22.11.1982
Efri deild: 11. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 729 í B-deild Alþingistíðinda. (474)

85. mál, efnahagsaðgerðir

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Ég mun ekki verða langorður fremur en vant er. Það er búið að ræða mikið um þessi brbl. og þau eru reyndar búin að vera í umræðu meðal landsmanna í al(t sumar eða frá því að ríkisstj. sýndi Alþingi þá óvirðingu að setja þessi lög sem hún þurfti ekki að setja þá. Hún átti þess kost að kalla saman þm. og láta reyna á það hvort vilji væri til að setja þessi lög. Það hefði verið eðlilegast að gera svo, og reyndar sér formaður Framsfl. nú eftir því að svo skyldi ekki hafa verið gert.

Í þessum umr. situr það eitt eftir, sem er reyndar kjarni málsins, að það er ráðist á launþega, það er klipið af launum verkafólks. Er það í þrettánda sinn sem svo er gert í tíð þessarar ríkisstj. Verkamannasambandið hefur komið saman, rætt þessi mál og mótmælt þessari kjaraskerðingu. Alþýðusambandið hefur og gert það. Hvergi hjá launþegasamtökunum hefur ríkisstj. fengið samþykki við þessum árásum sínum á laun láglaunafólks.

Það er alveg hrikalegt hversu gengið er í það að taka af launum fólks hvað eftir annað án þess að gera nokkuð annað. Þess vegna koma þessi lög ekki til með að leysa neitt. Þau munu skapa sprengingu þegar frá líður, erfiðleika, því að menn munu ekki una því að það eitt sé gert að ráðast á launin.

Þessum lögum fylgdu hástemmdar yfirlýsingar, og reyndar munu ýmsir stjórnarsinnar hafa sett ýmis skilyrði og hótað að fylgja ekki lögunum nema þau væru uppfyllt. Það bólar ekki á frumvörpum um þau mál sem lofað hefur verið. Mér dettur í hug t.d. 10. liður og spyr forsrh. um hann. Þar segir: „Undirbúin verði löggjöf um að stjórnendur ríkisstofnana, ráðuneyta og ríkisbanka verði framvegis ráðnir til fimm ára í senn.“ Hefur eitthvað verið í þessu gert? (Gripið fram í.) Það er ekki komið fram frv. og þess vegna spyrjum við, enda á líka eftir að tryggja það að ríkisstj. sé samþykk því frv. ef það er tilbúið. Í 17. lið segir: „Ríkisstj. mun efna til viðræðna við viðskiptabanka og sparisjóði um lengingu lána til atvinnuvega og húsbyggjenda.“ Hefur eitthvað verið í þessu gert? Hvar standa þau mál? Og 18. liður: „Stefna skal að aukinni hlutdeild starfsmanna og meðábyrgð í stjórnum fyrirtækja og stofnana.“ Hvað hefur verið í því gert? Auðvitað hefur ekkert verið í þessu gert. En gaman væri að fá að vita þó hvernig þetta stæði og hvort menn hugsa sér að gera eitthvað í þessu.

Svo langar mig til þess að spyrja hvort það sé meining ríkisstj. að afgreiða þetta frv. fyrir 1. des. eða láta það ógert. Það er alveg greinilegt að hér í Ed. verður ekki staðið í vegi fyrir því að málið fái þá afgreiðslu sem eðlileg er. Við Alþfl.-menn erum á móti þessu frv. og munum að sjálfsögðu greiða atkv. gegn því. Hugsanlegt er að allir sjálfstæðismenn, sem eru utan ríkisstj. muni einnig gera það, en það er svo sem ekki ljóst. En þegar málið kemur til Nd. verður kannske nokkrum erfiðleikum bundið fyrir ríkisstj. að fá þetta samþykkt. Eftir því sem stendur í dagblöðum hafa sumir stuðningsmenn stjórnarinnar hlaupist á brott og þykjast ekki styðja þetta frv. Það er því nauðsynlegt að láta á það reyna hvort svo verður eða ekki.

Hv. 4. landsk. þm. vék að því að óeining væri í Alþfl. Ég get glatt hana með því að svo er ekki. Það hefur einn þm. okkar ákveðið að fara aðrar leiðir. Hann er ekki í þingflokknum, hefur sagt sig úr honum. Hins vegar eru hvers konar óróabelgir inni í þingflokki Sjálfstfl. og það er ekkert um það vitað enn hvernig fer í atkvgr. um þetta frv. Ég get sagt frá því að fyrir nokkru var ég að ræða við mann suður með sjó. Við ræddum um þessi brbl. og hugsanleg úrslit í atkvgr. Þá sagði maðurinn: „Ja, það er ekkert um það að vita hvernig það fer, því að spurningin er hvaða íhaldsmaður verður keyptur næst.“ Maðurinn hefur sjálfsagt þessa skoðun vegna þess að hrossakaup hafa allmikið verið stunduð meðal þessara flokksmanna. Og væntanlega verða þau gerð áfram.

Þau lög sem hér eru til umr. eru mjög svipuð því sem gert var 1978. Þess vegna ætti Sjálfstfl. að geta samþykkt þau eins og hæstv. viðskrh. nefndi hér áðan. Það er ástæða til að velta því fyrir sér hvort menn, sem standa í atvinnurekstri og telja allt vera á hausnum hjá sér og eru jafnframt þm., muni greiða þessu atkv. eða ekki. Þetta er spurning sem ástæða er til að velta fyrir sér þegar þetta frv. er nú til umr. En forsrh. spyr ég að því, hvort meiningin sé að afgreiða þessi lög fyrir 1. des. og svo hvenær sé að vænta þeirra frumvarpa sem heitið er í loforðalista ríkisstj.