30.11.1982
Sameinað þing: 23. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 900 í B-deild Alþingistíðinda. (609)
60. mál, rafvæðing dreifbýlis
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Það er nú komið glögglega fram að efnislega hefur þetta mál iðulega borið hér á góma á hv. þingi. Má fara svo langt aftur sem ég man. Ég hafði hér setu fyrir 12 árum. Til umr. kom þá margt spaugilegt, m.a. sú hugmynd að ekki væri rétt að miða lengd linu við leið yfir fjallvegi heldur ætti að taka beina loftlínu. Brostu þá sumir í kampinn. Menn hafa m.ö.o. komið með ýmsar hugmyndir til lausnar þeim vanda að koma samveitu á um allt land. En fram hjá þeirri staðreynd verður ekki gengið að það hefur verið góður áhugi hér á hv. Alþingi til að þoka málinu áleiðis. En það hefur þó tekið þennan tíma. Vegna hvers tekur það langan tíma? Af því að það kostar mikla fjármuni. Við höfum orðið nauðugir viljugir að raða fjármunum eftir getu og forgangskröfu og það er í mörg horn að líta.
Hins vegar hef ég hér áður lýst því yfir, og það mætti einnig gefa gaum að því mjög glögglega — vegna þess að það kostar margfalt, margfalt minna, en er viðkvæmt deilumál þó — að hjálpa bændum eða jafnvel gefa þeim fullkomna dísilsamstæðu til þess að þeir fengju rafmagn á sína bæi og gætu notað hana í 5–10 ár. En menn hafa jafnan haldið sig við þetta orðalag, að þeir kæmust í samveitu, og ekki hugleitt hitt alvarlega. Ég vil því enn einu sinni vekja athygli á þeirri staðreynd að enn liggja utan þessara áætlana allmörg býli, enda segir hér í seinasta lið þessarar ályktunar: „Jafnframt verði gerð og lögð fram áætlun um lausn á raforkumálum þeirra býla sem ekki hafa verið tengd samveitu að áætlunartímabili loknu.“
Það hefur ekki komið fram ennþá hjá frsm. né öðrum flm., hv. þm. Guðmundi Bjarnasyni, hve mörg býli lægju hér utan við og hvort mögulegt væri að hjálpa þessum býlum — e.t.v. hefur það ekki verið athugað-með að kaupa eða lána með mjög hagkvæmum kjörum dísilrafstöð. Það er auðvitað, eins og hv. síðasti ræðumaður gat um, óviðunandi — ég held að við stöndum allir saman, í því — að menn hafi ekki rafmagn núna á sveitabýlum á Íslandi. Það er nánast háðung. Fer ég þó ekki út í pólitíska deilu um það hvers vegna það er ekki gert, né að hlakka yfir því að hér skuli tíu hv. framsóknarmenn bera þessa till. fram. Þetta er svo gamalt mál að við höfum allir staðið að því sitt á hvað að leggja þessu lið.
Ég vil aðeins vekja athygli á því að þetta kostar fjármagn og mun kosta tugi mill j. að koma þessu í gegn. Þess vegna vil ég í leiðinni að það sé hugleitt ósköp rólega og yfirvegað hvort hægt er að hjálpa mönnum með rafmagn mun fyrr með dísilrafstöðvum, því að þær eru orðnar mjög góðar, hávaðalausar miðað við fyrri tíma og þægilegar í öllu öryggi og rekstri vegna aukinnar tækni á þessu sviði. Ég held að þm. ættu að spara sér stóryrði á báða bóga í þessu efni og mynda heldur samstöðu, sem virðist vera nokkuð góð, um að taka hér myndarlega á gagnvart árinu 1983 og 1984. Hv. 5. þm. Norðurl. e. drap réttilega á að hér verður að vera ákveðin forgangsröð. Það verður ekki hægt að komast hjá því. Við verðum bara að vera menn til þess að raða hlutunum eins og heppilegast er til lausnar en ekki upphrópunar.
Ég vildi, herra forseti, láta þetta koma fram, að ég tel að hér sé góð samstaða um að þoka málinu sómasamlega áfram, gegn því að menn hafi ekki öfgar uppi í tali sínu.