07.12.1982
Sameinað þing: 27. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1035 í B-deild Alþingistíðinda. (764)
36. mál, laxveiðar Færeyinga í sjó
Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa mörg orð. En vegna ræðu hv. síðasta ræðumanns sé ég mig til þess knúinn að segja örfá orð.
Ég er ekki að leggja það til að við beitum aldrei 66. gr. hafréttarsáttmálans. En ég er að leggja það til að við undirbyggjum sóknina með öðrum hætti en gert er samkv. þeirri tillögu sem hér er til umr.
Hv. flm. gerði því skóna að þær rannsóknir, sem ég vil láta fara fram, komi til með að þurfa að standa í 5–10 ár. Ég held að mjög augljós vísbending fáist á miklu skammri tíma. Hann talaði um að 200 þús. kr. norskar væri of lítið. Það finnst mér líka. Þess vegna flytjum við þessa þáltill. til að reyna að fá íslenskt framlag sérstaklega til þess verkefnis á móti.
Hvað varðar orðalag till., sem mér finnst ekki viðeigandi, þá er þar sett fram fullyrðing um að veiðarnar séu rányrkja. Ég get ekki samþykkt þá fullyrðingu. Og ég vil heldur ekki tala um siðlaust athæfi þrátt fyrir það að ég hafi ýmislegt við veiðar Færeyinga að athuga.