23.11.1982
Sameinað þing: 20. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 796 í B-deild Alþingistíðinda. (513)
88. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Menntmrh. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Góðir hlustendur. Oft hefur það verið réttlætanlegt að sjálfsögðu að flytja vantraust á ríkisstjórnir. Hins vegar held ég að vantraust hitti ekki í mark eins og á stendur, ekki aðeins af því að það verður augljóslega fellt í Sþ. heldur af öðrum ástæðum.
Í fyrsta lagi hefur stjórnarandstaðan ekki getu til þess að mynda stjórn þótt núverandi stjórn félli. Stjórnarandstaðan hefur ekki upp á neitt sérstakt að bjóða, enda sjálfri sér sundurþykk.
Í öðru lagi stendur svo á, að núv. ríkisstj. gerir sér fulla grein fyrir breyttri stöðu sinni og mun ekki sitja lengur en eðlilegt getur talist. Það er gert ráð fyrir alþingiskosningum snemma á næsta ári, mörgum mánuðum áður en kjörtímabilinu lýkur í desember 1983.
Í þriðja lagi er vantraust ótímabært vegna þess að ríkisstj. og Alþingi hafa „brýn verk að vinna“ svo ég noti orðalag Kjartans Jóhannssonar hér í kvöld, — verk sem allir hugsandi menn eru sammála um að ljúka verði áður en nýtt ár gengur í garð og áður en kosningar fara fram. Því verður ekki trúað fyrr en fullreynt er að stjórnarandstaðan sýni ekki fulla ábyrgðartilfinningu í sambandi við afgreiðslu fjárlaga og gildistöku brbl. Hvað þessi mál varðar eru svo miklir þjóðarhagsmunir í húfi og efniságreiningur svo óverulegur í raun og veru að þjóðin krefst þess af Alþingi, og þá fyrst og fremst af stjórnarandstöðunni, að Alþingi standi saman og láti ekki annarleg sjónarmið villa sér sýn.
Kjósendur ætlast til þess að Alþingi sýni ábyrgðartilfinningu. Þess vegna mun þjóðin krefjast þess að Alþingi ljúki helstu nauðsynjamálum sínum áður en gengið verður til kosningar, þ.e. fjárlögum fyrir árið 1983, vegáætlun og gildistöku brbl. ásamt ýmsum fylgifrv. þeirra, svo sem ákvæðum um nýtt vísitölukerfi, orlofslögum og ákvörðunum um láglaunabætur.
Herra forseti. Ég minni á að íslenskt efnahagslíf hefur orðið fyrir alvarlegum áföllum á þessu ári. Þessi áföll komu óvænt. Þau skullu yfir án nokkurs fyrirvara. Sjávarafli hefur dregist stórkostlega saman og það á bæði við um þorskafla og loðnuafla, þjóðarframleiðslan mun minnka um a.m.k. 5% á árinu, markaðir hafa verið ótryggir, verðbólgan hefur farið vaxandi og viðskiptahalli orðið geigvænlegur. Fæst af þessu getur verið ríkisstj. að kenna, a.m.k. ekki samdráttur sjávaraflans eða versnandi markaðshorfur og viðskiptakjör. Þar er um að ræða áföll sem enginn ræður við né auðvelt var að sjá fyrir.
Hinu er ekki að neita, að virkar efnahagsaðgerðir drógust allt of lengi á þessu ári og það hafa framsóknarmenn gagnrýnt. Það var mikil þörf fyrir áhrifamiklar aðgerðir þegar á fyrri hluta ársins, þegar ljóst var að samdráttur var orðinn í þjóðarframleiðslu og að hann mundi halda áfram allt árið og á næsta ári.
Ég dreg ekki dul á að það er hægt að gagnrýna ríkisstj. fyrir seinlæti í efnahagsráðstöfunum. Þær hefðu þurft að koma miklu fyrr fram en þær gerðu, eins og ævinlega var tillaga okkar framsóknarmanna. Hins vegar legg ég áherslu á að efnahagsaðgerðirnar sem ákveðnar voru í ágúst voru nauðsynlegar og koma að miklu gagni, en munu þó fyrst gagnast fyrir alvöru ef ákvæði brbl. koma til framkvæmda 1. des. og ef ríkisstj. fær aðstöðu til að koma þeim málum fram sem hún vinnur að samkv, yfirlýsingu sinni um frekari aðgerðir í efnahags- og fjármálum og kjaramálum. Þar er lögð megináhersla á að draga úr viðskiptahalla og skuldasöfnun, m.a. með því að draga úr óhóflegum innflutningi, hamla gegn verðbólgu með virkum aðgerðum og vernda hagsmuni láglaunafólks, þótt ekki verði hjá því komist að viðurkenna að kjararýrnun sé óhjákvæmileg vegna minnkandi þjóðartekna. Það er auðvitað blekking ein að hægt sé að hækka kaup almennt talað og bæta lífskjör þegar afrakstur þjóðarbúsins dregst saman.
