20.10.1982
Neðri deild: 4. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í B-deild Alþingistíðinda. (60)

26. mál, Olíusjóður fiskiskipa

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til I. um Olíusjóð fiskiskipa og hækkun fiskverðs. Um s.l. áramót, þegar fiskverð var ákveðið, taldi Þjóðhagsstofnun að afkoma útgerðarinnar væri með nokkrum halla eða samtals - 3.3%, þar af bátar með - 4.5, minni togarar - 2 og stórir togarar - 4.5%. Þetta er að vísu nokkru minni halli en að mati Þjóðhagsstofnunar hefur verið á útgerð iðulega á undanfórnum árum, allt frá 1974. Sum árin hefur halli þessi reyndar verið langtum meiri, t.d. á árunum 1974–1976, þegar rekstur útgerðar samtals, eins og nefnt er í töflum Þjóðhagsstofnunar, var með halla upp á allt að 14.0%. Reyndar er það athyglisvert að þessi ár öll telur Þjóðhagsstofnun að útgerð hafi ekki verið rekin með hagnaði hér á landi. Næst því komist árið 1979 með - 3.4%. Þessar útkomutölur eða áætlanir Þjóðhagsstofnunar breyttust hins vegar mjög fljótlega vegna þess aflabrests sem varð á árinu. Sérstaklega bitnaði það mjög á togurunum sem urðu fyrir verulegum aflabresti á vormánuðum. Var þá fljótlega ljóst að í stað þess að vera um það bil - 4.0% var þessi afkoma um það bil eða jafnvel töluvert yfir - 16%. Og við endanlegt mat á afkomu útgerðarinnar í maímánuði var reyndar talið að afkoma togaraflotans væri komin niður fyrir – 20%, og reyndar - 30% hjá stóru togurunum, í versta tilfelli gætum við sagt, þ.e. miðað við áframhaldandi aflabrest.

Ég skipaði þess vegna í júní starfshóp til að gera úttekt á þessari mjög svo breyttu stöðu útgerðarinnar. Starfshópur sá skilaði mér skýrslu 28. júní. Var þar bæði gerð athugun á afkomu útgerðar fram að þeim tíma — eða við skulum segja á fyrra helmingi ársins — og einnig hvað áætla mætti um afkomu útgerðar á síðari hluta þessa árs. Í þessum starfshópi voru frá rn. Bogi Þórðarson og Magnús Ólafsson, Kristján Ragnarsson og Ágúst Einarsson frá útgerðarmönnum, Þórður Friðjónsson frá forsrn., Ólafur Davíðsson og Rósmundur Guðnason frá Þjóðhagsstofnun.

Í örfáum orðum var það niðurstaða þessa starfshóps að halli á togaraflotanum á fyrra hluta ársins, eða frá janúar til maí eins og tölur lágu þá fyrir um, hefði numið 126 millj. kr. og jafnframt, eins og fyrr var nefnt, að afkoma á minni togurunum væri í staðinn fyrir að vera um það bil - 2% orðin nálægt - 20% vegna aflabrestsins. Einnig er í þessari skýrslu gerð athugun á afkomu togaraflotans mánuðina júní — des. Það er að sjálfsögðu nokkru erfiðara við að eiga þar sem gefa verður sér ákveðnar forsendur. En hópurinn kemst að þeirri niðurstöðu að ef áframhald verði svipað og á fyrri hluta ársins hvað varðar afla á úthaldsdag og samsetningarbreyting afla verði svipuð og orðið var, þá sé hallinn orðinn um 16–17% og um 25% hjá stærri togurunum. Hins vegar miðað við það að afli lagist og verði svipaður og hefur verið undanfarin ár, þá yrði þessi halli á bilinu 10–14%.

