30.11.1982
Sameinað þing: 23. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 907 í B-deild Alþingistíðinda. (613)

60. mál, rafvæðing dreifbýlis

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Það leynir sér ekki að þessi mál eru ofarlega í hugum hv. þm. sem eðlilegt er. Það er alveg rétt, sem kom fram hjá hv. 4. þm. Vestf., að þetta eru mál sem oft hafa verið rædd hér á hv. Alþingi án þess að árangur yrði eins jákvæður og búast mætti við miðað við þær umr. sem hafa farið hér fram.

Ég held að það fari framhjá mörgum, sem um þetta ræða, að það er einn hnútur í þessu máli, sem hefur oftar en einu sinni komið upp á yfirborðið, og það er að sveitarafvæðingin og styrking dreifilína í sveitum eru gjarnan flokkaðar undir félagslegar framkvæmdir Rafmagnsveitna ríkisins. Þar stendur hnífurinn í kúnni vegna þeirrar einföldu ástæðu, að fjöldi manna í okkar þjóðfélagi og fjöldi hv. þm. vill ekki fallast á að flokka þessar framkvæmdir undir félagslegar framkvæmdir, þ.e. að sveitarafvæðing og styrking dreifilína í sveitum séu framkvæmdir greiddar úr sameiginlegum sjóði. Þetta er höfuðorsökin fyrir því að ekki hefur náðst samkomulag hér á hv. Alþingi um að ljúka þessu verkefni eins og þó hefði átt að gera fyrr.

Ég fagna því sérstaklega sem einn af flm. þessarar þáltill., að á hv. Alþingi hafa menn úr öllum flokkum lýst stuðningi við þetta verkefni. Ég vonast satt að segja til þess, að í umr. sem eftir eiga að fara fram í fjvn. verði reynt að ná allsherjarsamkomulagi um að falla frá þeirri skoðun að óeðlilegt sé að sveitarafvæðing sé félagslegar framkvæmdir. Ég mun kalla eftir því að við það verði staðið þegar að því kemur. Það væri lausn á málinu. Það er ég alveg sannfærður um.

Það kom fram hér að það eru nokkur býli, um 30 býli, sem ekki eiga þess kost að tengjast samveitu miðað við lengra en 6 km vegalengd. Mér fannst bera á ókunnugleika hjá hv. 6. þm. Norðurl. e. í því sambandi því að það er aðgangur að fjármagni til að setja upp dísilrafstöðvar fyrir þessa staði. Það hefur sem betur fer víða verið gert. Hins vegar er það ekkert tilhlökkunarefni fyrir viðkomandi fólk að þurfa að kynda upp með olíu.

Ég vil einnig leggja áherslu á annað sem er ákaflega nauðsynlegt í sambandi við styrkingu á dreifikerfi í sveitum. Það stendur núna byggð víða fyrir þrifum að ekki er hægt að nýta þriggja fasa rafmagn. Ég veit um dæmi þess. T.d. eru heimamenn á Arnarstapa á Snæfellsnesi að reyna að styrkja búsetu þar með því að setja upp léttan iðnað, framleiðslu á einangrunarefni úr vikri, sem þeir hafa mikinn markað fyrir, en þetta mál stendur núna fast vegna þess að ekki er hægt að fá þriggja fasa lögn út að Arnarstapa. Það er ekki fjármagn til hjá Rafmagnsveitum ríkisins til að framkvæma þetta. Svona er þetta víða í sveitum. Því er mjög áhugavert mál að hægt sé að finna sameiginlega möguleika á því að fjármagna slíkar framkvæmdir.

Ég ætla ekki að tefja umr., herra forseti. Ég vildi aðeins láta þetta koma hér fram, en ég vil benda á það, sem kom fram hér hjá hv. 5. þm. Norðurl. e., að við höfum fyrir okkur ákaflega góða reynslu af ákvörðun sem Alþingi tók í svona viðkvæmu máli, ákvörðun um lagningu sjálfvirks síma um landið. Þá var samþ. með lögum framkvæmdaáætlun sem ekki er hægt að víkja frá og þegar er búið að vinna að, tveimur árum síðar, með þeim árangri sem að var stefnt. Þess vegna er vissulega umhugsunarefni hvort Alþingi á ekki einmitt í svona erfiðum byggðamálum að fara inn á þá braut að gera fyrir fram ákveðna áætlun um hvernig framkvæma skuli og setja um það lög sem ekki er hægt að víkja frá. Þetta var gert varðandi lagningu sjálfvirks síma og innan þriggja ára verður því verkefni lokið. Þess vegna tek ég undir þá hugmynd, ef þessi þáltill. verður samþykkt, að þetta sé ein leiðin til að tryggja að rafvæðingu sveita verði lokið innan tveggja ára.

Ég ætla ekki að segja meira, herra forseti, en ég legg áherslu á að þetta er félagslegt vandamál sem allir verða að vera samtaka um að leysa.