02.12.1982
Sameinað þing: 24. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 920 í B-deild Alþingistíðinda. (629)
265. mál, stjórn og starfræksla póst- og símamála
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Mér fannst eftirtektarverð yfirlýsing hæstv. samgrh. um það, að samkv. upplýsingum póst- og símamálastjórnar þyldi kerfið ekki að verð yrði jafnað eða verðið yrði lækkað á ákveðnum svæðum landsins. Það er m.ö.o. verið að gefa yfirlýsingu hér á hv. Alþingi um það, að sú áætlun sem hefur verið lögð fram um dreifingu sjálfvirks síma um landið sé á þann hátt uppbyggð að ekki komi til mála að gjald verði lækkað á landsbyggðinni eða samræmt að fullu gjald landsbyggðar og þéttbýlis. Mér þótti ástæða til að undirstrika þetta. Mikið er nú talað um tæknivæðingu og góða tæknimenn hjá Pósti og síma. En ef tæknimenntunin og hæfileikar til þess að búa til góðar áætlanir eru byggð á svona forsendum, þá gef ég ekki mikið fyrir það.
Annað kom fram í seinni ræðu hæstv. samgrh. Það voru upplýsingar um að það væru aðeins tvær hringingar á viku sem virtust hafa komið fram í könnun á lokunartímabilinu frá kl. 5 á föstudögum til kl. 9 á mánudögum. Ég á voðalega erfitt með að trúa því að á stöðum eins og t.d. Akranesi, Keflavík og fleiri stöðum, t.d. Austfjarðahöfnum nú á síldveiðitímanum, hafi ekki verið þörf á fleiri hringingum en tveim á viku. Vitaskuld eru þær margfalt fleiri. Svona upplýsingar eru óskaplega gagnstitlar og að vissu leyti vanvirða af stofnun eins og Póst- og símamálastofnun að gefa svona upplýsingar. Þær geta ekki verið annað en rangar.