06.12.1982
Neðri deild: 14. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 959 í B-deild Alþingistíðinda. (673)

39. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Það frv. sem ég hér mæli fyrir um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt var flutt á s.l. Alþingi, en náði þá ekki fram að ganga.

Efni þessa frv. er að greiða fyrir kjararannsóknum á þann hátt að Kjararannsóknarnefnd fái aðgang að upplýsingum úr skattframtölum, sem að mati okkar flm. þessa frv. er auðveldasta og fljótvirkasta leiðin til að fá fram hina raunverulegu tekjuskiptingu í þjóðfélaginu.

Á s.l. Alþingi, þegar frv. þetta var til meðferðar í fjh.og viðskn., var það sent til umsagnar ríkisskattstjóra og Kjararannsóknarnefndar. Kjararannsóknarnefnd gaf ekki umsögn um málið, en þess í stað komu umsagnir frá ASÍ og Vinnuveitendasambandinu. ASÍ lýsti stuðningi sínum við frv. og taldi að það mundi greiða fyrir kjararannsóknum. Aftur á móti mælti Vinnuveitendasambandið gegn samþykki frv., en í umsögn þess sagði m.a., með leyfi forseta:

„Kjararannsóknarnefnd er sjálfstæður samstarfsvettvangur Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaga annars vegar og Alþýðusambands Íslands hins vegar. Nefndin er með öllu óháð stjórnvöldum og um hana gilda engar lagareglur aðrar en bráðabirgðaákvæði laga um atvinnuleysistryggingar að því er varðar kostnað af starfsemi hennar. Meðan aðilar hafa ekki gert með sér frekara samkomulag um starfsemi nefndarinnar mælir Vinnuveitendasambandið gegn hvers konar lagasetningu er nefndina varðar.“

Þessum viðbrögðum VSÍ við frv. er erfitt að átta sig á því með samþykkt frv. væri Kjararannsóknarnefnd ekki beitt lögþvingunum á neinn hátt varðandi starfsemi sína, heldur væri þvert á móti opnuð leið til að auðvelda kjararannsóknir vildi hún notfæra sér hana. Enginn skyldar hana til að notfæra sér þá leið, heldur er með þessu frv. opnuð hagkvæm og fljótleg leið til kjararannsóknar.

Benda má einnig á, að með samþykkt frv. væri löggjafarvaldið fyrst og fremst að auðvelda framkvæmdavaldinu að fara að vilja Alþingis, sem fram kom þegar Alþingi samþykkti þáltill. um kannanir á tekjuskiptingu og launakjörum. Till. þessi var margþætt og yfirgripsmikil og laut að upplýsingaöflun og úrvinnslu fjölmargra þátta er snerta kaup og kjör í landinu, en í þeirri till. var bent á að Kjararannsóknarnefnd í tengslum við Þjóðhagsstofnun ynni það verk sem var gert ráð fyrir í till. Má einnig benda á að umsagnir aðila vinnumarkaðarins og Kjararannsóknarnefndar voru mjög jákvæðar gagnvart þeirri till. Væri þessi leið farin, sem lögð er til í þessu frv., sem ég undirstrika að hvergi skyldar Kjararannsóknarnefnd í sínu starfi, heldur fyrst og fremst auðveldar henni starf og upplýsingaöflun, mundi slíkt fyrirkomulag á úrvinnslu, sem hér er lagt til, tryggja að þeir hagsmunir, sem helstu samtök atvinnurekenda og launþega eiga að gæta í þessum efnum, væru að fullu tryggðir.

Í frv. er lagt til að Kjararannsóknarnefnd fái aðgang að upplýsingum um kjaramál úr skattframtölum, auk þess sem Kjararannsóknarnefnd hefði áhrif á hvort og þá með hvaða hætti óskað væri ítarlegri upplýsinga um launagreiðslur og vinnutíma á launaseðlum en nú er gert. Í lögum um tekjuskatt og eignarskatt er skattyfirvöldum gert skylt að veita Hagstofu Íslands og Þjóðhagsstofnun skýrslur í því formi er þessir aðilar ákveða um framtaldar tekjur og eignir. Eins og allir vita gegnir Kjararannsókn. arnefnd ekki síður en þessir aðilar mikilvægu hlutverki á sviði kjararannsókna og því er ekki síður nauðsynlegt að Kjararannsóknarnefnd hafi sem greiðastan aðgang að öllu er að gagni mætti koma við kjararannsóknir.

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um að kauptaxtar, sem Kjararannsóknarnefnd aðallega byggir sína gagnasöfnun á, eru langt frá því að vera mælikvarði á raunverulegar tekjur margra launþega. Í kjarasamningum og kjaradeilum er einatt deilt um prósentuhækkanir á almenna kauptaxta í landinu. Víst er það svo, að kauptaxtar, sem um er deilt, eru mælikvarði á launatekjur láglaunafólksins í þessu landi, en það er ljóst að yfirborganir og aðrar duldar greiðslur eru orðnar afgerandi þáttur í kjörum margra, þ.e. þeirra sem betur mega sín í þessu þjóðfélagi. Síðan verður láglaunafólkið að sætta sig við kauptaxtana sem allir viðurkenna að enginn geti lifað af.

