07.12.1982
Sameinað þing: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í B-deild Alþingistíðinda. (722)

269. mál, verðmyndunarkerfi landbúnaðarins og endurskoðun útflutningsbótakerfisins

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það er nokkuð einkennandi að hlýða á umr. og málflutning þeirra hv. þm. hér á Alþingi sem af einhverjum ástæðum telja sig sérstaka merkisbera eða velunnara bændastéttarinnar. Mér kom þetta í hug þegar ég hlýddi á ræðu hv. þm. Egils Jónssonar. Það er ekkert nýtt að heyra það úr þeim herbúðum að Alþfl, sé andstæður hagsmunum og sjónarmiðum bændastéttarinnar. Það vill nú svo til þó, ef menn vilja hugleiða hvaða íslenskur stjórnmálaflokkur — eða flokkar, það er hugsanlegt að hafa það í fleirtölu, þeir eru hugsanlega tveir-hvaða íslenskur stjórnmálaflokkur hefur lengst farið með málefni bænda í stjórnarsamstarfi og hvaða flokkur hefur mest áhrif haft á stefnuna í landbúnaðarmálum á undangengnum nokkuð mörgum árum, að það er ekkert vafamál, ekkert launungarmál. Og ég veit að það vefst ekki fyrir þessum hv. þm. að ganga úr skugga um hvaða flokkur þarna á hlut að máli.

Sjálfstfl. ásamt Framsfl. hefur haft um áratugi afgerandi áhrif á stefnuna í landbúnaðarmálum. En það vill svo til að jafnvel þessi ríkisstj., ég get tekið undir með hv. þm. um það, að þessi ríkisstj. hefur bætt tiltölulega lítið um í þessum málum, en þó er hún farin að taka tillit til ábendinga, til málflutnings og til stefnumörkunar Alþfl. að því er varðar úrlausn á vandamálum landbúnaðarins í landinu. (EgJ: Þess vegna er hún svona vond.) Þess vegna er hún svona vond, segir hv. þm. Við eigum væntanlega eftir að heyra enn einu sinni hér á hv. Alþingi í vetur stefnumörkun Sjálfstfl., þess hluta hans sem er utan ríkisstj. að sinni en ber fulla ábyrgð á núv. hæstv. ríkisstj., ekki kannske hvað minnsta, því að það er einkennilegur flokkur sem bæði getur verið í stjórn og stjórnarandstöðu, einn og sami flokkurinn heilt kjörtímabil. (Gripið fram í.) Það er ljóst að ekki síst formann þingflokks Sjálfstfl. svíður undan því, þegar minnt er á það að Sjálfstfl. sem heild ber kannske höfuðábyrgð á hæstv. ríkisstj. og þeirri stefnumörkun sem hún hefur fylgt á þeim tíma sem hún hefur setið við völd á Íslandi.