07.12.1982
Sameinað þing: 27. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1029 í B-deild Alþingistíðinda. (760)
Umræður utan dagskrár
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Mér heyrist ástæða til að fara að ljúka þessari umr., en mér ofbýður alveg framkoma hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar undir umr. Ég er ekki prófessor, það vita menn, í stjórnlagafræði, ég er ekki kennari við Háskólann og ég er lítt lærður, en slík framkoma, eins og hv. þm. sýnir hér í umr. trekk í trekk ekki bara í dag, gengur a.m.k. fram af mér. Ég vek athygli á að það hefði verið ástæða til að sjónvarpa nú frá umr. hér á Alþingi þannig að þjóðin fengi að sjá hvernig þeir haga sér sem framkvæma í raun og veru þá meginkennslu sem menn telja að þjóðlífið eigi að byggja á í framtíðinni. Þetta ætlaði ég ekki að tala um, en mér ofbauð þannig að það varð að komast að.
Það var sagt fyrr í umr. í dag um þetta mikilvæga mál, sem er spurningin um túlkun á 1. gr. brbl., og það var hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson sem vakti athygli á því, að það væri mjög sérstakt að við Nd.-þm. skyldum ræða þetta hér. Ég vil aðeins greina frá því, að eftir að vitneskja barst um ummæli Sigurðar Líndals lagaprófessors á fundi fjh.- og viðskn. í morgun hafa forustumenn verkalýðshreyfingarinnar, Alþýðusambandsins, tekið við sér vegna þessa. Í dag var gengið á fund forsrh. vegna þess að menn töldu þetta svo alvarlegt mál að fá yrði úr því skorið hvaða skilningur væri hér á ferðinni. Það hefði að sjálfsögðu verið ástæða til að slík yfirlýsing kæmi fram í þessum umr., en slík yfirlýsing mun að sjálfsögðu koma fram, það best ég veit, frá hæstv. forsrh. í umr. í Ed. Alþingis þegar málið kemur til 2. umr., að hér sé einvörðungu um að ræða skerðingu 1. des. Komi ekki slík yfirlýsing verður flutt brtt. við lögin þar og af hálfu forsrh. þá. Þetta taldi ég rétt að upplýsa vegna þess að forustumenn verkalýðshreyfingarinnar litu þetta svo alvarlegum augum að það var strax farið í að kynna sér hvernig málið væri vaxið og við hverju mætti búast.