06.12.1982
Neðri deild: 14. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 972 í B-deild Alþingistíðinda. (693)

117. mál, Lífeyrissjóður bænda

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breyt. á lögum um Lífeyrissjóð bænda. Lagafrv. þetta er lagt fram í tengslum við frv. til l. um breyt. á lögum um eftirlaun til aldraðra.

Með lögum nr. 3 frá 1977 voru sett ákvæði um sérstaka uppbóta lífeyrisgreiðslur úr Lífeyrissjóði bænda árin 1976 og 1977 til samræmis við samkomulag Alþýðusambandsins og vinnuveitenda í febr. 1976 og þar með breytingu á lögum nr. 63/1971 um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum. Þessi ákvæði um verðtryggingu lífeyris úr Lífeyrissjóði bænda hafa síðan verið framlengd með nokkrum breytingum, nú síðast með lögum frá árinu 1980, en samkv. þeim lögum skyldu verðtryggingarákvæðin gilda til ársloka 1982. Í síðastnefndu lögunum er jafnframt kveðið á um, hvernig útgjöld til verðbótagreiðslna árin 1980–1982 skuli borin og eru ákvæðin um það efni í samræmi við ákvæði laga frá 1979 um eftirlaun til aldraðra.

Í því samkomulagi, sem Alþýðusambandið, Farmanna- og fiskimannasambandið, vinnuveitendur og Vinnumálasamband samvinnufélaganna gerðu 30. júní 1982, var hins vegar gert ráð fyrir óbreyttri tilhögun á verðbótum og kostnaðarskiptingu árin 1983–1984. Hefur verið lagt fram frv. til l. um breytingu á þeim lögum, þar sem auk framlengingar á ákvæðunum um verðtryggingu og kostnaðarskiptingu í samræmi við nefnt samkomulag er gert ráð fyrir hliðstæðri framlengingu á ákvæðum 22. og 25. gr. laganna. Það lagafrv. sem hér er til umr. er við það miðað að framlenging þessara lagaákvæða nái fram að ganga og eigi sér þá stað hliðstæð framlenging á núgildandi verðtryggingarákvæðum laga um Lífeyrissjóð bænda.

Þetta er sem sagt framlengingarfrv. í fullu samræmi við það frv. sem flutt hefur verið um breytingu á lögum um eftirlaun til aldraðra.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv. en legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. fjh.- og viðskn.