Miðað við þau efnahagsvandræði sem nú ríkja verður einnig að draga saman seglin í einkaneyslu og ýmsum útgjöldum. Við verðum að einbeita kröftum okkar að því að draga úr viðskiptahallanum og létta skuldabyrðina og hamla gegn verðbólgu, sem er að sliga atvinnuvegina og kippa með því grundvellinum undan eðlilegum atvinnurekstri. Sífelldur taprekstur fyrirtækja er þjóðarvoði, sem getur endað með því að þjóðin glati efnahagslegu sjálfstæði sínu. En það er ekki hægt að tryggja atvinnurekstrinum góða afkomu og fjármagn til vaxtar og endurnýjunar nema vinna bug á verðbólgunni. Hún er bölvaldur heilbrigðs atvinnurekstrar.
Höfuðmarkmið góðrar ríkisstj., og það leggja framsóknarmenn ríka áherslu á, hlýtur að vera að halda uppi nægri atvinnu í landinu. Þannig sjáum við hag heimilanna borgið. En til þess að það megi takast þarf að tryggja atvinnuvegunum og einstökum fyrirtækjum öruggan rekstrargrundvöll, auk þess sem atvinnulífið þarf að vera sem fjölbreyttast. Í því sambandi verður að gæta þess að mismuna ekki atvinnugreinum eða loka augunum fyrir sérstökum vandamálum einstakra atvinnugreina eða framleiðslufyrirtækja.
Fjölþættur iðnaður hefur verið að þróast í landinu síðustu áratugi og hefur tekið við sívaxandi fjölda fólks til starfa síðustu 40–50 ár. Útflutningsiðnaður hefur vaxið hröðum skrefum síðustu 10–12 ár og sér þúsundum manna fyrir atvinnu og afkomu og aflar dýrmæts gjaldeyris. Ullariðnaður er hér sérlega mikilvægur, einnig skinnaiðnaður. Framleiðsluvörur ullar- og skinnaiðnaðarins njóta álits á erlendum mörkuðum. M.a. eru íslenskar ullarvörur þekktar á vestrænum mörkuðum beggja vegna Atlantshafs. Þrátt fyrir það eru miklir erfiðleikar í rekstri ullar- og skinnaverksmiðja. Langvarandi verðbólga ræður þar mestu, en lánamál og gengisþróun varða einnig miklu.
Ekki verður hjá því komist að taka raunsætt á vanda iðnaðarins í heild og tryggja honum betri afkomu en nú er. Þetta á að sjálfsögðu við iðnaðinn allan, en þó ekki síst við útflutnings- og samkeppnisiðnaðinn.
Herra forseti. Góðir hlustendur. Ég hef bent á að vantraust á ríkisstj. hefur ekki jákvætt gildi. Hvort tveggja er að stjórnarandstaðan hefur enga getu til þess að mynda ríkisstj. og hitt að ganga verður til alþingiskosninga svo fljótt sem verða má. Núv. ríkisstj. á ekki að sitja lengur en nauðsyn krefur, en hún á ekki heldur að fara frá í ótíma. Auk þess legg ég áherslu á að Alþingi standi saman um afgreiðslu tiltekinna nauðsynjamála, svo sem fjárlaga, vegáætlunar og brbl., áður en til kosninga kemur. Ég tel að þjóðin muni krefjast þess af Alþingi að það gangi eðlilega frá þessum málum. Verði það ekki mun stjórnarandstaðan fyrst og fremst verða kölluð til ábyrgðar.
Góðir hlustendur. Ég þakka áheyrnina. Góða nótt. Alexander Stefánsson: Herra forseti. Ágætu áheyrendur. Hvar í veröldinni gæti það annars staðar gerst að heill þingflokkur ber fram vantraust á ríkisstj. og klofnar síðan sjálfur í sundur áður en vantrauststill. kemur til umr. á Alþingi? Það hefði mátt ætla að forusta Alþfl. hefði eitthvað lært af frumhlaupinu haustið 1979, þegar flokkurinn sleit stjórnarsamvinnunni og hljóp frá mikilvægum vandamálum óleystum á versta tíma, m.a. óafgreiddum fjárlögum. Kjósendur yfirgáfu flokkinn og eins mun fara nú þrátt fyrir broslegar tilraunir formanns flokksins, sem segist vera klókur og líkir sér við fræga látna stjórnmálamenn á Norðurlöndum. Því miður fyrir Alþfl. hefur hann tapað trausti fólksins í landinu. Vilmundarævintýrið nýja bætir þar ekki um og því síður vanhugsuð vantrauststill., sem hér er til umr.
