23.11.1982
Sameinað þing: 20. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 794 í B-deild Alþingistíðinda. (512)
88. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Góðir hlustendur. Hér er til umr. vantrauststill. á ríkisstj., borin fram af hv. þm. Alþfl., sem þó hefur fækkað um einn síðan hún var lögð hér fram. Ríkisstj. hefur ástæðu til að fagna þessum till.-flutningi og umr. um hana. Hér mun koma í ljós sundrung og úrræðaleysi stjórnarandstöðunnar og sú staðreynd að ríkisstj. styðst við meiri hl. hér á hv. Alþingi.
Vantrauststill. er, eins og alþjóð mun kunnugt, sprottin af þeim skruðningum og kvikuhlaupum sem nú eiga sér stað innan Alþfl., þar sem forustumenn berast nú á banaspjót í prófkjörum sem taka á sig hinar kynlegustu myndir. Höfundur hins nýja stíls frá 1978, hv. þm. Vilmundur Gylfason, er reyndar hlaupinn fyrir borð, en fyrrv. keppinautur hans um þingsæti í Reykjavík, hv. þm. Jón Baldvin Hannibalsson, brosir nú breitt með eiginkonunni upp á ameríska vísu á Broadway. Slík er eymd og umkomuleysi Alþfl. og hlýtur að renna þeim til rifja er minnast fyrri tíðar þess flokks, sem tók á móti kreppuboðum 4. áratugarins af myndugleik undir forustu Jóns Baldvinssonar, Héðins og Finnboga Rúts.
Sjálfstæðismenn í stjórnarandstöðu höfðu vit á að auglýsa ekki sundurlyndi sitt með jafnafdráttarlausum hætti og létu formanni Alþfl. eftir hlutverk Ketils skræks, sem hrökk frá viðræðum við ríkisstj. á hælana á Skugga-Sveini Sjálfstfl. En einnig hjá Íhaldinu geisar nú prófkjörsslagur ofan á allt annað sundurlyndi, sem upp tekur hugina og byrgir sýn til málefna. Það er vissulega alvöruefni þegar svo er komið hjá þeim sem ættu að veita ábyrga stjórnarandstöðu og engin ástæða er til þess fyrir okkur, sem aðild eigum að ríkisstj., að kætast yfir slíku, — síst nú þegar á reynir í þjóðmálum og við margháttaða og óvænta erfiðleika er að fást.
Hin sundurleita hjörð stjórnarandstöðunnar lætur svo sem hún vilji koma ríkisstj. frá. Ég held að það dyljist hins vegar engum að hér eru á ferðinni svokölluð látalæti. Stjórnarandstaðan vill forðast í lengstu lög að axla ábyrgð eða eiga hlutdeild í því að leysa erfiðleika sem við er að fást. Það hefur komið berlega í ljós síðustu vikur hér á hv. Alþingi og í þeim viðræðum sem ríkisstj. efndi til við forustumenn stjórnarandstöðunnar til að ræða um þinghald í vetur og afgreiðslu brýnustu mála. Hvernig brugðust forustumenn stjórnarandstöðunnar við? Þeir komu að vísu og létu mynda sig sem snöggvast, en strax og talið barst að því að taka sameiginlega á vandanum voru þeir hlaupnir á dyr, - fyrst Geir síðan Kjartan. Nauðsynlegt er að þjóðin átti sig á þessum loddaraleik stjórnarandstöðunnar, sem vafalítið verður framhald á næstu mánuði.
Á mörgum sviðum hefur ríkisstj. náð verulegum árangri, þrátt fyrir óhagstæðar ytri aðstæður. Fjölmörgum þýðingarmiklum málum, sem um var samið við myndun hennar, hefur verið komið í höfn og önnur eru í undirbúningi. Ef ekki hefðu komið til óviðráðanleg áföll, svo sem aflabrestur á loðnu og samdráttur þorskafla, svo og áhrif alþjóðlegrar kreppu með sölutregðu og verðfalli á þýðingarmiklum afurðum, væri hér bjart fram undan. Þau veðrabrigði urðu ekki séð fyrir, en nú þegar að herðir verða menn að horfast í augu við veruleikann og grípa til viðeigandi ráðstafana. Stjórnvöld landsins hljóta þar að hafa forustu eða víkja frá ella.