Við þessar aðstæður varð ljóst að grípa varð til aðgerða til þess að rétta við starfsgrundvöll útgerðarinnar. Í beinu framhaldi af skýrslu þessa starfshóps hófst á vegum sjútvrn. athugun á því hvernig það mætti gera. Í sambandi við brbl. þau sem gefin voru út um efnahagsmálin í lok ágúst var ákveðið að færa gengismun, þ.e. helming af gengishagnaði fiskvinnslunnar, að hluta til togaraútgerðarinnar og að hluta til Stofnfjársjóðs fiskiskipa, eins og gert hefur verið í fjölmörgum tilfellum áður. Hins vegar kom í ljós að svigrúm það sem gafst með þeirri gengisfellingu var hvergi nærri nægjanlegt til þess að rétta við þessa slæmu afkomu útgerðarinnar fram í tímann. Því var horfið að því ráði að lagfæra fyrst og fremst þann mikla halla sem orðið hafði á útgerð á fyrri hluta ársins. Með brbl. var ákveðið að greiða til togaraútgerðar samtals 80 millj. kr. eða um það bil 3/4 af þeim halla sem starfshópurinn taldi að orðið hefði á útgerð togara á tímabilinu jan. — maí. Einnig var ákveðið að leggja 10 millj. kr. í Fiskimálasjóð. Verður því fjármagni varið í fyrsta lagi til útlána vegna orkusparandi aðgerða í útgerð og í öðru lagi vegna átaks til þess að bæta gæði fisks og fiskafurða. Loks var ákveðið að verja 15 millj. kr. til þess að lagfæra útlánakjör á öðru fjármagni sem veita á loðnuverksmiðjum vegna þess brests sem orðið hefur á loðnuafla. Er það gert á grundvelli niðurstöðu sérstakrar nefndar sem skipuð var til að skoða þau vandamál. Þá var ákveðið að verja 5 millj. kr. í Lífeyrissjóð sjómanna. Að lokum var ákveðið að eftirstöðvar skuli renna í Stofnfjársjóð fiskiskipa, eins og áður hefur verið gert, til þess að mæta þar hækkunum sem verða á gengistryggðum lánum.

Eins og ég sagði áður var ljóst að með þessum aðgerðum í efnahagsmálum í lok ágústmánaðar skapaðist ekki svigrúm til þess að lagfæra stöðu útgerðarinnar svo sem nauðsynlegt mátti teljast. M.a. stafaði þetta af því að sú gengisfelling, sem þá var ákveðin í fullu samræmi við tillögu Seðlabanka Íslands, skapaði ekki meira svigrúm og sömuleiðis hefur athugun á stöðu ríkissjóðs leitt í ljós að þar er ekki svigrúm til þess að verja fjármagni svo umtalsvert verði í þessu skyni.

Með tilvísun til þessa þótti mér rétt að beita mér fyrir því að fiskverðshækkun gæti orðið nokkru meiri en almennt hafði verið gert ráð fyrir. Eftir að ákvörðun um fiskverð kom til yfirnefndar átti ég að sjálfsögðu fundi bæði með kaupendum og seljendum og leitaði þar eftir samkomulagi um það að fiskverðshækkun gæti orðið allt að 20%. Um það varð hins vegar ekki samkomulag. Fulltrúi útgerðar hafnaði því. Hins vegar hafnaði fulltrúi sjómanna því ekki og kvaðst reiðubúinn til að athuga slíka fiskverðshækkun. Um það var því ekki að ræða og varð niðurstaðan sú, að samið var við kaupendur um 16% fiskverðshækkun, sem ég tel reyndar að hafi verið í efri kanti þess sem kaupendur gátu með góðu móti rökstutt.

Ég þarf ekki að rekja hér þau átök sem síðan urðu við útgerðina út af þessum málum. En til að gera langa sögu stutta vísa ég í fyrsta lagi til þeirra brbl. sem hér liggja nú fyrir til staðfestingar um Olíusjóð fiskiskipa og hækkun fiskverðs.

