08.12.1982
Neðri deild: 15. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1061 í B-deild Alþingistíðinda. (787)

21. mál, almannatryggingar

Frsm. (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál., sem liggur fyrir á þskj. 140, um frv. til l. um breyt. á lögum um almannatryggingar, sem er 21. mál þingsins. Nefndin hefur fjallað um frv. og orðið sammála um að mæla með samþykkt 1. gr. og 3. gr., en leggur til að 2.gr. falli niður.

Ég tel rétt að gera örstutta grein fyrir efni frv., þó að það hafi verið gert við flutning þess. (Forseti: Það verður að vera stutt.) Það skal verða stutt, herra forseti.

Meginefni þess er að veita börnum þeirra öryrkja sem njóta lífeyris frá slysatryggingasjóði sama rétt til barnalífeyris og börnum þeirra öryrkja sem bóta njóta frá lífeyristryggingum. Sá mismunur sem nú viðgengst felst í því, að þeir öryrkjar sem taka bætur úr slysatryggingasjóði, sem eins og kunnugt er er fjármagnaður af atvinnurekendum, fá einungis greiddan barnalífeyri með þeim börnum sínum sem fædd voru þegar slysið varð, en ekki með þeim sem fæðast eftir það. Lífeyrisupphæðir eru hinar sömu í báðum tilvikum að þessu undanskildu. Þeir sem slysaörorku njóta eru öryrkjar vegna vinnuslysa, slysa við akstur og björgunarstörf og einnig þeir sem slasast hafa við íþróttir.

Nefndin var einhuga um að þennan mismun bæri að lagfæra. Kristján Guðjónsson deildarstjóri Tryggingastofnunar ríkisins kom á fund nefndarinnar og taldi þessa leiðréttingu eðlilega. Rætt var hvort eðlilegra væri að lífeyristryggingar tækju við greiðslu þessara bóta, en talið var að framkvæmd yrði flóknari og eðlilegra að slysatryggingasjóður bæri allan kostnað af örorku hins tryggða. Tekið skal fram að hér er um upphæðir að ræða sem eru afar lítill þáttur í kostnaði sjóðsins og taldi deildarstjórinn þessa viðbót engu máli skipta, enda sjóðurinn vel stæður. Var því einhugur um þetta atriði.

Allir nefndarmenn töldu nauðsynlegt að breyta 16 ára aldursmarkinu í 18 ár til samræmis við barnalögin frá 1981, enda framkvæmdir þegar raunveruleiki.

Í 2. gr. frv. er þessi aldursmarkssamræming einnig lögð til af sömu ástæðu, en Kristján Guðjónsson taldi þessa brtt. í raun óþarfa, en hún er till. til breytingar á d-lið 35. gr. almannatryggingalaga. Ég skal taka fram að ég er rétt að ljúka máli mínu. Ég tel mig þó hafa nokkurn rétt til að tala svo sem eins og þrjár mínútur eftir nær tveggja tíma umr. utan dagskrár. En liðurinn hljóðar svo, með leyfi forseta, og fjallar um þá sem greiða skal dánarbætur:

„Barn eldra en 16 ára, sem var á framfæri hins látna vegna örorku, þegar slysið bar að höndum, fær bætur, eigi minna en kr. 28 270.00 og allt að kr. 84 810.00, eftir því, að hve miklu leyti það naut stuðnings hins látna við fráfall hans. Þó greiðast ekki bætur, ef örorka er minni en 33%. Sama gildir um systkini hins látna, þegar eins stendur á.“

Sannleikurinn er sá, að á þessa greiðslu hefur aldrei reynt í neinu slysatryggingamáli hjá Tryggingastofnun ríkisins samkv. upplýsingum þaðan. Nefndin taldi því ástæðulaust að hækka aldurslágmark þetta og áleit það ekki endilega í rökrænu samhengi við 18 ára aldursmark barnalífeyris samkvæmt barnalögum.

Allir nefndarmenn féllust því á að greiðsla þessi eins og hún er nú stæði áfram óbreytt. Ekki tæki því að skerða þennan rétt, ef um slíkt tilvik yrði að ræða. Eins og áður sagði hefur þessi greiðsla aldrei komið til og því er þetta ekkert atriði fyrir sjóðinn.

Ég vil að lokum þakka nefndinni skjóta og góða afgreiðslu að vanda. Það skal tekið fram, að hæstv. landbrh. var fjarstaddur afgreiðslu málsins. Hef ég nú lokið máli mínu, herra forseti.