Ríkisstj. tók sínar ákvarðanir um nauðsynlegustu aðgerðir í ágústmánuði og Alþb. átti sinn hlut að mótun þeirra. Það var mat Alþb., að með heildarhagsmuni í huga og hlut launamanna sérstaklega bæri flokknum að standa að þeirri málamiðlun, sem tókst milli ríkisstjórnaraðilanna, og Alþb. mun áfram taka afstöðu til mála út frá sömu forsendum.
Það er ekki líklegt til vinsælda í bráð að þurfa að draga saman segl og leggja á byrðar, en sé það óhjákvæmilegt skiptir mestu hvernig að slíku er staðið og þar sé gætt réttlætis og jafnaðar svo sem frekast er kostur. Það hefur ríkisstj. haft að leiðarljósi í efnahagsráðstöfunum fyrr og síðar, m.a. við setningu brbl. í ágúst s.l.
Alþb. ætlar hvorki að eigna sér alla ávinninga úr núverandi stjórnarsamstarfi né axla eitt ábyrgð á því sem miður hefur tekist. Slíkt væri í senn óraunsætt og ótrúverðugt þegar um samsteypustjórn þriggja ólíkra afla er að ræða. En Alþb. hefur farið með forustu í mikilvægum málaflokkum innan þessarar ríkisstj. og er á þeim sviðum ábyrgt öðrum fremur.
Á sviði félags- og heilbrigðismála hefur verið náð fram fjölmörgum réttindamálum og lögfest atriði almenningi til hagsbóta sem ekki verða auðveldlega aftur tekin. Frv. um lengingu orlofs er nýjasta dæmið um hvernig vinveitt stjórnvöld geta flýtt fyrir framgangi hagsmunamála almennings.
Meðferð ríkisfjármála hefur þótt takast með þeim ágætum undir forustu Ragnars Arnalds fjmrh. að andstæðingar eiga erfitt með að finna gagnrýni sinni stað. Með farsælli forustu í fjmrn. og fjvn. Alþingis um árabil hefur Alþb. sýnt og sannað að það getur axlað hvaða ábyrgð sem er í stjórn landsins, þannig að til fyrirmyndar má telja.
Um iðnaðar- og orkumál hefur ekki ríkt neinn flóðafriður hér á hv. Alþingi undanfarin ár, a.m.k. ekki í orði. Mér hefur ýmist verið legið á hálsi fyrir kyrrstöðu og stöðnun, lokuð vinnubrögð, einstrenging og hroka eða þá of mikil umsvif, lagabálka og upplýsingar til Alþingis sem kennt hefur verið við pappírsflóð. Það væri skemmtilegt orðasafn, sem taka mætti saman úr ræðum hv. stjórnarandstæðinga um þau efni, og gæti sá listi eflaust enst hv. forseta Nd., sem því miður er hér ekki viðstaddur, til að vefja tungu mörgum sinnum um höfuð sér, og kallar hann þó ekki allt ömmu sína.
Ég hef kunnað þessum atgangi hv. stjórnarandstæðinga vel, því að á endanum hafa þeir flestir greitt atkv. með mikilvægum málum á sviði iðnaðar og orkumála og hamagangur þeirra því verið meira í orði en á borði.
Mörkuð hefur verið ný iðnaðarstefna og ný orkustefna. Erlenda stóriðjustefnan er á hröðu undanhaldi og menn átta sig nú á gildi þess að tryggja hér innlent forræði yfir öllum þáttum atvinnulífsins. Það er líklega þetta undanhald erlendu stóriðjustefnunnar sem farið hefur svo mjög fyrir brjóstið á hv. þm. Agli Jónssyni, eins og heyra mátti hér áðan, og sama neikvæða tóninn mátti lesa á síðum Morgunblaðsins fyrir réttri viku frá formanni Sambands ungra sjálfstæðismanna, Geir Haarde, varðandi íslenskt stóriðjuver, kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði, en hann á raunar sæti í stjórn þess fyrirtækis. Hann skyldi þó aldrei hafa fengið línuna frá hv. 11. landsk. þm.