Til meðferðar hefur verið alllengi olíuverð til fiskiskipa og m.a. mikið um það rætt að olíuverð til fiskiskipa hér á landi, sérstaklega verð á gasolíu, er allmiklu hærra en gengur og gerist í höfnum erlendis. Mun munur á gasolíuverði þar og hér vera um það bil 40%. Allítarleg athugun fór því fram á þessu og hófst reyndar þegar í vor eftir að erfið staða útgerðar varð ljós. Í þeirri athugun kemur fram að á hinu íslenska olíuverði hvíla ýmsir liðir sem kannske má segja að orki tvímælis og verða til þess að hækka verulega olíuverð hér. Ég nefni þar í fyrsta lagi skuld við Innkaupajöfnunarsjóð olíu, er nam samtals fyrir um það bil hálfum öðrum mánuði 44 millj. kr., bæði á svartolíu og gasolíu. Í öðru lagi hvílir á olíunni skuld vegna láns sem tekið var 1979 til þess að dreifa á lengri tíma þeirri skuld sem þá hafði safnast á innkaupajöfnunarreikning olíu. Það lán er nú að eftirstöðvum um 30 millj. kr. Samtals eru þetta 74 millj. kr., en á gasolíunni nemur það álag sem á er lagt til að greiða þessar skuldir um 8% af verði olíunnar. Þá hvílir einnig á olíunni dreifingarkostnaður, sem er á gasolíuna rúmlega 12%, en hins vegar á svartolíuna rúmlega 8%. Þá er einnig lagt á verðjöfnunargjald, sem er að vísu töluvert minna en það er þó um 3–4%, og sömuleiðis eru smávægilegir tollar, þ.e. innflutningsgjald, bankakostnaður o.þ.h. sem allt hefur verið athugað mjög gaumgæfilega og nemur samtals um það bil 2%.

Í sambandi við efnahagsaðgerðirnar í ágúst samþykkti ríkisstj. að fella niður öll þau opinber gjöld sem á olíunni hvíla, þ.e. gasolíu og svartolíu, og jafnframt að beita sér fyrir lækkun á bankakostnaði sem á er lagður. Umræður hafa farið fram um þetta og er að því stefnt að þessir liðir verði felldir niður eða lækkaðir svo sem frekast er kostur. Þó verður ekki komist hjá nokkrum útgjöldum í þessu sambandi, fyrst og fremst bankakostnaði, en mér sýnist að þarna gæti orðið lækkun upp á um það bil 1.5 %. Það er að vísu ekki nema dropi í hafið, en sjálfsagt virðist þó að fella slík gjöld niður.

Þá var einnig allmikið um það rætt að greiða þær skuldir sem á innkaupajöfnunarreikningi hvíla, og sömuleiðis þá skuld sem ég nefndi áðan upp á 30 millj. kr., sem er eftirstöðvar af láninu frá 1979. Ég lét einnig fara fram athugun á því hvort hugsanlegt væri að lækka verðjöfnunargjaldið með tilliti til þess að þetta er verðjöfnunargjald sem á olíu er lagt fyrir alla notkun, þ.e. ekki bara á fiskiskip heldur einnig til upphitunar og á bifreiðar o.s.frv. Niðurstaðan varð sú, að mjög lítil lækkun yrði eða um það bil 0.7 % þótt þetta yrði aðskilið eftir notkun, þ.e. sérstaklega reiknað fyrir fiskiskip og hins vegar fyrir aðra notkun. En almennt má segja að í ljós kom að sú leið sem að ýmsu leyti væri æskileg, að fella niður og létta af svona gjöldum, er allmargslungin og krefst nýrra útreikninga og áætlana hjá Verðlagsstofnun og olíufélögum, sem tekur eitthvað lengri tíma.

Ég vil geta þess í sambandi við olíuna að þau innkaup, sem gerð voru frá breska olíufélaginu á fyrra ári og menn réðust í í þeirri von að þar fengist meira öryggi og kannske einnig eitthvað lægra verð, urðu hins vegar til þess að hækka hér verulega olíuverð. Sú olía, sem þaðan var keypt, reyndist þegar upp var staðið 3.2 millj. dollara dýrari en olía keypt á sama tíma frá Sovétríkjunum. Að sjálfsögðu má varpa þeirri spurningu fram hvort rétt sé að leggja þá byrði alfarið á olíunotendur og þá ekki síst á útgerð. Mér sýnist vel koma til greina að skoða einnig þessa staðreynd.

