29.11.1982
Neðri deild: 13. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 869 í B-deild Alþingistíðinda. (583)
20. mál, skipan opinberra framkvæmda
Flm. (Birgir Ísl. Gunnarsson):
Herra forseti. Ég endurflyt hér ásamt hv. 10. þm. Reykv. frv., sem við höfum flutt á þremur undanförnum þingum, um breytingu á lögum nr. 63/1970 um skipan opinberra framkvæmda. Frv. þetta miðar að því að tryggja betur en nú er gert að sú meginregla, sem upphaflega átti að gilda um opinberar framkvæmdir, að þær yrðu að jafnaði unnar samkv. tilboði á grundvelli útboðs, verði betur tryggð en núgildandi löggjöf gerir.
Með lögum um skipan opinberra framkvæmda frá 1970 voru sett í ákvæði lög um að verk skuli að jafnaði unnið samkv. tilboði á grundvelli útboðs. Þó var heimilt að víkja frá þessu ef verk væri þess eðlis eða aðstæður slíkar að öðru leyti, að útboð teldist ekki mundu gefa góða raun, en þá þurfti að fá umsögn samstarfsnefndar um opinberar framkvæmdir.
Þegar skoðuð er grg. með þessu frv., sem á sínum tíma var lagt fram, kemur þar m.a., með leyfi forseta: „Frv. gerir ráð fyrir að sem flest verk á vegum hins opinbera verði unnin á útboðsgrundvelli og tryggt verði samræmt bókhald, þannig að samanburður kostnaðar verkanna fáist.“ Í athugasemdum við 13. gr. frv. sagði: „Greinin hefur að geyma stefnuyfirlýsingu um það, að opinberar framkvæmdir skuli að jafnaði unnar eftir útboði, þótt gert sé ráð fyrir undantekningum eftir eðli verks eða öðrum ástæðum“.
Samkv. þessu held ég að það fari ekkert milli mála að það var meining löggjafans á sinum tíma að það ætti að vera meginreglan að verk opinberra stofnana yrðu unnin samkv. útboði. Í reynd hefur þetta þó orðið nokkuð á annan veg.
Ég hef nokkrum sinnum spurt hæstv. samgrh. að því, hvernig hagað sé útboðum nokkurra ríkisstofnana sem undir hann heyra, þ.e. Vegagerð ríkisins, Hafnamálastofnun og flugmálastjórn. Í grg. með þessu frv. eru saman dregin helstu atriðin í svörum hans og ég skal ekki endurtaka þau hér, en af þeim má sjá að því fer fjarri að þessi meginregla laganna hafi verið framkvæmd. Það má segja að það sé undantekning frekar en meginregla að útboð sé framkvæmt því að svo mikill minni hluti verka hjá þessum stofnunum er unninn samkv. útboði, þó að það sé misjafnt eftir stofnunum og greinilega misjafn áhugi hjá hinum ýmsu stofnunum að fara þessa leið.
Það hefur komið fram að lagagrundvöllur fyrir því að víkja svo frá lögunum sem raun ber vitni er að mati þessara stofnana fólginn í því að í 3. mgr. 21. gr. gildandi laga segir svo: „Heimilt er að fela einstökum ríkisstofnunum umsjón nánar skilgreindra flokka opinberra framkvæmda, enda hafi þessar stofnanir aðstöðu til að annast þetta verkefni“.
Það er þessi grein sem hefur verið túlkuð svo rúmt að það sé ekki aðeins heimilt að fela einstökum ríkisstofnunum umsjón með þessum verkum, heldur að hafa framkvæmdirnar í höndum sjálfar. Þetta frv. gerir ráð fyrir að setja undir þennan leka, að tryggja betur en nú er að það verði aðalreglan að útboð skuli fara fram.
Hins vegar er gert ráð fyrir í ákvæði til bráðabirgða í þessu frv. að ráðh. sé heimilt að gefa ríkisstofnunum, sem aðallega hafa framkvæmt verk sín sjálfar þrátt fyrir ákvæði þessara laga, ákveðinn umþóttunartíma til að laga síg að framkvæmd þessara laga.
Ég hef í framsögu með þessu frv. á fyrri þingum flutt nokkuð ítarlegan rökstuðning fyrir því hvers vegna útboð séu æskileg og reyndar nefnt ýmis dæmi um það hjá hinum ýmsu stofnunum að útboð hafa skilað árangri, verk hafa verið ódýrari, betur undirbúin og allt uppgjör þeirra vegna miklu auðveldara að verki loknu og allur samanburður um hvað raunverulega hafi farið úrskeiðis
miklu auðveldari. Ég ætla ekki að endurtaka þau orð hér. Eins og ég sagði er þetta frv. hér flutt núna í fjórða sinn.
Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til fjh.- og viðskn. þessarar deildar. Ég segi þó, að það er ekki með glöðu geði að ég geri þá tillögu, þó að ég geri mér grein fyrir að málefnisins vegna eigi þetta frv. þar heima. Ástæðan er sú, að nefndin hefur þegar á þremur þingum haft þetta til umfjöllunar án þess að skila um það áliti og því miður hefur reynslan verið sú, að þmfrv. sem fara inn í fjh.- og viðskn. eiga undantekningarlítið ekki afturkvæmt þaðan. Ég vil eindregið beina þeim tilmælum til fjh.- og viðskn. þessarar deildar að hún geri annað og meira en afgreiða eingöngu frv. ríkisstj. frá sér, þó að ég geri mér grein fyrir að þar sé um mikilvæg mál að tefla þar sem eru helstu efnahagsmál sem þetta háa Alþingi fjallar um.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta á þessu stigi.