29.11.1982
Neðri deild: 13. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 878 í B-deild Alþingistíðinda. (592)

57. mál, orlof

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Hér er gamall kunningi á ferð, mál sem a.m.k. einu sinni áður hefur verið flutt hér í hv. Nd., þ.e. á síðasta þingi, eins og fram kom hjá hv. frsm. málsins.

Hann rifjaði upp örlög málsins á síðasta þingi, sem voru á þann veg að hv. félmn. tók málið til umfjöllunar, breytti tillgr. og svo breytt var hún samþykkt í þessari hv. deild og send hv. Ed. til afgreiðslu. Þar var aftur horfið til fyrra orðalags, ef ég man rétt. Þá fór málið samkv. þingsköpum til Nd. aftur. Það er rétt, sem kom fram hjá hv. frsm., að þá óskaði ég eftir að málið yrði rannsakað í nefnd til þess að færi gæfist á að kanna það betur. Úrslit urðu þau í hv. félmn. Nd., að allir nm. töldu rétt að vísa málinu frá með rökstuddri dagskrá utan einn, sem var hv. 10. landsk. þm. Jóhanna Sigurðardóttir, sem fylgdi því orðalagi sem kom frá hv. Ed. Allir aðrir nm. í hv. félmn. Nd. skrifuðu undir grg. með frávísunartill. Í henni kom fram, eins og hv. form. benti á, það sjónarmið að hér væri hróflað við frv. sem væri sameiginleg niðurstaða úr kjarasamningum svokallaðra aðila vinnumarkaðarins. Ég vek athygli á að einn nm. var 7. þm. Reykv., sem í senn er formaður verkamannafélagsins Dagsbrúnar og Verkamannasambands Íslands.

Í raun hefur lítið breyst hvað þetta mál varðar. Þetta eru auðvitað samningamál. Þegar takast á á hinum almenna vinnumarkaði annars vegar vinnuveitendur og hins vegar samtök launafólks er niðurstaðan á þann veg, að launafólkið getur valið milli þess að fá hærri laun eða taka út kjarabætur í annars konar fríðindum, þar á meðal breytingu á orlofi. Þetta er alþekkt.

Hér á landi er orlof ekki 81/3% af launum hjá öllum stéttum. Mikill mismunur er á. Má geta þess m.a. að flugmenn hafa fengið fleiri orlofsdaga. Svo er um margar aðrar stéttir og þó einkum þær stéttir sem mikilvægt er að séu við full störf að sumarlagi, enda vinna þær árstíðabundin störf, svo sem eins og í byggingariðnaði og ferðaþjónustu.

Nýleg dæmi um að ákveðið verkalýðsfélag náði í samningum lengra orlofi, auðvitað á kostnað hækkaðra launa, er verkakvennafélagið Framsókn, en nýjasta dæmið um afskipti ríkisvaldsins af þessum málum er þegar opinberum starfsmönnum var veitt lengra orlof í kjarasamningum. Þar var fulltrúi skattborgaranna hæstv. fjmrh. og þurftir þess vegna ekki að hafa sömu áhyggjur og aðrir vinnuveitendur af þeim fjármunum sem hann hefur til meðhöndlunar og ráðstöfunar í nafni skattgreiðenda landsins.

Síðan þá hefur verið vitnað til þess samkomulags einkum og sér í lagi til að þrýsta fram svokölluðu fylgifrv. með brbl., sem samþykki voru í ríkisstj. á s.l. sumri, en eins og alkunna er lýsti hv. 7. þm. Reykv. Guðmundur J. Guðmundsson því yfir að hann væri ekki tilbúinn að greiða brbl. atkv. nema gerðar yrðu breytingar á orlofslögum og orlof lengt með þeim hætti að ekki bæri að telja laugardaga með þegar orlof væri tekið og reiknað. Það mál hefur þegar verið rætt hér í þessari hv. deild í 1. umr. og liggur hjá hv. félmn.