Þá vil ég geta þess í sambandi við olíukostnaðinn að hann hefur aukist mjög verulega á undanförnum árum. Olíukostnaður — þá á ég við fyrir minni togarana, þar sem notkunin er nú mest — var um það bil 11% aflaverðmætis 1973, hækkaði síðan 1976 við olíuhækkunina upp í 17.4, lækkaði síðan með ýmsum aðgerðum niður í 15.1% 1977. — Reyndar er rétt að hafa í huga að þarna á milli er settur á fót Olíusjóður, sem ég kem að síðar, að öðrum kosti hefði olíukostnaður verið verulega hærri.1977 er olíukostnaður 15.1%, 1978 14.9%, 1979 18.3%, 1980 20.5% og í sept. í ár var olíukostnaður áætlaður á minni togara tæplega 25%. Menn hafa furðað sig á þessari gífurlegu hækkun, ekki síst með tilliti til þess að olíuverð í Rotterdam hefur staðið nokkurn veginn í stað í dollurum. Að vísu hafa orðið smávægilegar hækkanir með haustinu, eins og algengt er, þ.e. gasolíuverð hækkaði í haust úr 288 dollurum í 308. Það er hins vegar alls ekki meiri sveifla og reyndar heldur minni en varð á fjórða ársfjórðungi 1981, þó að vera kunni að hækkun á olíu á síðasta ársfjórðungi sé ekki öll komin fram. Reyndar er það athyglisvert að gasolíuverð í Rotterdam er í dollurum það sama nú og það var 1978. Ef við setjum það á 100 þá, þá er það 100 nú, að sjálfsögðu einnig í dollurum. Það var 307 dollarar, ársmeðaltal 1980, en er nú í sept. 308, þannig að það er alls ekki um það að ræða að gasolíuverð — og reyndar á það einnig við svartolíuna að mestu leyti — hafi hækkað á heimsmarkaðinum þessi árin. Hitt er svo annað mál, að olíuverð er skráð og fyrir olíuna greitt í dollurum, og dollarinn hefur eins og kunnugt er breyst ákaflega mikið og olíuverð að sjálfsögðu þá í íslenskum krónum í samræmi við það.

Eftir þessa athugun á olíu og leiðum til þess að lækka olíukostnað þótti mér sýnt að þær tækju töluvert lengri tíma en viðunandi væri. Var því horfið að því ráði að endurvekja til bráðabirgða þann Olíusjóð fiskiskipa sem settur var á fót 1973 og lagður niður 1976. Að vísu voru greiðslur úr þeim olíusjóði langtum meiri en gert er ráð fyrir nú, sem hlutfall af olíukostnaði, og þótti þá stundum orðið varhugavert. Voru færð rök að því að um misnotkun kynni að vera að ræða.

Ákveðið var að verja 60 millj. kr. til þess að greiða niður olíu í gegnum olíusjóð á fjórum síðustu mánuðum þessa árs, og eins og segir í 2. gr. þessara laga þá er gert ráð fyrir því að verja um það bil helmingi af innistæðu í Tryggingasjóði fiskiskipa, þ.e. 30 millj. kr. af greiðsluafgangi þar, í þessu skyni. Jafnframt er ákveðið í þessum brbl. að Olíusjóði fiskiskipa skuli heimilað að taka lán að fjárhæð allt að 30 millj. kr., sem ríkissjóði er jafnframt heimilt að ábyrgjast með sjálfskuldarábyrgð. Ljóst var að þessar aðgerðir einar út af fyrir sig, þó að þær séu mikilvægar og nemi um það bil 180 millj. kr. á ársgrundvelli, dugðu ekki til að bæta svo afkomu útgerðar að viðunandi væri. Þess vegna varð að samkomulagi eftir viðræður við fiskkaupendur að gera jafnframt ráð fyrir hækkun á hinu almenna fiskverði, sem ákveðið var 1. sept. s.l., um 4%. Svigrúm hafði skapast til slíkrar fiskverðshækkunar vegna mikillar hækkunar á dollaranum sem reyndar hefur haldið áfram. Hefur þessari fiskverðshækkun verið að fullu mætt gagnvart fiskvinnslunni með hækkun á gengi dollarans.

Einnig var í þessu sambandi frá því gengið við Landssamband ísl. útvegsmanna að áfram héldi athugun á hinum ýmsu þáttum sem gætu orðið til þess að bæta hag útgerðar. Kemur það fram í bréfi sem sjútvrn. ritaði Landssambandi ísl. útvegsmanna 16. sept. 1982. Þar eru reyndar dregnar saman þessar aðgerðir. Vil ég, með leyfi forseta, lesa bréf þetta. Þar segir:

„Ráðuneytið vísar til bréfs dags. 8. þ.m. um rekstrarvanda fiskveiðiflotans og stöðvun hans, svo og svarbréfs Landssambands ísl. útvegsmanna dags. 10. þ.m. Vill rn. hér með upplýsa að ríkisstj. hefur í dag ákveðið eftirgreindar aðgerðir til að bæta rekstrargrundvöll útgerðar.

