07.12.1982
Sameinað þing: 27. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1036 í B-deild Alþingistíðinda. (765)
36. mál, laxveiðar Færeyinga í sjó
Flm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Herra forseti. Eins og ég sagði áðan, þá vænti ég þess að fullt samkomulag náist um að gæta hagsmuna Íslands í þessu mikilvæga máli hér innan Alþingis og meðal Íslendinga. Og svo sannarlega set ég ekki fyrir mig breytingu á einu orði. Þó að ég fari ekkert ofan af því að þetta sé rányrkja, þá má auðvitað að sjálfsögðu breyta því og öllu mögulegu öðru. Ég treysti því raunar, að við hv. 1. þm. Norðurl. v. verðum um það er lýkur sammála um aðgerðir sem bera muni árangur.