29.11.1982
Neðri deild: 13. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í B-deild Alþingistíðinda. (593)
57. mál, orlof
Flm. (Vilmundur Gylfason):
Herra forseti. Ég mun út af fyrir sig ekki gera efnislegar athugasemdir við lýsingu hv. síðasta ræðumanns á ferð þessa litla frv. um þingsali á síðasta þingi, en ég vil gera þó það sem mér finnst vera veigamikil efnisleg athugasemd við hans hátterni í sambandi við þetta mál.
Kjarni málsins er, herra forseti, að í þessum ræðustól og víðar taka menn sér gjarnan orðið „frelsi“ í munn og einkum og sér í lagi er það stjórnmálaflokkurinn sem hv. síðasti ræðumaður er hér fulltrúi fyrir sem tekur sér þetta orð í munn. En þannig er nú samt, að í þessu samfélagi er að vaxa mjög aukinn skilningur á því að þegar þetta fólk talar um frelsi á það við hagsmuni — eða hvernig má það vera að menn eins og hv. 10. þm. Reykv. hafi á móti því af frelsisins prinsipástæðum að launamenn fái sjálfir að segja um það litla mál hvort þeir skuli taka orlof sitt í maí eða september eða ekki og beri við frelsi, frjálsum samningum og öllu því? Svo vill hann lög um að sölubúðir megi ekki vera opnar nema á ákveðnum tíma. Í báðum tilfellunum er hv. 10. þm. Reykv. vitaskuld ekki að tala um frelsi, því að á frelsi, herra forseti, hefur hann engan áhuga og hefur aldrei haft. Nei, það sem hann er að tala um eru hagsmunir.
Í fyrra tilvikinu og hvað varðar það frv. sem hér er um að ræða eru það hagsmunir fyrirtækja sem hann ber fyrir brjósti. Það vex honum í augum að það kunni að kosta álverið í Straumsvík eða Flugleiðir fleiri krónur að ekki sé hægt að níðast með þessum hætti á fámennum hópi launafólks. Í hinu tilfellinu er hann að tala um hagsmuni nokkurra stórra verslana, sem óttast samkeppni frá kaupmanninum á horninu. M.ö.o. er hann með frelsinu þegar um er að ræða í ekonomískum skilningi talað minni háttar mannréttindamál, eins og það sem hér er verið að leggja til, en svo er hann á móti frelsinu þegar um er að ræða hagsmuni nokkurra stórra verslana. Það er, herra forseti, mikil alvara þessa máls. Svona flokkur er Sjálfstfl. Frelsi, hið afstæða frelsi, er þessu fólki einskis virði og hefur aldrei verið.
Þetta er flokkur sem hér á hinu háa Alþingi styður og ver með kjafti og klóm ríkisvernduð einokunarviðskipti. Ég nefni Íslenska aðalverktaka. Ekki er nú frelsinu fyrir að fara þar, ekki útboðsmarkaðnum, engu. Þetta er flokkur, hvers fyrrum formaður, hv. fyrrum þm. Ólafur Thors, bjó til öryggisnet undir útgerðina í landinu svo hún gæti ekki farið á hausinn. Þetta kerfi hefur þetta frelsisins fólk varið með kjafti og klóm, sem er versta lagasetning sem nokkurn tíma hefur verið samin, –lögin sem Ólafur Thors samdi og Áki Jakobsson flutti frv. um í nýsköpun. Þetta frelsi er einskis virði, enda er þetta ekki frelsi.
Það sem fyrir þeim vakir og þeir klæða þessum frelsisbúningi eru hagsmunir. Það eru hagsmunir hinna efnameiri. Það eru hagsmunir hinna 200 fjölskyldna í landinu. Þetta litla mál, sem hér er lagt fyrir, sem fjallar um að launafólk verði ekki gegn vilja sínum skikkað til að taka sumarleyfi í maí og september, hélt ég að upplýst og siðað fólk mundi samþykkja orðalaust. Nei, nei. Þá koma þeir frelsisins drengir, þá koma þau öll hvert á eftir öðru, og nú er það frelsi, frjálsir samningar, engin afskipti ríkisvaldsins, enda er ríkisvaldið á kafi í fiskverðinu, enda er ríkisvaldið á kafi í Íslenskum aðalverktökum. Ríkisvaldið hefur varið ríkisbankana með oddi og egg í gegnum tíðina. Ríkið hér og ríkið þar ef það er í þeirra þágu. Þetta er upplýst fólk að uppgötva meira og meira.
Þeir heimta lög fyrir stærri verslanirnar sínar. Lesi menn yfirlýsinguna frá Kaupmannasamtökum Íslands sem er fskj. með frv. okkar hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur o. fl. Lesi menn rökstuðning Kaupmannasamtakanna. Ekki er nú frelsinu fyrir að fara þar. Og Sjálfstæðisþm. hoppa hér í pontu hver á fætur öðrum. Ekki er frelsið þar að finna í ræðum.
Svo hafa þeir málgagn í 45 þúsund eintökum, sem iðulega hefur það hlutverk að halda algerlega falskri goðsögn að fólki með því að þegja og segja ekki frá. Ég hef sagt aftur og aftur að ef hér væru alvörufjölmiðlar, ef hér væru heiðarlegir ríkisfjölmiðlar vissi fólkið hvernig þingflokkur Sjálfstfl. er samsettur. Bara af þessu litla máli, sem hér hefur verið rætt, bara þeirri staðreynd, er ljóst að þegar þeir tala um frelsi eiga þeir ekki við frelsi, heldur hagsmuni. Og þessir hagsmunir þeirra eru svo þröngir. Í Frakklandi töluðu menn á millistríðsárunum um hinar 200 fjölskyldur sem áttu bankana, áttu verslanirnar, áttu hitt og þetta. Það sem sjálfstæðismenn eru að tala um er ekki frelsi, ekki frelsi fyrir litla manninn, ekki frelsi fyrir kaupmanninn á horninu, ekki frelsi til að semja um eitt eða neitt. Nei, þeir eru að tala um hagsmuni hinna 200 fjölskyldna, svo að ég vísi í franska sögu.