Það ber að taka fram, að ef launþegar taka orlof utan hins venjulega orlofstímabils, sem greint er í lögunum frá 1971, gildir svokölluð 25% regla, en hún merkir að launþegar fá fjórðungi lengra orlof taki þeir það út utan hins hefðbundna tíma. Fjöldamargir hafa notfært sér þetta, eins og dæmin sanna, og bendi ég þá ekki síst á þær tíðu ferðir til sólarlanda sem farnar eru á miðjum vetri. Má búast við að flestir þátttakenda úr launþegastétt í slíkum ferðum séu þeir sem kjósa að fá lengra orlof að vetrarlagi, en njóta síðan sumarsins heima.

Í hv. félmn. Nd. er til umr. það frv. sem ég nefndi fyrr í þessari ræðu minni, þ.e. frv. sem kallað hefur verið fylgifrv. með brbl. Vegna óska hv. formanns nefndarinnar, 10. landsk. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur, var brugðið á það ráð að ræða við umsagnaraðila nefndarinnar um frv. sem hér er til umr. um leið þótt það væri enn ekki komið til nefndarinnar. Í því sambandi var m.a. leitað til Þjóðhagsstofnunar og fengið álit hennar á báðum frv. það verður að segja þá sögu eins og er, að umsögn Þjóðhagsstofnunar um þetta frv. er heldur neikvæð. Þar kemur fram, að sú breyting sem hér sé lögð til virðist ganga gegn þeirri þróun sem orðið hefur á undanförnum árum, en hún er sú, að fólk kýs sjálft í ríkari mæli en áður að taka frí utan sumarorlofstímans. Ástæða virðist fremur til að hvetja en letja til þessarar þróunar, enda er hún yfirleitt hagstæð fyrir atvinnureksturinn.

Hér er minnst á atvinnureksturinn. Hann blandast auðvitað í þetta mál vegna þess að það hefur verið tekið til umfjöllunar samhliða frv. ríkisstj. um lengingu á orlofi. Þar hefur verið deilt um hvort réttlætanlegt sé fyrir ríkisstj. að skerða verðbætur um 10% til að koma til móts við atvinnureksturinn, sem ekki þolir slíkar launahækkanir, en það er samhljóða álit ríkisstj. að svo sé, en hækka síðan orlof og lengja orlofsdaga, sem þýðir meira en 2.3% útgjaldaauka fyrir sama atvinnurekstur. Slíkur tvískinnungur er í þessu að meira en góðu hófi gegnir. Af því að ég horfi hér á hv. tilvonandi formann Bandalags jafnaðarmanna vil ég segja að það er varla siðlegt, svo að ég taki hans orðalag mér í munn, að launþegaforingjar, eins og t.d. hv. 7. þm. Reykv., sem því miður er ekki staddur hér í dag, skuli gera einkasamning um það við hæstv. félmrh. að lengja skuli orlof með þessum hætti í stað þess að launþegar, verkalýðshreyfingin, fái að velja um hvort þeir kjósi heldur lengra orlof en minni verðbótaskerðingar. Þetta er erfitt að ræða hér og nú, einkum og sér í lagi vegna þess að hv. 7. þm. Reykv. er ekki viðstaddur og ekki boðlegt að það sé verið að deila á hann á meðan hann er ekki í þingsölum.

Ég tel ekki ástæðu, herra forseti, til að ræða þetta mál frekar að sinni. Ég hef í sjálfu sér ekkert á móti því að hægt sé að lengja orlof launþega og að það sé á valdi launþega í hvert sinn hvenær þeir taka sér frí, en hér þarf að stunda atvinnurekstur, sem er undirstaða alls mannlífs í þessu þjóðfélagi, og það er ekki hægt að búast við að menn geti þegar þeim sýnist tekið sér frí. Nú er ég ekki að segja að það standi í þessu frv., síður en svo. Það er tiltölulega lítil breyting gerð, en hún er þó breyting á lögum sem voru kjarasamningamál á milli launþega og vinnuveitenda. Ég tel þess vegna fyllstu ástæðu til að taka á þessu máli sem slíku og mun á grundvelli þeirra sjónarmiða vinna mín störf þegar ég kanna þetta mál í hv.. félmn., þar sem ég á sæti.