06.12.1982
Neðri deild: 14. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 963 í B-deild Alþingistíðinda. (679)
62. mál, tollskrá
Flm. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Hæstv. fjmrh. hefur lofað því a.m.k. tvisvar í fjárlagaræðu — ég man þó ekki hvort hann gerði það í haust — að tollskrá skuli endurskoðuð og lögð fram samræmd. Ástæðan er sú, að hún er mjög úrelt orðin og ekkert samhengi lengur milli einstakra tollflokka. Þar að auki er orðið svo flókið að semja tollskrá að hér er fyrirtæki starfandi í Reykjavík sem einungis léttir því lítilræði af mönnum fyrir sanngjarna þóknun.
Það hefur löngum verið stefna bæði mín og flokks míns að einfalda verði tollskrána og raunar öll opinber gjöld. Auðvitað má segja að eðlilegt hefði verið að maður reyndi í samræmi við það að ráðast í að leggja fram frv. um nýja tollskrá. Það er þó varla á færi einstakra þm. Niðurstaðan hefur því orðið sú, að menn freistast til að leiðrétta smátt og smátt það sem verst er í tollskránni. Á síðasta þingi tókst að lækka tolla af hljóðfærum. Nú ræðst ég á þann lið sem veit að gleraugum.
Það er almennt viðurkennt í okkar þjóðfélagi að þeir sem ekki hafa fulla heilsu eigi rétt á nokkurri samtryggingu. Margvísleg læknisþjónusta og heilbrigðisþjónusta er raunar ókeypis. Ég er þeirrar skoðunar, að vel geti komið til álita að kostnaður við lækningar eða vegna sjúkdóma skuli frádráttarbær frá tekju- og eignarskatti þó svo að ég hafi enn ekki flutt frv. þess efnis. Það frv. sem hér liggur fyrir veit aftur að því að létta tollum af gleraugum, gleraugnagleri og vökvum sem notaðir eru við svokallaðar snertilinsur. Á þskj. 64 legg ég jafnframt til að vörugjald verði fellt niður af þessum sömu verðflokkum.
Eins og fram kemur í grg. frv. er 15% tollur á umgjörðum og gleraugnagleri og að auki 32% vörugjald, en undir vissum kringumstæðum greiðir Tryggingastofnun ríkisins 70% af verði gleraugna fyrir börn vegna réttinga ef þau hafa sjónskekkju. Hér kemur jafnframt fram, að á vökvum sem notaðir eru við svokallaðar „kontaktlinsur“ eða snertilinsur eru þessir vökvar í þrem tollnúmerum. Tollur er ýmist enginn, 15% eða 50% og vörugjald ýmist 32 eða 40%. Þetta ósamræmi sýnir raunar að snertilinsur hafa alls ekki verið hafðar í huga þegar tollskráin var samin og alls ekki komið í hug höfundum hennar, enda naumast þekktar hér á landi á þeim tíma.
Ég þarf nú ekki að hafa um þetta mörg fleiri orð. Undir vissum tilvikum getur kostnaður við gleraugu verið tilfinnanlegur fyrir fjölskyldur. Það á einkum við í sambandi við nærsýni, þar sem hún er ættgeng og algengt að allir fjölskyldumeðlimir þurfi þá að ganga með gleraugu ef svo ber undir, sem auðvitað getur verið tilfinnanlegur kostnaður ef börn eru mörg. Gleraugu kosta allt upp í 5–6 þús. krónur. Það er að vísu hægt að fá ódýrari gleraugu, en vönduð gleraugu fyrir menn sem starfa við þannig störf að þeir þurfa á sérstaklega vönduðum gleraugum að halda kosta þetta. Slíkir menn geta þurft að reiða fram 6–7 þús. krónur vegna gleraugna.
Ég tel eðlilegt að við því verði orðið að fella niður þetta innflutningsgjald af réttlætisástæðum, af því að hér er um heilbrigðismál að ræða, og vil leggja til að málinu verði vísað til 2. umr. og fjh.- og viðskn.