07.12.1982
Sameinað þing: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 984 í B-deild Alþingistíðinda. (706)
269. mál, verðmyndunarkerfi landbúnaðarins og endurskoðun útflutningsbótakerfisins
Landbrh. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson hefur lagt fram fsp. í þremur töluliðum. Í fyrsta lagi spyr hann um framkvæmd á því er segir í yfirlýsingu ríkisstj. sem lögð var fyrir Alþingi á öndverðu þessu ári. Þar segir, eftir að rætt hefur verið um nýtt viðmiðunarkerfi: „Þá mun ríkisstj. hefja viðræður við aðila um verðmyndunarkerfi sjávarútvegs og landbúnaðar um breytingar á skipan þeirra mála, sem stuðlað gætu að hjöðnun verðbólgu, en tryggt um leið afkomu í þessum greinum.“
Í sambandi við þetta mál og þessar fsp., sem hér eru fram bornar, hafa viðræður af hálfu rn. við fulltrúa bændasamtakanna verið með óformlegum hætti, þ.e. án þess að skipuð hafi verið sérstök viðræðunefnd. Fulltrúar landbrn. hafa annast þær af hálfu rn. og ríkisstj., en af hálfu bændasamtakanna hafa annast þessar viðræður m.a. Ingi Tryggvason formaður Stéttarsambands bænda, Gunnar Guðbjartsson framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs, Gísli Andrésson og Magnús Sigurðsson. Auk þess hefur með óformlegum hætti verið haft samband við fleiri fulltrúa bændasamtakanna.
Í sambandi við fyrri hlutann af þessari fsp. er rétt að taka það fram, að yfirlýsing ríkisstj. um þetta efni höfðar mjög til þess að það er nauðsynlegt að viðræður um nýtt verðmyndunarkerfi fari fram í tengslum við breytingar á vísitölukerfi og viðmiðunarkerfi launþega. Það er m.a. vegna þess að gert er ráð fyrir að upp verði tekið verðbótakerfi sem hefur í för með sér færri útreikningsdaga verðbóta en nú eru í gildi. Um leið fylgir það, að landbúnaðarvörur og fiskverð hækki sjaldnar á ári hverju en gerist eftir núgildandi kerfi. Það er ætlast til þess að verðbótahækkun launa, hækkun búvöruverðs og hækkun fiskverðs fylgist að, þetta gerist allt saman samtímis, verðlags- og verðbótatímabilum verði fækkað. Að öðru leyti hefur verið um það rætt í sambandi við verðmyndunarkerfi landbúnaðarins að áfram verði að því stefnt að tekjur bænda taki mið af því að verða sambærilegar við tekjur annarra stétta, þ.e. verkamanna og sjómanna, svo sem segir í þáltill. ríkisstj. sem lögð var fyrir síðasta Alþingi og lögð hefur verið fram á þessu Alþingi um stefnumörkun í landbúnaði. Ennfremur kemur þar fram, að gert er ráð fyrir að útflutningsbótarétturinn sé hinn sami og verið hefur í gildandi lögum.
Á hinn bóginn segir í þessari þáltill., sem liggur fyrir Alþingi, að stefnt verði að beinni þátttöku ríkisvaldsins í samningagerð. Um þessi efni hafa farið fram viðræður við bændasamtökin. Það er hægt að segja að fyrir liggi frá fyrri tíð ýmsar samþykktir af hálfu bændasamtakanna sem miða í þessa átt, en eins og nú standa sakir er mun meira hik á bændasamtökunum að hverfa að því sem kallað hefur verið „beinir samningar á milli bænda og ríkisvalds um búvöruverð.“ Þessi efni hafa ekki leitt enn til niðurstöðu. En um fyrra atriðið þykist ég mega fullyrða að það verður samræmi á milli þeirra breytinga sem gerðar verða á verðbótatímabilum fyrir launþega og verðlagstímabilum í landbúnaðarvöruverði.
Þá er spurt um endurskoðun útflutningsbótakerfisins fyrir landbúnaðarafurðir í samræmi við yfirlýsingu ríkisstj. sem gefin var út í ágúst s.l., en þar var því einnig lýst yfir að draga ætti úr þörfinni fyrir útflutningsuppbætur. Um þetta segir svo í yfirlýsingu ríkisstj.:
„Unnið verði að því að draga úr þörf fyrir útflutningsuppbætur með því að stuðla að samdrætti í kjötframleiðslu með aðstoð hins opinbera þannig að framleiðslan haldist framvegis í hendur við innanlandsneyslu og nýtanlega erlenda markaði.“
Til þess að þjóna þessu markmiði voru m.a. gefin fyrirheit um 10 millj. kr. úr ríkissjóði á þessu ári til að stuðla að því sem kallað var „fækkun sauðfjár með frjálsum samningum milli Framleiðsluráðs annars vegar og einstakra framleiðenda sauðfjárafurða hins vegar“. Var það gert í þeim tilgangi að draga úr útflutningsbótaþörf. Á hinn bóginn er hér vitnað til þess, sem jafnframt kemur fram í till. ríkisstj. um stefnumörkun í landbúnaði, að framleiðslan haldist í hendur við innanlandsneyslu og nýtanlega erlenda markaði eða „erlenda markaði sem teljast viðunandi“, eins og í stofntill. segir.
Ég tel að enn sé of snemmt að taka upp þá stefnu að miða framleiðslu sauðfjárafurða aðeins við innanlandsmarkað og enn sé of snemmt að slá því föstu að erlendir markaðir kunni allir að reynast óviðunandi. Þess vegna tel ég að nú sé ástæða til að staldra við og fara sér hægt með frekari samdrátt en þegar er orðinn í framleiðslu hefðbundinna greina landbúnaðarins.
Þegar spurt er varðandi endurskoðun á útflutningsbótakerfinu tel ég að átt sé við þau atriði sem einnig er fjallað um í till. til þál. um stefnumörkun í landbúnaði, sem ég hef lagt fram á Alþingi fyrir hönd ríkisstj., en þar segir í grg.:
„Heimilað verði að ráðstafa hluta útflutningsbótafjárins til markaðsaðgerða innanlands, til niðurgreiðslu á framleiðslukostnaði og til beinna greiðslna til bænda ef henta þykir.“
Þessar leiðir er verið að athuga og hafa þær verið athugaðar í viðræðum milli landbrn. og bændasamtakanna. Er enn of snemmt að segja til um hvort niðurstaðan verður sú að ráðstafa e.t.v. hluta af útflutningsbótafé til markaðsaðgerða innanlands eða til niðurgreiðslu á framleiðslukostnaði. Allmikil athugun hefur farið fram og það til fleiri ára á hvernig unnt væri að koma við beinum greiðslum til bænda í þessu sambandi, svo sem margrætt er hér á Alþingi, en sú athugun, sem á því hefur farið fram, hefur enn sem komið er gefið neikvæða niðurstöðu.
Ég hef þá greint frá þeim atriðum sem að meginefni hafa verið til umræðu á óformlegum fundum milli bændasamtakanna og landbrn. Ég hef ekki tekið saman skrá yfir dagsetta fundi um þetta efni og vænti að hv. fyrirspyrjandi verði að láta sér það lynda.