02.12.1982
Sameinað þing: 25. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 947 í B-deild Alþingistíðinda. (657)
101. mál, umferðarmiðstöð á Egilsstöðum
Guðmundur Gíslason:
Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa langa tölu hér um þessa till. Ég vil lýsa eindregnum stuðningi mínum við þetta mál sem ég tel mjög mikilsvert. Það kom fram í máli hv. flm. fullkominn rökstuðningur fyrir þessu og eins hefur hv. þm. Skúli Alexandersson bent á hversu nauðsynlegt er að taka þessi mál til heildarskoðunar yfir landið. Ég vil taka undir það. En það er einn þáttur, sem ég vil sérstaklega vekja athygli á, sem fléttast óneitanlega inn í þessa umræðu. Það eru hinar staðbundnu flugsamgöngur innan héraða. Það hefur mátt lesa um það fréttir nú að undanförnu í blöðum að þessi landshlutaflugfélög, sem við getum kallað svo, eigi í stöðugt vaxandi erfiðleikum með sína starfsemi. Má þar benda á flugfélagið Erni á Ísafirði, sem nú hefur hætt póstflutningum að því að mér skilst, vegna þess að þeir treysta sér ekki til að inna þá starfsemi af hendi fyrir það gjald sem Póst- og símamálastofnun er tilbúin að reiða fram.
Á Austurlandi er starfandi Flugfélag Austurlands. Ég vil halda því fram að starfsemi þess sé gífurlega þýðingarmikil fyrir allt samgöngulíf innan fjórðungs á Austurlandi. Það er nú einu sinni þannig, að Austurland er að nokkru skipt í samgönguleg svæði. Má þar telja Vopnafjörð nokkuð afskiptan og eins suðursvæðið, fyrir sunnan Berufjörð. En það er einmitt einna helst Flugfélag Austurlands sem hefur tengt þetta svæði saman. Ég vil koma því hér á framfæri að hið háa Alþingi hugsi vel um starfsemi þessara félaga og standi þar að baki.
Annað vil ég nefna. Það er varðandi vörudreifingarmiðstöðina á Reyðarfirði. Hún hefur tvímælalaust mjög mikið gildi hvað það varðar að létta undir með versluninni í dreifbýlinu, sem á nú ekki sjö dagana sæla. Það gæti tvímælalaust lækkað mjög mikið vaxtakostnað verslunarinnar að hafa slíka aðstöðu, að geta tollafgreitt varning nær markaði og dreift honum þaðan.
Það voru einna helst þessi atriði sem ég vildi minna á. Ég lýsi svo ítrekuðum stuðningi mínum við þessa till. Helgi Seljan: Herra forseti. Sem einn af flm. þessarar till. þarf ég ekki að tala um hana efnislega, enda hafa henni verið gerð fyllilega góð skil í máli hv. 1. flm. Það var aðeins í sambandi við orð hv. 4. þm. Vesturl. sem ég kom hér upp. Ég vildi aðeins rétt minna á það, að enda þótt litið hafi verið gert varðandi skipulag fólks- og vöruflutninga þá var þó gerð ein heiðarleg tilraun til þess arna. Frá henni vildi ég gjarnan greina hér.
Þegar Ragnar Arnalds varð samgrh. setti hann nefnd á laggirnar til þess að vinna sérstaklega að því að samhæfa og samræma sem allra best allt skipulag fólks- og vöruflutninga í landinu. Til þessarar nefndar kallaði hann bæði stjórnmálamenn og ýmsa fulltrúa hagsmunaaðila, sem hlut ættu að þessu, fulltrúa Pósts og síma, fulltrúa flugfélaga, fulltrúa Skipaútgerðar ríkisins, fulltrúa sérleyfishafa og aðra fulltrúa þeirra sem þarna áttu hagsmuna að gæta. Þetta nefndarstarf fór allvel af stað og því var sérstaklega beint að því markmiði sem hér er um talað, þ.e. að huga að umferðarmiðstöðvum. Það var tiltölulega gott samkomulag í þessari nefnd, sem ég get sagt hér af því ég átti sæti í henni. Mér þótti vel unnið þar og menn lögðu sig mjög verulega í líma við að ná endum saman, vegna þess að þarna eru allt of margir lausir endar. Við vorum rétt í þann veginn að ganga til viðræðna við fulltrúa landshlutasamtakanna um það fyrirkomulag sem best gæti þjónað hverjum landshluta fyrir sig þegar skyndileg stjórnarskipti urðu og menn fóru í kosningafrí árið 1979. Síðan kom einhver lægð í þetta og allt í einu fengum við nefndarmenn svo bréf um það að við værum vinsamlegast leystir frá störfum af hæstv. núverandi samgrh. Steingrími Hermannssyni og þetta yrði hins vegar unnið af nefnd á vegum rn. sem mundi taka málið til svipaðrar umfjöllunar.
Af því að mikil vinna hafði verið í þetta lögð og miklum gögnum safnað frá hinum ýmsu aðilum, þá vona ég svo sannarlega að þessi vinna sé til staðar einhvers staðar uppi í ráðuneytinu, þó að ég hafi ekki orðið var við neinn árangur frá þeirri nefnd sem hæstv. samgrh. núverandi hlýtur að hafa skipað í framhaldi af þessu. Það læðist hins vegar að mér sá grunur, að ekki muni mikill vinnuhraði í þeirri nefnd og menn hafi ekki mikla von um árangur. Ég sé ekki betur en að fjórir hv. samflokksmenn hæstv. samgrh. séu búnir að flytja till. hér um skipulag fólks- og vöruflutninga, þeir hv. þm. Davíð Aðalsteinsson, Páll Pétursson, Sigurgeir Bóasson og Alexander Stefánsson. Sýnir það glögglega að þeim þykir ekki af veita að ýta við sínum ráðh. með þetta mál. Ber að þakka þeim fyrir það ef hann hefur sofnað Þyrnirósarsvefni í þessum efnum.