl. vildu gjarnan heyra ráðh. ríkisstj., sem tilheyra Sjálfstfl., tala sem lengst til að fá sem best fram sundurlyndið innan þess flokks. Þá buldi við brestur. Næstur steig svo í ræðustól utan dagskrár einn af þm. Alþfl. og tilkynnti úrsögn úr Alþfl. (Gripið fram í: Hann var ekki þm. ...) Hann var þm. Alþfl. en tilkynnti úrsögn sína á þessum umrædda fundi í Sþ. En þar er að sjálfsögðu ekkert ósamkomulag eða klofningur, allt í sátt og samlyndi eða hvað? Það hefur legið alveg á hreinu frá upphafi þessa stjórnarsamstarfs að Sjálfstfl. er í stjórnarandstöðu, að undanskildum þremur þm. og núv. ráðherrum, sem voru með í að mynda þá hæstv. ríkisstj. sem nú situr. Þetta eru hreinar línur og þetta veit alþjóð.
Herra forseti. Það mætti tala lengi um þessi mál. En bæði er það að hv. þm. Sjálfstfl., sem hér hafa talað á undan mér, hafa gert ítarlega grein fyrir okkar afstöðu og svo hitt, að ég vil ekki tefja tímann með því að endurtaka það sem þeir hafa sagt. En ég vil þó minna á það að bestu rökin fyrir því að afstaða okkar sjálfstæðismanna í stjórnarandstöðu var rétt og skynsamleg, þegar við gerðum kröfu um að þing yrði kvatt saman strax í ágúst og málin rædd hér á hv. Alþingi, eru þau að sjálfir hæstv. ráðh. ríkisstj. hafa viðurkennt að það voru mistök ríkisstj. sjálfrar að fara ekki eftir þessum kröfum stjórnarandstöðunnar á sínum tíma. Varla getur það talist óábyrgt þegar hæstv. ráðherrar innan ríkisstj. segja að eftirmæli þessarar ríkisstj. verði þau að hún hafi gert of litið — of seint. Þarf frekar vitnanna við? Þetta eru ekki orð stjórnarandstöðunnar. Þetta eru þeirra eigin orð sem í hæstv. ríkisstj. sitja.