Eins og alþjóð veit var núv. ríkisstj. mynduð að undangengnum vetrarkosningum eftir brotthlaupsævintýri Alþfl. Tilurð hennar bjargaði þingræðinu eftir margra vikna árangurslausar viðræður forustumanna allra stjórnmálaflokkanna. Stefna hennar tók fyrst og fremst mið af þeim þýðingarmestu efnahagsmarkmiðum fyrir þjóðfélagið að rétta við atvinnuvegina, sem komnir voru í þrot, og tryggja með því atvinnuöryggi um allt land, jafnframt því að hamla gegn verðbólgu og efla félagslega uppbyggingu í landinu.
Ég ætla ekki að ræða hér störf hæstv. ríkisstj., en allir landsmenn viðurkenna að henni hefur tekist að halda uppi fullri atvinnu. Félagslegar og efnahagslegar framfarir hafa orðið miklar og munu létta þá baráttu sem fram undan er til að tryggja áframhaldandi framfarir og efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar.
Við Íslendingar erum háðari utanríkisviðskiptum en flestar aðrar þjóðir. Það er því mikil skammsýni og raunar þjóðarógæfa að stór hluti forustumanna og áhrifamanna þjóðarinnar virðist ekki gera sér grein fyrir né viðurkenna þá staðreynd, að kröfur um aukin lífsgæði verða að byggjast á þeirri verðmætasköpun, sem atvinnuvegir þjóðarinnar eru færir um að framleiða, og því markaðsverði, sem hægt er að fá fyrir framleiðsluna.
Um langt árabil hefur krafan um óheft frelsi í viðskiptum, fríverslun, átt miklu fylgi að fagna. Ísland er í EFTA og í viðskiptasamningum við Efnahagsbandalag Evrópu. Við njótum tollfrelsis fyrir okkar útflutningsvörur. Það er vissulega mikils virði. En í staðinn verðum við að brjóta niður tollmúra hjá okkur fyrir frjálsan innflutning frá þessum þjóðum með þeim afleiðingum að samkeppnisiðnaður okkar hefur í mikilli verðbólgu ekki viðráðanlegan rekstrargrundvöll. En margvísleg innflutningsverslun blómgast og gjaldeyriseyðslan er of mikil. Staða þessara mála er eitt hið mesta áhyggjuefni fyrir alla sem vilja hugsa í alvöru um þessi mál. Það fær engin þjóð staðist að auka innflutning um 6% á sama tíma og útflutningur dregst saman um 17%.
Öllum landsmönnum er ljóst að hér er alvara á ferðum. Það verður að spyrna við fótum um sinn, beita varnaraðgerðum. Viðnámsaðgerðir ríkisstj., sem felast í brbl. sem taka gildi 1. des. n.k., eru lífsnauðsyn í þessari stöðu. Þær ráðstafanir, sem í brbl. felast og þeim fylgifrv. sem þeim eiga að fylgja, gera mögulegt að afgreiða fjárlög 1983, hamla gegn vaxandi verðbólgu og byggja upp vörn gegn atvinnuleysi. Þjóðin vill að stjórnmálamenn láti þjóðarheill ganga fyrir persónulegum vígaferlum. Þjóðin þarfnast sterkrar samstöðu um róttæka viðnámsog uppbyggingarstefnu. Það verður að bregðast hart við af ábyrgð og festu til að bægja frá atvinnuleysi. Við framsóknarmenn leggjum því áherslu á algeran forgang atvinnumála á næstu misserum undir kjörorðinu: Störf fyrir alla, Ísland án atvinnuleysis.
Í umr. hér á hv. Alþingi og í ýmsum fjölmiðlum hafa komið fram furðulegar kenningar gegn höfuðatvinnugreinum þjóðarinnar, sjávarútvegi og landbúnaði. Það er rík ástæða til að standa sterkan vörð um þessa atvinnuvegi. Hver getur mótmælt því að íslenskur sjávarútvegur hefur verið er og verður meginforsenda þjóðartekna og góðra lífskjara? Afköst hans þarf því að auka og efla. Og hver vill mæla gegn því að íslenskur landbúnaður hefur verið og er grundvöllur byggðar í landinu og ómetanlegur fyrir afkomu þjóðarinnar? Hann skapar öryggi með því að framleiða mest af þeim matvælum sem þjóðin þarfnast. Það eitt er mikilvæg trygging fyrir sjálfstæði hennar. Hann sparar gjaldeyri og leggur til mikilvæg hráefni til iðnaðar og vinnsla úr vörum landbúnaðarins er ómissandi atvinnugjafi fjölmargra smærri og stærri byggðarlaga hér á landi. Þar fyrir utan hefur landbúnaður margháttað félagslegt og menningarlegt gildi.
