07.12.1982
Sameinað þing: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 993 í B-deild Alþingistíðinda. (717)

269. mál, verðmyndunarkerfi landbúnaðarins og endurskoðun útflutningsbótakerfisins

Egill Jónsson:

Herra forseti. Það var út af fyrir sig ekki að ófyrirsynju, það hefur stundum verið minni ástæða fyrir Alþfl. að ná sér nokkuð á flug í umr. um landbúnaðarmál en núna. Er skemmst að minnast ummæla Alþfl.manna, m.a. um landbúnaðarmál, sem eru nú komin inn í þingtíðindi og voru viðhöfð fyrr á þessu þingi, og þá sérstaklega meðan var verið að undirbúa prófkjör Alþfl. Hv. þm. Eiður Guðnason átti þar ekki hlut að máli. Það liggur m.o.ö. fyrir, m.a. frá umr. á því Alþingi sem nú stendur yfir, afstaða Alþfl. til þessara mála.

En út af þessu sérstaka máli, þá verður væntanlega hægt að ræða það miklu nánar hér síðar í vetur, þegar til umr. kemur stefnumótun Sjálfstfl. í landbúnaðarmálum, þar sem m.a. er skilgreint með hvaða hætti er hægt að komast út úr þessum vanda. Til þess þarf m.a. tvennt að gerast. Annars vegar að byggja upp atvinnumöguleika í sveitum landsins á öðrum sviðum. Það hefur þessi ríkisstj. gersamlega vanrækt, ekki að einu leyti heldur að öllu leyti og ekki staðið við nokkur einustu loforð eða lagaákvæði þar að lútandi. Það er annar þáttur þessa máls. Hinn er sá að komast að jákvæðri niðurstöðu um aðrar leiðir í sambandi við hluta af því fjármagni sem einvörðungu hefur verið leyfilegt að nýta sem útflutningsbótafé. Sýna má fram á það með ótvíræðum hætti, og það mun Sjálfstfl. síðar gera, að það er hægt að finna þjóðhagslega mjög færar leiðir í þeim efnum.