06.12.1982
Neðri deild: 14. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 977 í B-deild Alþingistíðinda. (696)
130. mál, málefni fatlaðra
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir góðar undirtektir undir frv. og meðferð þess og þær hugmyndir sem ég lagði fram um hana áðan.
Ég vil aðeins segja út af því sem hún nefndi um svæðisstjórnirnar að svæðisstjórnirnar hafa þegar fjallað um þetta mál á ráðstefnu, sem haldin var í Borgarnesi í sumar, og hafa sent frá sér álit. Það liggur fyrir. Samráðsnefndin hefur þegar fjallað um málið. Ég vil auðvitað að haft verði samráð og leitað umsagna eftir þörfum, en ég held að menn eigi ekki að vera að taka óþarflega mikinn tíma í slíkt. Ég er ekkert viss um að nein brýn þörf sé á því að þetta mál fari aftur til samráðsnefndarinnar eða til svæðisstjórnanna. Ég sting þessu hér að eftir athugasemdir hv. þm. því að ég legg á það höfuðáherslu að þeir sem á annað borð hafa áhuga á þessu máli eru þegar búnir að hafa það á borðinu hjá sér talsvert á annað ár. Engum þessara aðila er vorkunn að hafa þegar komið athugasemdum sínum á framfæri og þingið á ekki að þurfa að gera aðra atrennu að þeim til þess að þeir skili athugasemdum um málið. Þingnefndin á að sjálfsögðu að ráða því hvert hún sendir málið, en það á að vera óþarfi að senda það mjög víða eins og sakir standa. Umsagnir liggja þegar fyrir. Við skulum ekki vera að tefja okkur allt of mikið á því að leita umsagna frá aðilum sem þegar hafa látið í ljós álit sitt á þessu máli.