1. Verð á gas- og svartolíu til fiskiskipa verði lækkað um 20% frá og með L sept. s.l. með greiðslum úr olíusjóði sem á fót verði settur. Fjármagn sjóðsins á þessu ári verði 30 millj. kr. af greiðsluafgangi Tryggingarsjóðs fiskiskipa og 30 millj. kr. lán með ríkisábyrgð frá Seðlabanka Íslands.

2. 100 millj. kr. af tekjuafgangi Fiskveiðasjóðs á árinu 1981 verði ráðstafað til lækkunar vaxta sem greiddir eru úr sjóðnum frá 1. okt. 1982 til 1. okt. 1983.

3. Útgerðinni verði gert kleift að breyta talsverðum hluta vanskila- og skammtímalána í lán til lengri tíma þannig að ætla megi að fjármagnskostnaður meðalfyrirtækis verði viðráðanlegur.

4. Fjármagnskostnaður nýrra skipa, einkum þeirra sem smíðuð hafa verið innanlands, verði athugaður sérstaklega.

5. Hluti framangreindra aðgerða til stuðnings útgerð fiskiskipa gildir til næstu áramóta. Tíminn fram að áramótum verði notaður til að fjalla í samráði við hagsmunaaðila um vanda útgerðar og aðgerðir til að bæta rekstrargrundvöll á næsta ári.“

Skal ég að lokum fara nokkrum orðum um þá liði sem ég hef nú rakið og lesið. Um 1. liðinn hef ég fjallað, þ.e. lækkun á olíukostnaði. Þó vil ég geta þess að við athugun, sem Þjóðhagsstofnun gerði eftir að brbl. voru sett, kemur í ljós að þær 60 millj., sem í lögunum er ákveðið að verja í þessu skyni, munu duga nokkru betur en ráð var fyrir gert í þessu bréfi, þ.e. munu geta náð lengra en að greiða niður 20%. Um það var því rætt við fulltrúa Landssambands ísl. útvegsmanna hvernig að þessu máli yrði komið. Kom til greina að eiga nokkurn afgang vegna hækkana, sem kynnu að verða síðar á þessu ári og má telja mjög líklegar ef ekki öruggar því miður, vegna breytingar á dollaragengi, eða greiða strax nokkru meira niður. Niðurstaðan varð sú að gera ráð fyrir 22% lækkun á olíuverði nú strax. Að mati Þjóðhagsstofnunar þarf til þess 56 millj. kr. til áramóta. Það sem fyrst og fremst veldur því að fjármagnið dugar betur er sú staðreynd að loðnuveiðar verða að öllum líkindum engar á þessu ári.

2. liður fjallar um tekjuafgang Fiskveiðasjóðs. Í ársreikningum Fiskveiðasjóðs fyrir árið 1981 er færður tekjuafgangur að upphæð 165 millj. kr. Vanskil við sjóðinn eru hins vegar gífurlega mikil eða rúmlega 400 millj. kr. Þessi tekjuafgangur er því í raun og veru aðeins á pappírnum. Þessi ráðstöfun á tekjuafgangi til þess að lækka vexti á næsta tímabili, 1982–1983, verður heldur ekki til þess að draga úr greiðslugetu eða gera greiðslustöðu sjóðsins verri á því ári. Við getum sagt því miður, því að þar er, eins og ég sagði, um gífurlega mikil vanskil að ræða. Þessi færsla verður fyrst og fremst til þess að minnka vanskil útgerðarinnar við sjóðinn og þá að sjálfsögðu jafnframt að draga úr greiðslubyrði útgerðarinnar þegar til lengri tíma er litið.

