24.11.1982
Neðri deild: 12. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 841 í B-deild Alþingistíðinda. (544)
16. mál, þingsköp Alþingis
Baldur Óskarsson:
Herra forseti. Ég er einn af þeim mönnum sem tel að Alþingi ætti að taka upp í miklu ríkara mæli eftirlits- og rannsóknarstarf í þjóðlífinu, bæði með framkvæmdavaldinu og stofnunum í þjóðfélaginu, og þá ekki síður ýmsum stórfyrirtækjum sem eru hér starfandi í landinu. Ég er þess vegna fylgjandi þeirri hugsun sem fram kemur í þessu frv.
Ég held að við ættum aðeins að staldra við og átta okkur á því, að það eru ýmsar stofnanir í þjóðlífinu sem hafa á undanförnum árum þanist út eins og gorkúlur. Nægir í því sambandi að nefna bankana, Seðlabankann alveg sérstaklega, Framkvæmdastofnun og slíkar stofnanir. Það er hin fyllsta ástæða til að hafa eftirlit með slíku. Það er líka sjálfsagt að Alþingi hafi mun virkara eftirlit með ýmsum stórfyrirtækjum og hringum hér í landinu sem hafa einokunaraðstöðu á sínu sviði. Ég nefni fyrirtæki eins og Flugleiðir og Eimskip. Ég nefni Íslenska aðalverktaka o.s.frv. Og það er auðvitað sjálfsagt að þessar eftirlitsnefndir geti kallað fyrir sig stjórnendur þessara fyrirtækja og fylgst nákvæmlega með þeim rekstri sem þar fer fram. Við skulum gera okkur grein fyrir því, að við gefum þessum fyrirtækjum ákaflega mikið vald, sérstaklega þeim sem eru með algera einokun á sínu starfssviði, og það er þess vegna nauðsynlegt að þjóðin fái að vita nákvæmlega hvað þar fer fram. Og vitanlega er enginn aðili betur til þess fallinn en Alþingi að hafa slíkt eftirlit með höndum. Ég er þess vegna fylgjandi þeirri hugsun sem fram kemur í þessu frv.