Um iðnaðaruppbyggingu hér á landi eru allir sammála sem betur fer. Það er framtíðin.
Stefna okkar framsóknarmanna hefur allt frá því að Framsfl. var stofnaður verið framfarir um landið allt. Af þessu hefur íslensk byggðastefna mótast og þróast. Samvinnuhreyfingin hefur verið eitt sterkasta aflið í að framfylgja þessari stefnu. Ég þarf ekki að ræða hér árangur. Um það talar skýru máli hin fjölþætta uppbygging um land allt. Fiskvinnslustöðvar, glæsileg fiskiskip, vinnslustöðvar landbúnaðarins og ýmis iðnfyrirtæki.
Öflug félagsmálauppbygging hefur fylgt þessari þróun. Skólar, heilbrigðisstofnanir, samgöngumannvirki. Við leggjum áherslu á framhald þessarar stefnu.
Við viljum tengja saman þéttbýli og dreifbýli og auka og efla samvinnu milli byggða, efla sjálfstæði byggðanna. Við leggjum sérstaka áherslu á vegamál og undirstrikum gildi þeirrar samstöðu sem náðist hér á Alþingi milli allra stjórnmálaflokkanna um langtímastefnu í vegamálum. Þetta er forgangsverkefni, eitt stærsta byggðamálið, sem þjóðin er öll sammála um og gerir kröfu til að fylgt verði fram með auknum framkvæmdum í varanlegri vegagerð.
Ég nefni lagningu sjálfvirks síma. Með lögum er tryggt að sjálfvirkur sími verði kominn til allra byggða landsins innan þriggja ára.
Stórstígar framfarir og uppbygging hafa átt sér stað í heilbrigðiskerfinu og á tiltölulega fáum árum hafa verið byggð sjúkrahús og heilsugæslustöðvar. Þessu ber að fagna um leið og leggja ber áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir í heilbrigðismálum og aukna heilsuvernd. Þessi málaflokkur er fyrirferðarmestur í útgjöldum ríkis og sveitarfélaga. Taka þarf fjármögnunarkerfi sjúkrastofnana í landinu til gagngerðrar endurskoðunar og efla stórlega eftirlit og ráðgjöf í rekstri þeirra. Í dag er of mikil sjálfvirkni í þessum mikilvæga málaflokki.
Sem félagshyggjuflokkur leggjum við áherslu á skynsamlega lausn húsnæðismála, ekki síst vegna unga fólksins. Við viljum hærri lán og lengri lánstíma. Við viljum efla stuðning við málefni fatlaðra og aldraðra og taka upp sterka fjölskyldupólitík, fjölskylduvernd. Við leggjum áherslu á að innan fjölskyldunnar fer fram sá hluti uppeldisins sem hvað mestu máli skiptir. Þess vegna þarf til að koma umbótastefna sem skapar aðstæður fyrir fjölskylduna til að lifa í samræmi við nýtt og breytt gildismat.
Herra forseti. Góðir hlustendur. í örstuttu máli hef ég leitast við að draga upp viðhorf og skoðanir okkar framsóknarmanna til ástands í þjóðmálum og stefnumarkandi aðgerðir. Það sem í dag skiptir höfuðmáli er að ná víðtækari samstöðu um að ráðast gegn verðbólgunni og tryggja afkomu atvinnuveganna og um leið atvinnuöryggið í landinu. Við verðum að auka sparnað og draga úr ríkisútgjöldum. Við verðum um sinn að draga úr óþarfa innflutningi. Við verðum að auka kaup á innlendum vörum og framleiðslu. Við verðum að vinna markvisst að því að auka og efla útflutningsframleiðslu og þar með útflutningstekjur. Við eigum óbeislaða orku til framfara í okkar landi. Mál dagsins er krafa þjóðarinnar til stjórnmálamanna og forustumanna hagsmunaaðila í landinu um að taka höndum saman um farsæla lausn þjóðmála á erfiðum tímum og tryggja þar með lífskjörin í landinu. Samþykkt brbl. og fylgifrumvarpa, er þeim eiga að fylgja, skynsamleg meðferð og afgreiðsla fjárl. er nærtækasta verkefnið sem bíður alþm.
Þessi till. um vantraust á þskj. 90 leysir engan vanda— ekki einu sinni Alþfl.