Greiðsluvandi Fiskveiðasjóðs stafar fyrst og fremst af því að sjóðurinn er enn að yfirtaka lán vegna fiskiskipa sem keypt eru erlendis og einnig bráðabirgðalán sem veitt er til smíða innanlands og eru almennt til 7 ára. Síðan yfirtekur Fiskveiðasjóður þau og lengir til 18 ára. Töluvert er enn útistandandi af slíkum lánum sem Fiskveiðasjóður er enn þá að yfirtaka. Samkv. áætlun sjóðsins verður því greiðslustaða hans mjög erfið á næstu þremur árum. Til viðbótar hefur svo komið á þessu ári sú staðreynd, að greiðslugeta útgerðar með aflabrest á herðum hefur orðið miklu lakari en áður var ráð fyrir gert og vanskil útgerðar við Fiskveiðasjóð því orðið miklu meiri en menn gerðu ráð fyrir þegar greiðsluáætlun sjóðsins var samin í lok síðasta árs. Þetta málefni Fiskveiðasjóðs er nú til sérstakrar meðferðar hjá ríkisstj. og sömuleiðis á milli Fiskveiðasjóðs og Framkvæmdastofnunar ríkisins. Ég legg sem sagt áherslu á að þó að þetta sé til þess að létta greiðslubyrði útgerðarinnar við Fiskveiðasjóð, þegar til lengri tíma er litið, þá skerðir þetta út af fyrir sig ekki greiðslustöðu sjóðsins á næsta ári eða eykur þau vandræði sem sjóðurinn er í vegna vanskila. Þau vanskil minnka eitthvað en vandamál sjóðsins út af fyrir sig verða ekki meiri. Þetta þýðir um það bil 30% lækkun vaxta á því tímabili sem hér um ræðir, frá 1. oki. 1982 til 1. okt. 1983.

Þá segir í 3. lið að útgerðinni verði gert kleift að breyta talsverðum hluta vanskila- og skammtímalána í lán til lengri tíma þannig að ætla megi að fjármagnskostnaður meðalfyrirtækis verði viðráðanlegur. Hér er farin svipuð leið og farin var á árunum 1975–1976. Þá var vanskilum breytt í lán til lengri tíma. Um þetta hefur að sjálfsögðu verið haft náið samráð við Seðlabanka Íslands og viðskiptabankana auk fulltrúa Landssambands ísl. útvegsmanna. Á það hefur verið lögð áhersla að hraða þessari skuldbreytingu þannig að hún taki skemmri tíma en 1975–1976. Á þeim árum má segja að hvert einstakt fyrirtæki hafi verið tekið fyrir, enda tók sú skuldbreyting hátt í tvö ár. Því var leitað nýrra leiða til að þetta mætti ganga hraðar. Niðurstaðan varð sú, eftir samkomulag við Seðlabankann, að ákveðið var að gera ráð fyrir að skuldbreytingin næmi hjá hverju fyrirtæki ákveðnum hundraðshluta af húftryggingarmati fiskiskipanna. Húftryggingarmat hefur hækkað mjög verulega á þessu ári eða um 38%. Ákveðin hundraðstala hefur ekki verið fest en þó til að byrja með miðað við 7%. Er ráð fyrir því gert af hálfu sjútvrn. og í viðræðum við Seðlabankann að þessi tala geti farið upp í 10%. Þarna þarf að vera nokkur sveigja á og ræðst skuldbreytingin að sjálfsögðu mjög af því hvaða veð útgerðaraðilar geta boðið, ef ekki í sínum fiskiskipum, þá í öðrum fasteignum. Því var ekki talið rétt að festa þessa tölu, heldur að hafa þar nokkra sveigju á. Einnig var í samráði við Seðlahankann og viðskiptabankana ákveðið að binda ekki þessa skuldbreytingu algerlega við útgerð, heldur að hafa svipaðan hátt á og var 1975–1976, að skoða einnig stöðu fiskvinnslunnar, enda er þetta tvennt svo nátengt að það má heita ógerlegt að skilja þar á milli. Jafnframt var ákveðið að auglýsa eftir nauðsynlegum gögnum og gefa aðeins frest til loka þessa mánaðar. Sú auglýsing hefur birst og gögn hafa komið fljótt inn. Ég get upplýst, að mikil skuldbreyting er þegar tilbúin og mun fara fram á allra næstu dögum. Viðskiptabankar hafa að þessu unnið. Einnig má segja að þar hafi komið til góða starf nefndar sem hefur starfað á vegum Framkvæmdastofnunar og sjútvrn. að því að kanna skuldastöðu útgerðarinnar. Ég vil einnig geta þess að ráð hefur verið fyrir því gert að skuldbreyta mætti skuldum útgerðar við ýmsa viðskiptaaðila aðra en viðskiptabankana, enda gætu þá þeir aðilar skuldbreytt í sínum viðskiptabanka. Sömuleiðis hefur verið gengið frá því að Seðlabankinn mun taka a.m.k. verulegan hluta af þessari skuldbreytingu upp í yfirdrátt eða bráðabirgðalán án viðskiptabankanna hjá Seðlabanká Íslands.