Í þeirri iðnaðarstefnu sem mótuð hefur verið í tíð núv. ríkisstj. hefur sérstök áhersla verið lögð á fjölbreytta iðnþróun, bæði almennan iðnað þar sem reynir á frumkvæði og íslenskan stóriðnað, m.a. með orkulindir landsins að bakhjarli. Ástæða er hins vegar til að minna á, að til þess að slík fjölþætt iðnþróun verði að veruleika og nái til allra landshluta þarf mun víðtækari og öflugri pólitískan stuðning innan allra stjórnmálaflokka en hingað til til að tryggja vöxt og viðgang íslensks iðnaðar, og undanskil ég þá ekki úrvinnslu úr sjávarafla eða landbúnaðarafurðum.
Margt hefur tekist vel í sambandi við orkumál og m.a. að ná fram samningum um eina landsvirkjun, þrátt fyrir harðvítuga andstöðu íhaldsaflanna. Markvisst hefur verið unnið að verðjöfnun á orku. Mikill árangur hefur náðst í verðjöfnun á raforku til heimilisnota og með landsvirkjunarsamningnum s.l. sumar er tryggt sama heildsöluverð á raforku frá byggðalínukerfinu um land allt. Fjárhagsleg staða Landsvirkjunar er því miður afar bágborin, þrátt fyrir að fyrirtækið hafi fengið hækkanir á gjaldskrá til almenningsveitna langt umfram aðrar verðlagshækkanir á undanförnum árum. Hefur af þessum sökum orðið að grípa til þess að greiða niður raforku til húshitunar til að draga úr sárasta misrétti í upphitunarkostnaði. Sú staða er fyrst og fremst til komin vegna raforkusölusamningsins við álverið í Straumsvík, sem nú er knúið fast á um að fá breytt. Þau ánægjulegu umskipti hafa orðið síðustu mánuði, að allir stjórnmálaflokkar virðast nú loks einhuga um réttmæti kröfunnar um mikla hækkun á raforkuverði til ÍSALs. Sú afstaða ásamt niðurstöðum úr endurskoðun á verðlagningu á hráefnum til ÍSALs á drýgstan þátt í að nú reynir á hvort samningar geti tekist milli Alusuisse og íslenskra stjórnvalda. Hér eru hagsmunir í húfi sem varða hvert einasta mannsbarn í landinu.
Herra forseti. Góðir hlustendur. Sú vantrauststill., sem hér er til umr., mun ekki auka traust manna eða stuðning við stjórnarandstöðuna. Ríkisstj. hefur brugðist við aðsteðjandi vanda með ábyrgum hætti og nýtur enn meirihlutastuðnings hér á hv. Alþingi og vafalaust meðal þjóðarinnar. Þótt við margvíslegan vanda sé að fást í íslenskum þjóðarbúskap og nokkuð dökkt sé í álinn fram undan er engin ástæða til að æðrast. Við búum við gjöfular auðlindir í sjó og á landi og umhverfi sem margir geta öfundað okkur af. Að þessum gæðum ber okkur að hlúa, vernda þau og hagnýta með skipulegri hætti en gerst hefur til þessa. Jafnframt er verkefnið að tryggja eðlileg og réttlát hlutaskipti í þjóðfélaginu til allra starfsstétta. Slíkt á ekki og getur ekki gerst með allsherjar miðstýringu eða valdboði, heldur verður að koma til lýðræðisleg samstilling áhrifaaðila og hagsmunaaðila í þjóðfélaginu. Hin pólitísku valdahlutföll í landinu skipta hins vegar sköpum um meginstrauma þjóðmálanna. Þar ætlar Alþb. sér mikinn og vaxandi hlut, sem aðeins fæst með atfylgi fjöldans. Hinn breiði fjöldi vinnandi fólks í landinu þarf nú á öflugri pólitískum málsvara að halda en nokkru sinni fyrr. Þann málsvara er aðeins að finna í sterku og víðsýnu Alþb.