En hvernig á að breyta þessu ef ekki fæst upp á borðið hvað þessar duldu greiðslur og kjarabætur eru orðnar stór hluti af launatekjum fólks í landinu? Hvernig eiga stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins að geta fundið raunhæfa leið til að breyta tekjuskiptingunni, bæta á raunhæfan hátt hlut hinna verr settu, ef ekki er leitað leiða til að fá upp á borðið raunverulega tekjuskiptingu í þjóðfélaginu? Það veit enginn hvað þessi þáttur er orðinn stór í þjóðfélaginu, hve mikið er greitt til launþega framhjá öllum kjarasamningum, hve stór hluti launatekna og alls konar fríðinda er greiddur undir borðið framhjá öllum kjarasamningum, hve miklu atvinnurekendur raunverulega ráðstafa sjálfir framhjá kjarasamningum.

Því er haldið fram að launakostnaður atvinnurekenda sé orðinn svo mikill að atvinnuvegirnir standi ekki undir honum, en ég spyr aftur: Hve stórum hluta launakostnaðarins hafa atvinnurekendur ráðstafað sjálfir til hinna betur settu framhjá allri réttlátri tekjuskiptingu í landinu, þannig að launabilið vex stöðugt í landinu, og hvaða áhrif hefur þetta fyrirkomulag yfirborgana og duldra greiðslna á verðlag í landinu? Er þeim ekki velt út í verðlagið einnig? Hefur Verðlagsstofnun eitthvert eftirlit með því, þegar sótt er um verðlagshækkanir, hvaða áhrif yfirborganir og aðrar duldar greiðslur hafa á verðlagsþróun í landinu? Þurfa ekki þeir launþegar einnig, sem framfæra þurfa sig og sína fjölskyldu af launatöxtunum eingöngu, að standa straum af þeim greiðslum, sem hyglað er hinum betur settu, ef atvinnurekendur velta þessum greiðslum út í verðlagið?

Sjálfsagt er það svo, að ýmsir komast upp með að greiða ekki skatt af öllum sínum launatekjum, en engu að síður tel ég það raunhæfustu leiðina til að fá fram hina raunverulegu tekjuskiptingu í þjóðfélaginu að skattframtölin séu meira nýtt til kjararannsókna, en það er auðvitað grundvöllur þess að hægt sé að leita leiða til að bæta sérstaklega kjör þeirra verst settu í þjóðfélaginu. Fullkomin yfirsýn og þekking á hinni raunverulegu þróun kjaramála er líka alger forsenda þess að efnahags- og kjaramálum verði stjórnað af einhverri skynsemi og sanngirni þannig að við vitum hvert stefna skal, en ekki sé eilíflega rennt blint í sjóinn með allar ákvarðanir er snerta kaup og kjör í landinu. Ég tel það alveg ljóst, að ein höfuðástæða þess að tekjulægstu hóparnir í þjóðfélaginu virðast ávallt uppskera minnst eftir hverja samningsgerð sé ekki síst hvað lítið er vitað um hina raunverulegu tekjuskiptingu í landinu.

Í frv., sem ég hér mæli fyrir, er eins og áður hefur verið sagt gert ráð fyrir að auk þess sem Kjararannsóknarnefnd fengi aðgang að upplýsingum úr skattframtölum til kjararannsókna fengi Kjararannsóknarnefnd að hafa hönd í bagga með því hvaða upplýsinga væri óskað á launaseðlum og launaskýrslum. Með því opnuðust mjög þýðingarmiklir möguleikar á að öðlast vitneskju um skiptingu á heildartekjum, sundurliðun eftir dagvinnugreiðslum, eftir- og næturvinnugreiðslum annars vegar og hins vegar skiptingu á öðrum greiðslum. Þar með opnuðust möguleikar á því að fá fram hvaða þáttur launakjara sé mest ákvarðandi um launatekjur hverrar starfsstéttar fyrir sig, þ.e. dagvinnutaxtar, yfirvinnutaxtar, afkastahvetjandi launataxtar eða aðrar greiðslur og kjaraþættir. Allar þessar upplýsingar gætu orðið mjög þýðingarmiklar fyrir hið opinbera ekki síður en fyrir aðila vinnumarkaðarins að því leyti sem þær upplýstu samsetningu launatekna og vinnumagn í einstökum greinum atvinnulífsins, en við alla kjarasamningagerð og stjórnvaldsákvarðanir er notagildi þeirra upplýsinga sem þar fengjust mjög þýðingarmikið. Að þessu athuguðu tel ég að sú leið, sem hér er lögð til, sé bæði hagkvæmust og fljótvirkust til að ná því markmiði að upplýsa hina raunverulegu tekjuskiptingu og launakjörin í landinu, en Alþingi hefur þegar lýst yfir vilja sínum til þess með samþykkt þáltill. þar að lútandi vorið 1980.

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að óska eftir að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til fjh.- og viðskn.