30.11.1982
Sameinað þing: 23. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 905 í B-deild Alþingistíðinda. (612)

60. mál, rafvæðing dreifbýlis

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Hv. 3. þm. Norðurl. v. hrökk við þegar ég byrjaði að tala áðan. Og að því er skilið verður þá hafði það helst verið af því að ég hafði sagt að það væri ekki rétt að tala um áætlun orkuráðs frá 1982 heldur 1975. Það er búið að ræða kannske óþarflega mikið um þetta atriði. Hv. 5. þm. Norðurl. e. vék líka að þessu og það var svo að skilja á honum að áætlun frá 1982 væri ný áætlun af því að breytt hefði verið einhverri röð í upptalningu á sveitabæjum. Eitthvað fleira af þessu tagi hefur komið fram í þessum umr. og hv. þm. Norðurl. v. hefur hnykkt á þessu með því að vitna í bréf orkuráðs frá 14. apríl. (Gripið fram í: Fundargerð.) Fundargerð frá 14. apríl 1982. (JÁH: Það er það nýjasta.) Já, það er það nýjasta. Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta. Það er náttúrlega alveg rétt, sem hv. 3. þm. Norðurl. v. sagði, að í þeirri umr. sem hér fer fram er þetta ekki aðalatriðið. Við skulum bara ganga út frá því. En til þess að menn standi ekki í þeirri meiningu að það sem ég hef verið að segja í þessu efni sé einhver misskilningur, þá vil ég lesa hérna upp úr fundargerðinni, sem hv. 3. þm. Norðurl. v. er að vitna í, plaggið sem þar fylgir með. Þar er talað um þessa röð sveitabæja sem hann vitnar til. Þar stendur með leyfi hæstv. forseta:

„Samkvæmt áætlun orkuráðs um rafvæðingu sveitanna, sem miðast við að samveita nái til allra býla landsins með allt að 6 km eins vírs línu á býli, er eftirtöldum verkefnum ólokið.“ Þar er talið upp það sem er ólokið af þessari heildaráætlun. Ég held að þetta skýri þetta atriði og þurfi ekki frekar að ræða það.

Í sambandi við áætlunina, sem gerð var 1972, er rétt að taka fram að þá var gert ráð fyrir, eins og ég reyndar kom inn á áðan, að þörfum þeirra bæja sem höfðu meiri vegalengd á milli sín en að meðaltali 6 km yrði svarað á annan veg en að tengja þá samveitum. Það var alltaf gert ráð fyrir þessu í upphafi, þegar þessi áætlun var gerð. Þá var þetta nákvæmlega metið af sérfræðingum eftir mjög ítarlega athugun, hvar ætti að setja mörkin fyrir bæi sem kæmu inn á samveitur annars vegar og bæi sem ekki kæmu inn á samveitur hins vegar. Og þá voru fundin út þessi 6 km mörk. En það var alltaf frá upphafi gert ráð fyrir því að sérstakar ráðstafanir yrðu gerðar til þess að svara þörfum þeirra sem afskekktari voru og náðu ekki til samveitna.

Hv. 6. þm. Norðurl. e. var að tæpa á því að það gæti verið rétt að gefa bændum dísilstöðvar í stað þess að tengja býli þeirra við samveitur. Ég skal ekki fara út í þetta. Það má sjálfsagt finna einhver rök sem hníga í þessa átt, en málið er nú kannske ekki alveg svo einfalt. Þegar orkuráð á sínum tíma var að ræða og hefur margoft rætt um síðan hvaða ráðstafanir skuli gera fyrir þá bændur, sem eru utan við samveitur, þá var ýmislegt fleira sem kom til greina heldur en þetta úrræði. Hv. 6. þm. Norðurl. e. talar um að það eigi að hugsa rólega og alvarlega um þetta. Ég get fullvissað hann um það, að þeir menn, sem ég hygg að hafi hugsað mest um þetta og rannsakað það best, hafi bæði verið rólegir og alvarlegir í gerðum sínum.

Hv. 5. þm. Norðurl. e. kom með ágæta spurningu, í hvaða tilgangi sem það skyldi nú hafa verið. Hann spurði hvort í tíð ríkisstjórna fyrir árið 1978, að mér skildist á tímabilinu 1974–1978, hefði verið orðið við óskum mínum um fjármagn til sveitarafvæðingar. Hvort það hefði þá verið fellt eins og ég sagði að hefði verið gert síðar. Ég veit nú ekki alveg hvaða þýðingu þetta hefur fyrir umr. hér í dag eða lausn á þeim verkefnum sem við stöndum frammi fyrir núna. En eitthvað vakir fyrir hv. 5. þm. Norðurl. e. með þessari spurningu. Ég vil því leitast við að svara henni af fyllstu samviskusemi.