Ég vil einnig geta þess að um það hefur verið samið við Seðlabankann að þau skuldabréf, sem út verða gefin og gert er ráð fyrir að verði til 6–7 ára, geti verið með fasteignaveðsvöxtum — eða verðtryggð og þá vaxtalaus, ef útgerðarmenn óska þess fremur. Ég geri mér því vonir um að þessi skuldbreyting geti gengið fljótt og vel.

Þá vil ég jafnframt geta þess, sem ég las upp í 4. lið þessa bréfs, að gert er ráð fyrir því að athuga sérstaklega fjármagnskostnað nýrra skipa. Slík athugun fór fram á vegum sjútvrn. á skipum sem bæst hafa í flotann á árunum 1977–1980. Sú athugun leiddi í ljós, eins og hv. þm. mun mörgum kunnugt, að fjármagnskostnaður þessara skipa er miklu meiri en almennt gerist og meðaltöl sýna í útgerðinni, og nemur á ársgrundvelli, fært til núvirðis, um 75 millj. kr. fyrir þessi skip. Jafnframt kemur í ljós að ef vandi þessara skipa er dreginn frá í reikningum Þjóðhagsstofnunar batnar afkoma minni togaranna um 4 hundraðshluta-stig, þ.e. breytist t.d. úr 16 af hundraði í 12 af hundraði. Mín skoðun hefur því verið og er sú, að vandi þessara skipa verði ekki leystur með almennri fiskverðshækkun og slíkum aðgerðum sem hér eru til umr. Hann þarf að skoða alveg sérstaklega. Mín skoðun er jafnframt sú, að eigendur þessara fiskiskipa þurfi að horfast í augu við þann mikla fjármagnskostnað, sem þarna er, og þá verði fyrst og fremst að aðstoða þá til þess að auka eigið fjármagn í þessum skipum. Sumir eigendur kunna að geta það af eigin styrkleika, ef þeir hafa önnur skip, sem greidd eru, eða aðrar eignir til að standa að baki slíkum rekstri, en mörg smærri fyrirtæki og sveitarfélög munu eiga þarna í verulegum erfiðleikum. Þessi athugun er nú að hefjast og mun henni verða hraðað, enda má segja að það byggir að nokkru á því sem gert var og ég hef áður nefnt.

Þá vil ég geta þess, sem ekki er í því bréfi sem ég las hér upp, að jafnframt var gert ráð fyrir því að taka sérstaklega á vanda loðnuskipanna. Hefur verið farið fram á það við Fiskveiðasjóð að afborgun af lánum, sem á þeim skipum hvíla, verði frestað, þ.e. veittur greiðslufrestur í eitt ár og lánin lengd að sama skapi. Einnig hefur verið ákveðið í samráði við hagsmunaaðila að taka sérstaklega til athugunar alla uppbyggingu á olíukostnaði og mun viðskrh. fljótlega skipa nefnd í því skyni með þátttöku hagsmunaaðila.

