07.12.1982
Sameinað þing: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (709)

269. mál, verðmyndunarkerfi landbúnaðarins og endurskoðun útflutningsbótakerfisins

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Í viðræðum aðila núv. ríkisstj. í sumar um aðgerðir í efnahagsmálum var ein krafan sem Alþb. lagði fram sú, að verðmyndunarkerfi landbúnaðarins yrði tekið til endurskoðunar. Sérstaklega lagði Alþb. fram kröfu um að útflutningsbótakerfinu yrði breytt, það afnumið í áföngum og nýtt verðábyrgðakerfi yrði tekið upp í staðinn fyrir það verðábyrgðakerfi sem nú er í gildi. Þessi krafa Alþb. fékk ekki aðrar undirtektir en þær í ríkisstj., að óljóst orðuð yfirlýsing var gefin í fskj. með kjaraskerðingarráðstöfunum ríkisstj. Á málinu hefur ekki verið haldið betur en svo, að formaður þingflokks Alþb. telur sig til þess knúinn að kveðja sér hljóðs hér á Alþingi og spyrja ráðh. í ríkisstj. sem hann styður um hvort staðið hafi verið við þetta samkomulag. Í ljós kemur í svari hæstv. ráðh. að það virðist ekki vera neinn áhugi fyrir því af hans hálfu að standa við þessa yfirlýsingu og kemur það út af fyrir sig ekki á óvart. Alþb. hefur sem sé engum árangri náð hvað varðar þetta skilyrði þess.

Til viðbótar við þá fsp., sem hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson beindi til landbrh. hér áðan, vildi ég bæta við þeirri spurningu til hæstv. ráðh. hvort hann telji koma til mála að verja þessum 10 millj. kr. í greiðslu til bænda í einhverju formi fyrst fyrir liggur að samkomulag hafi ekki náðst við bændur um niðurskurð nema um 1/4–1/5 þess fjár sem ákveðið var að bæta þegar talan var reiknuð út. Má ekki fastlega vænta þess að þessar 10 millj. kr. verði eingöngu notaðar til samræmis við það samkomulag sem gert hefur verið við bændur? Miðað við þær upplýsingar, sem komið hafa fram um fyrirhugaðan niðurskurð, virðist sem einungis milli 1/4–1/5 upphæðarinnar verði nýttur. Afgangur upphæðarinnar verði ekki nýttur. (Forseti hringir.)

Hæstv. forseti. Ég vil aðeins taka það fram, að einmitt í dag hefur verið dreift á borð þm. frv. til l. um breyt. á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins, sem flutt er af mér og öðrum þm. Alþfl. í Nd. Það frv. gerir í fyrsta lagi ráð fyrir afnámi núverandi útflutningsbótakerfis í áföngum. Í öðru lagi verði að þeim áföngum loknum tekið upp nýtt viðmiðunarkerfi. Og í þriðja lagi verði á þessu tímabili varið sérstöku fé úr ríkissjóði til þess m.a. að styðja nýjar og arðsamar búgreinar í sveitunum. Ég vænti þess fastlega að fá stuðning frá Alþb. við þetta frv.