Í tíð ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar voru gerð mestu átökin í þessum efnum á síðari árum. Það er einmitt því að þakka hve vel hefur miðað áfram. Ég var ákaflega ánægður með vinnubrögð þá — með einni undantekningu. Ég vil líka skýra frá því. Síðasta árið sem sú ríkisstj. var við völd gerði hún ekki eins vel í þessu efni og hún hefði átt að gera og ég hef margoft lýst. Það er svo einkennilegt að það var eins og þá væri það komið yfir menn sem þurfti yfir menn að ganga á eftir, að sýna þessu máli ekki þann áhuga sem ég tel að hefði átt að gera. Ég nefndi stjórn Geirs Hallgrímssonar. Það vill nú svo til, að framsóknarmenn voru í þeirri stjórn og studdu þá stjórn, svo að þeir þurfa ekki að fyrirverða sig fyrir það sem gert var í þá tíð. En það er dálítið athyglisvert að þegar Framsfl. kom svo í stjórn á eftir með öðrum en sjálfstæðismönnum, þá fellur yfir þá framsóknarmenn doði og sinnuleysi í þessum málum sem ekki varð vart við meðan þeir voru undir stjórn sjálfstæðismanna.

Það var eitt sem hv. 3. þm. Norðurl. v. sagði og gerði dálítið úr og kom mér á óvart. Hann virtist standa í þeirri meiningu að ég hefði verið að deila á þá þáltill. sem hér er til umr. á þeirri forsendu, að ekki væri lagt þrífasa rafmagn á þá bæi sem talað er um að rafvæða á næstu tveim árum. Hv. þm. lagði út af þessu. Ég vil aðeins segja að þetta er allt hreinn misskilningur. Ég tók einmitt mjög skýrt fram að ég og þeir sem hafa staðið að þeim till. sem ég hef verið fylgjandi gerðu ráð fyrir einfasa línu og orkuráð hefur alltaf reiknað með að hinni eiginlegu sveitarafvæðingu væri lokið með einfasa línu. Allt það sem hv. þm. sagði á þeim grundvelli að ég hefði verið á annarri skoðun í þessu efni en hann sjálfur er alger misskilningur.

Hv. 3. þm. Norðurl. v. hafði eftir mér að orkuráð legði til að þetta verkefni sem við ræðum væri framkvæmt á skemmri tíma en þáltill. gerir ráð fyrir. Hv. þm. sagði: Ja, ég veit ekkert um það. Og hann sagði líka: Mér kemur það ekkert við. Okkar till. er um að framkvæma þetta á tveim árum og að tala um eitthvað annað (Gripið fram í.) þá er um yfirboð að ræða, eins og hann sagði. Ég leyfi mér algerlega að mótmæla þessu, að það sé yfirboð ef ég nefni það að rétt sé að ljúka þessu verkefni á einu ári. Ég hef síðan 1979 á hverju ári borið fram tillögu um að ljúka verkefninu á næsta ári. Og þegar ég undirstrika það hér, sem ég hef verið að segja í nokkur ár, þá segir hv. þm. að það sé bara yfirboð. Eins og mér hafi ekki komið þetta til hugar fyrr en þessi þáltill. kom hér fram. Þetta er náttúrlega misskilningur.

Hæstv. iðnrh. hefur nú vikið af fundi. Það gerir kannske ekki mikið til. Ég ætlaði ekki að segja margt um það sem hann lagði til mála í sinni ræðu. Hann ræddi aðallega um Framkvæmdasjóðinn og Byggðasjóðinn og taldi að það hefði komið fram hér í umr. einhver misskilningur á því, hvort það væri Framkvæmdasjóðurinn eða Byggðasjóðurinn, sem væri til þess búinn að leysa þann vanda sem við stöndum frammi fyrir í sveitarafvæðingarmálinu, þ.e. að útvega fjármagn til að ljúka þessu verkefni þegar. Ég sé enga ástæðu til að fjölyrða um það, hvort það er Framkvæmdasjóður eða Byggðasjóður sem hæstv. iðnrh. bindur vonir við í þessu máli. Frá mínu sjónarmiði skiptir það ekki máli. Það skiptir máli að fá þessa peninga og mér er nákvæmlega sama hvort það er gegnum Framkvæmdasjóð eða Byggðasjóð. Engin formsatriði skipta hér nokkru máli. Það sem skiptir mestu máli er að af stjórnvöldum og undir forustu hæstv. iðnrh. séu þegar í stað fengin úrslit í þessu máli, það sé ekki lengur beðið og beðið án þess að nokkur hlutur gerist, því að allt er undir því komið að fá fjármagn til þeirra verka sem við erum að tala um. Hæstv. iðnrh. orðaði það svo: Það kostar fé að rafvæða sveitabæi. Það er alveg rétt, það kostar fé. En ég hef litið svo á að það væri mörkuð stefna, sem a.m.k. engin ríkisstjórn frá 1975 hefur mótmælt eða sagt að hún fylgdi ekki, að rafvæða alla sveitabæi sem eru innan við 6 km fjarlægðarmörkin og tengja við samveitu. Ef menn meina eitthvað með þessu, ef stjórnvöld meina eitthvað með þessu, þá á þeim ekki að verða skotaskuld úr því að leysa þetta mál. Það má ekki henda að ríkisstj. eða hæstv. iðnrh. bíði lengur eftir svari sem hann á að fá og varðar framkvæmd þessa máls.