Þá segir í 5. lið í því bréfi sem ég las upp áðan að hluti framangreindra aðgerða til stuðnings útgerð fiskiskipa gildi til næstu áramóta. Þar er fyrst og fremst vísað til þeirrar olíuniðurgreiðslu sem ég rakti áðan. Hún er skammtíma ráðstöfun og vissulega má um hana deila. Ég nefndi áðan að til hennar var gripið af því að menn töldu að aðrar aðgerðir í sambandi við olíuna, t.d. að létta af þeim skuldum sem á henni hvíla o.fl., tækju lengri tíma og því væri nauðsynlegt að athuga það nánar og kanna þá hvað menn vildu gera þegar til lengri tíma er litið í því sambandi. Þar er einnig ákveðið að tíminn til áramóta verði notaður til að fjalla í samráði við hagsmunaaðila um vanda útgerðar og aðgerðir til að bæta rekstrargrundvöll á næsta ári. Þessi vinna er nú að hefjast. Einn almennur fundur hefur verið haldinn, þar sem m.a. sjávarútvegsnefndum Alþingis var boðið. Annar mun fljótlega verða haldinn. Einnig hefur sjútvrn. ritað öllum þingflokkum og óskað eftir því að þeir tilnefni mann til samráðs við rn. um þetta mál eða þennan þátt í samþykkt ríkisstj. Geri ég mér vonir um að það starf geti hafist fljótlega. Ég vil geta þess að ég geri að sjálfsögðu ráð fyrir því að fulltrúar útgerðar og sjómanna taki þátt í því starfi.

Ég sé ekki ástæðu til þess, herra forseti, að fara fleiri orðum um þetta mál. Ég held að ég hafi drepið á flesta veigamestu þættina. Aðalatriðið er þetta, að sjávarútvegur, og þá fyrst og fremst útgerðin, hefur orðið fyrir mjög miklum skakkaföllum á þessu ári vegna aflabrests, sem hefur orðið til þess að útgerðin hefur ekki getað staðið undir þeim kostnaði sem á hana hefur hlaðist með alls konar hækkunum, t.d. á olíu, og reyndar vil ég leggja áherslu á, ekki síður stórhækkuðum fjármagnskostnaði. Fjármagnskostnaður útgerðarinnar er gífurlegur, ekki síst þar sem um mjög mikið af dollaralánum er að ræða, sem tekin hafa verið undanfarin mörg ár bæði til nýsmíði hér á landi og kaupa á fiskiskipum, þó að erlend skip búi þar reyndar nokkuð betur yfirleitt. Yfirleitt eru lán á slíkum skipum í öðrum gjaldmiðli. Ég vil ekki halda því fram að menn hafi getað séð fyrir þá hækkun sem orðið hefur á dollaranum. Hins vegar kemur í ljós að raunvextir, t.d. á dollaralánum hjá Fiskveiðasjóði, urðu á síðasta ári 23%. Þetta hefur að sjálfsögðu valdið útgerðinni gífurlegum búsifjum, gífurlegum vandræðum og aukið mjög mikið þann fjármagnskostnað sem útgerðin ber, sem hún hefur ekki getað staðið undir, þegar tekjur hennar hafa dregist svo gífurlega saman sem fram kemur í þeim tölum sem ég las áðan um breytingu á afkomu útgerðar frá upphafi árs til maí og júní á þessu ári. Það er ekki um annað að ræða en að taka á þessum vanda, og vitanlega þarf að leysa hann til frambúðar. Ég vil geta þess að lokum að eftir þær aðgerðir, sem nú hefur verið gripið til, telur Þjóðhagsstofnun að afkoma útgerðar í heild sé á bilinu - 1.5 til - 4.5%, framreiknuð til 12 mánaða að sjálfsögðu. Þarna er nokkurt hlaup, sem ræðst af aflabrögðum. Í því fyrra er gert ráð fyrir svipuðum afla og varð á síðasta ári, en í því síðara fyrir aflabresti eins og varð á fyrri hluta þessa árs.

Það er að sjálfsögðu ekki viðunandi að útgerð sé rekin til langframa með svo miklum halla eins og verið hefur undanfarin mörg ár. Og það er reyndar ekki aðstaða til þess fyrir útgerðina að velta á undan sér slíkum hallarekstri. Á þessu þarf að verða breyting. Því þarf að taka á þessu máli og ekki aðeins þá að fjalla um aðgerðir eins og felast í þessu frv., heldur einnig um afkomu útgerðar á langtum breiðari grundvelli. Kanna þarf til hlítar hvernig er hægt að bæta afkomu íslensks sjávarútvegs.

Að þessu mæltu vil ég leggja til, herra forseti, að frv. því sem nú er til umr. verði vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.