07.12.1982
Sameinað þing: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 992 í B-deild Alþingistíðinda. (716)
269. mál, verðmyndunarkerfi landbúnaðarins og endurskoðun útflutningsbótakerfisins
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Það er undarlegur og algengur misskilningur hér, að þegar stefnan í landbúnaðarmálum er gagnrýnd þá er ævinlega sagt sem svo að það séu árásir á íslenska bændur. Þetta er rugl, rugl sem ekki ætti að heyrast hér úr þessum ræðustóli. Það er ekki verið að gagnrýna bændur þegar verið er að gagnrýna þá stefnu sem hæstv. ríkisstj. fylgir í þessum málum.
Það var sömuleiðis undarlegt að heyra hæstv. landbrh. segja það hér áðan að menn væru að rugla saman niðurgreiðslum og útflutningsuppbótum, að niðurgreiðslur væri eingöngu til þess að hafa áhrif á vöruverð hér innanlands. Niðurgreiðslur eru auðvitað líka til þess fallnar að auka neyslu landbúnaðarafurða. Það sýna reikningsdæmi um fylgni milli aukningar niðurgreiðslna og neysluaukningar. Og þegar hæstv. ráðh. kemur hér og leyfir sér, leyfi ég mér að segja, að segja að það sé litið gjald sem við greiðum, sem íslenskir skattþegnar greiða í útflutningsuppbætur með íslenskum búvörum á markað, þá er það auðvitað svo furðuleg yfirlýsing að engu tali tekur. Þetta er mikið gjald. Auðvitað erum við reiðubúin til þess að greiða nokkurt gjald fyrir það að hér sé rekinn landbúnaður. En það gjald sem við nú greiðum er allt of hátt. Hæstv. landbrh. hefur tekist að fara fram úr Framsfl. í öllum efnum — og kom nú kannske ekki á óvart, því að vitað er að Sjálfstfl. á sína framsóknarmenn ekki síður en Framsfl.
Ég vildi aðeins, herra forseti, í örfáum orðum mótmæla þeirri yfirlýsingu hæstv. landbrh. að þetta sé lítið gjald. Þetta er mikið gjald, sem íslenskir skattgreiðendur verða að greiða, og við eigum að stefna að því að minnka það gjald, ekki auka það.