En versti óvinur þessa forherta hagsmunabandalags er skólakerfið. Þaðan kemur út upplýst fólk sem sér í gegnum hjómið, sem sér þetta allt saman sem sér frelsið þeirra, þ.e. hagsmuni hinna fáu, hagsmuni hinna efnuðu.
Og þeir stilla sér upp í nafni frelsisins og mótmæla því að menn séu ekki skikkaðir til að taka sumarleyfi í maí og september. Í nafni frelsisins! Það vantar ekki. Þetta eru mennirnir sem í fyrradag voru á móti því að maðurinn uppi á Njálsgötu, sem rekur litla matvöruverslun, megi hafa opið þegar hann vilji. Þá var ekki frelsinu fyrir að fara. Þetta er auðvitað andstyggilegt. En samfélagið er meira og minna að sjá í gegnum þetta hjóm. Það er að brjóta niður fjölmiðlahjúpinn, þennan næfurþunna fjölmiðlahjúp sem hefur umleikið þetta hagsmunabandalag hinna fáu. Sannleikurinn um Alþingi er Sjálfstfl. verstur. — Ég endurtek: Sannleikurinn um Alþingi er Sjálfstfl. verstur og það vita þeir vel sjálfir.
Herrar mínir. Ef þið eruð á móti þessu litla frv. skuluð þið ekki vera að skrökva því að þjóðinni og helst ekki að sjálfum ykkur að það sé gert í nafni frelsisins og frjálsra samninga og mannvirðingar, því að sú er ekki ástæðan. Ástæðan er sú, að komið hafa meldingar um að þetta litla frv. kunni að kosta hin stærri fyrirtæki nokkrar krónur. Þá eiga menn að segja það hreinskilnislega. Svo eru menn að ræða um að skoða skuli reikninga og menn eigi að skoða hitt og þetta. En sömu mennirnir og þola ekki kaupmanninum á horninu á Njálsgötunni eða einhverri annarri götu þar hjá eða uppi í Breiðholti eða á Dalvík eða á Seyðisfirði að hafa opið þegar hann vill eiga ekki að koma og mótmæla þessu frv. í frelsisins nafni því að það fær ekki staðist.
Ég hef staðfastlega verið þeirrar skoðunar, að hættulegasti óvinur hinnar fölsku goðsagnar, sem ónýtt fjölmiðlakerfi heldur að fólki, sé menntun. Þegar fólkið veit betur lætur það ekki segja sér að hlutir séu öðruvísi en þeir eru. Þetta hagsmunabandalag er auðvitað innfallið. Það er að hruni komið, eins og blasir við um allt land.
Þegar hv. 10. þm. Reykv. ætlar í annað skipti að mæla gegn þessu frv. með settlegum hætti - og ég segi það vegna þess að á síðasta þingi var þetta litla frv. drepið í þinglegum skilningi talað — á auðvitað ekki að vera að skýla sér á bak við neinn meiri hl. Meiri hl. hv. alþm. hefur oftast rangt fyrir sér. Ekki er það stoltur meiri hl. sem bannaði fsp. hér um daginn og gengur með veggjum í marga daga á eftir. Meiri hl. hefur iðulega rangt fyrir sér og þá eiga menn ekki að skýla sér á bak við neinn meiri hl. Menn eiga að skoða efnislega um hvað málið snýst og mynda sér skoðanir á þeim grundvelli. Og menn eiga ekki að vera að skýla sér á bak við einhvern fjarstaddan verkalýðsforingja, þó að það sé hv. 7. þm. Reykv., því að það er heldur lítilmannlegt. En það er það sem þeir leika, þetta samtryggða kerfi, að skýla sér hver á bak við annan.
Menn eiga að skoða þetta frv. efnislega. Menn eiga að spyrja: Hvað kostar það? Vera má að það hafi mikinn kostnaðarauka í för með sér, þó að mér sé ekki um það kunnugt, fyrir eitt eða tvö eða þrjú fyrirtæki. Þá ber að skoða það faglega og mynda sér niðurstöður á þeim grundvelli. En að tala í nafni frelsisins, menn sem greiða atkv. á móti frelsinu hér í fjórum af þeim fimm skiptum þegar það þóknast þeirra þröngu hagsmunum, það, herra forseti, fær ekki staðist.
Ég sem 1. flm. dreg ekki dul á að auðvitað fjallar þetta frv. um hagsmuni. Það fjallar um hagsmuni ekki margra launamanna. Þeir eru að því leytinu til minnihlutahópur. Það kann að vera ástæðan fyrir því að um þeirra hagsmuni hefur ekki verið samið í kjarasamningum. Þá er það Alþingis. Þá er það beinlínis hlutverk okkar og skylda, ef á þarf að halda, að grípa inn í og sjá til þess að þetta fólk njóti mannréttinda á við annað fólk. Við skulum geyma okkur lykilorð eins og frelsi, gersemi eins og frelsi.
Þetta mál fjallar ekki um frelsi. Þetta fjallar um hagsmuni. Það fjallar um hagsmuni fárra manna, en er samt sem áður mikið réttlætismál. Ég þekki orðaleiki hv. þm. Sjálfstfl. hér og því meira sem ég heyri af þeim, því minni trú hef ég á þeim og því betur veit ég að þetta er falskur málflutningur.