10.10.1982
Sameinað þing: 1. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (6)
Kosning forseta og skrifara
Aldursforseti (Gunnar Thoroddsen forsrh.):
Samkvæmt 3. gr. þingskapa skal nú kjósa forseta sameinaðs þings og bið ég starfsmenn þingsins að útbýta seðlum.
Kosningu hlaut
Jón Helgason, 3. þm. Suðurl., með 50 atkv. — Gunnar Thoroddsen, 8. þm. Reykv., hlaut 1. atkv., Pálmi Jónsson, 2. þm. Norðurl. v., 1 atkv., Friðjón Þórðarson, 2. þm. Vesturl., 1 atkv. Steinþór Gestsson, 2. þm. Suðurl., 1 atkv., en 4 seðlar voru auðir.