25.11.1982
Sameinað þing: 21. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í B-deild Alþingistíðinda. (568)
44. mál, endurreisn Reykholtsstaðar
Ingólfur Guðnason:
Herra forseti. Hér er til umr. þáltill. um endurreisn og uppbyggingu Reykholtsstaðar í Borgarfirði. Ég kem hér upp til að tjá mig í verulegum atriðum samþykkan þessari þáltill. En það sem dró mig þó fyrst og fremst upp hingað er það, að mig langar að vekja athygli á, þar sem rætt er m.a. í þessari uppbyggingu um skólann í Reykholti, að það eru til fleiri héraðsskólar á landinu, sem hafa sínu hlutverki að gegna, en Reykholtsskóli, þó að ég ætli á engan hátt að bregða fæti fyrir hann.
Hér kom fram áðan að vilyrði hefðu verið gefin af menntmrn. um uppbyggingu. Á 40 ára afmæli skólans 1971 var gefið veisluloforð um sérstaka uppbyggingu Reykholtsstaðar. Það veislufyrirheit var efnt og því miður fór það þannig, að það var á kostnað annarra héraðsskóla í landinu. Ég er meðmæltur uppbyggingu Reykholtsstaðar og þar á meðal Reykholtsskóla, en ég tel það ekki alveg nógu sannfærandi leikreglur að hér sé borin upp sérstök þáltill. um uppbyggingu eins héraðsskólans ef það á að koma niður á öðrum héraðsskólum í landinu. Ég er því fyllilega sammála að uppbygging Reykholtsskóla verði einhvers konar sérverkefni, ef aðrir héraðsskólar í landinu muni ekki líða fyrir þá uppbyggingu sem þessi þáltill. gerir ráð fyrir. Það var þetta, herra forseti, sem ég ætlaði að segja um þessa þáltill.
Það segir svo í grg.: „Reykholt er í huga fólks, jafnt Íslendinga sem annarra þjóða manna, helgur staður vegna þeirrar andans stórvirkja sem þar voru unnin.“ Það er ástæðulaust að minnast þess að þar var einn mesti andans maður landsins veginn.