07.12.1982
Sameinað þing: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 993 í B-deild Alþingistíðinda. (719)

269. mál, verðmyndunarkerfi landbúnaðarins og endurskoðun útflutningsbótakerfisins

Landbrh. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Ég hef aldrei sagt að það væri lítið gjald sem fer til þess að halda niðri vöruverði með niðurgreiðslum hér innanlands. Hins vegar lét ég þess getið, að ef allt væri skoðað væri það, eins og ég orðaði það, tiltölulega lítið gjald sem fer til þess að styðja landbúnaðinn með allt að 10% verðtryggingu svo að hann geti sinnt því þjóðnýta hlutverki, sem honum er ætlað, m.a. eins og ég nefndi að halda byggð uppi um landið allt. Þetta kemur ekkert því máli við, að við stefnum að því að auka fjölbreytni í framleiðslu landbúnaðarins. Og að því er unnið þrátt fyrir það sem hv. þm. Egill Jónsson hefur hér sagt. En þessum rétti landbúnaðarins verður ekki hróflað að þessu sinni a.m.k. og það er ekkert í stefnuyfirlýsingum ríkisstj. sem víkur að því að hrófla við þessum rétti landbúnaðarins. Ég tel að umr. um þetta atriði beinist ekkert að því að ekki hafi verið sinnt þeim verkefnum sem ætlast er til í yfirlýsingum ríkisstj.