07.12.1982
Sameinað þing: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 997 í B-deild Alþingistíðinda. (729)

269. mál, verðmyndunarkerfi landbúnaðarins og endurskoðun útflutningsbótakerfisins

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Leitt þætti mér til þess að vita, ef í ljós kæmi að fleiri af stuðningsmönnum fyrirhugaðs Bandalags jafnaðarmanna en síðasti ræðumaður stæðu í þeirri trú, að landbúnaðurinn væri á framfæri hv. þm. Vilmundar Gylfasonar, því það er ætlun mín að hið gagnstæða sé rétt.